Bókasafnið - 01.01.2004, Síða 51

Bókasafnið - 01.01.2004, Síða 51
Ljósm. Sólrún Smáradóttir Miðstöð Evrópuuppýsinga í Háskólanum í Reykjavík Miðstöðvar Evrópuupplýsinga eru settar á stofn skv. sérstökum samningi milli Framkvæmdastjórnar ESB og þeirrar stofnunar sem hýsir miðstöðina. Lang- oftast er það háskólabókasafn eða rannsóknar- stofnun. í HR er um hvort tveggja að ræða. Miðstöðin í HR er grundvölluð á samningi Evrópuréttarstofn- unar HR (EHR) og Framkvæmdastjórnar ESB sem undirritaður var í mars 2003. Franz Fischler, yfir- maður Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í fiskveiði- og landbúnaðarmálum opnaði miðstöðina formlega þann 10. ágúst 2003. Miðstöðin er og verður sú eina sinnar tegundar hérlendis. í samningnum um Miðstöð Evrópuuppýsinga í HR eru ákvæði um að hún skuli vera í bókasafni há- skólans og við hana skuli starfa bókasafns- og upp- lýsingafræðingur í fullri stöðu. í samræmi við þetta ákvæði var miðstöðinni fundinn staður í bókasafni HR og rekstur hennar, þjónusta og skipulag sett undir forstöðumann safnsins. Þar er boðin aðstaða til þess að finna og sinna úrvinnslu efnis frá Evrópusam- bandinu, hvort sem það er prentað eða rafrænt. Hlutverk EDC í íslensku samfélagi Miðstöð Evrópuupplýsinga í HR er ætlað að veita íslensku háskólasamfélagi og rannsóknarstofnunum þjónustu, auk þess að vera upplýsingaveita fyrir stjórnvöld, stjórnmálaflokka, fjölmiðla og aðra áhugamenn um Evrópumál. HR væntir þess að mið- stöðin verði öflugur vettvangur sem miðlar upplýs- ingum Evrópusambandsins á hlutlausan hátt í þeim tilgangi að tryggja faglega umræðu um Evrópusam- runann hérlendis. Markmið miðstöðvarinnar í HR er að verða upphafsreitur þeirra sem leita að upp- lýsingum Evrópusambandsins. Veffang Miðstöðvar Evrópuupplýsinga í HR er: http://www.edc.is/ Aðrar upplýsingastofur National Information Centres On Europe - "Traustur staðurfyrir tœmandi upplýsingar" Einungis eru starfræktar þrjár upplýsingastofur af þessari gerð, í París, Lissabon og Róm. Þær eru sam- starfsverkefni Framkvæmdastjórnarinnar og ríkis- stjórna viðkomandi landa. Þeim er ætlað að að vera miðstöð tengiliða, þjálfunar, kynninga og auglýsinga um málefni Evrópu. Þeim er einnig ætlað að vera bakhjarl fyrir aðrar tegundir upplýsingastofa. In/o-Points Europe (IPE) - “Stutt, hnitmiðuð suör” IPE eru venjulega staðsettar í miðborgum. Þeim er ætlað að vera fyrsti staðurinn sem veitir hinum almenna borgara, félagasamtökum, nemendum og kennurum upplýsingar og sér þeim fyrir efni um Evrópusambandið. Þær eru einnig mikilvæg dreif- ingarmiðstöð fyrir hvers konar upplýsingaefni frá sambandinu. Rural Information Carrefours (RIC) - “Upplýsingar um Evrópu til hjarta hinna dreifðu hyggða" Markmið með starfsemi Rural Information Carre- fours er að sjá til þess að upplýsingar frá og um Evrópusambandið berist til hinna dreifðu og af- skekktu byggða í aðildarlöndunum. Einnig er þeim ætlað að örva umræðu um sambandið, stefnu þess og stofnanir og samvinnu fólks. Euro In/o Centres (EIC) — “Þinn lykill að evrópska markaðstorginu" Euro Info Centres var upphaflega ætlað að sinna þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja (LMF) en þær eru nú orðnar almennar upplýsingastofur fyrir við- skiptalífið. Útflutningsráð starfrækir EIC á íslandi, veffang þess er: http://www.icetrade.is/euroinfo/ European Consumer Centres European Consumer Centres (“Euroguichets”) — (ECC) er sá vettvangur þar sem Evrópusambandið og hinn almenni neytandi mætast. Þar getur neytandinn fræðst um rétt sinn og sambandið haldið tengslum sínum við “grasrótina”. Ljósm. Sólrún Smáradóttir BÓKASAFNIÐ 28. ÁRG. 2004 49

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.