Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2003, Síða 11

Heima er bezt - 01.03.2003, Síða 11
Við rústir œskuheimilis míns að Hátúni. Hjá veggjarbroti afbænum mínum heima, ég bið mér skjóls við þráðan endurfund. Kuldinn nístir, kólgubakkar sveima um kæra fjallasýn og dimmblá sund. Við fótskörþína, flóans nægtabrunnar, þú fagra perla í ríki náttúrunnar. Eg átti hjá þér æskuglöðu vorin, hver endurminning helguð þakkargjörð. Iþínum faðmi þreytti eg fyrstu sporin, og þú ert mínum fótum heilög jörð. Nú grónar rústir geyma ofar orðum, hið góða mannlíf sem hér ríkti forðum. Hún segir honum deili á mér og hann segir sem svo að jú, hann hafi þekkt Sigurð Óla, foður minn vel. „Það voru nú margar vísur til eftir hann heima í Vigur,“ sagði hann. Svo dregur Rannveig upp handritið mitt, hafði þá verið með það í töskunni sinni, og sýnir Sigurði. Hann lítur á það og segir: „Ja, ég fer bara með þetta til hans Péturs Ólafssonar.“ Og þannig æxlaðist það að útgáfa á mínum sögum hófst. Þessi bók, Haukur læknir, er því fyrsta bókin sem kemur út eftir mig og þetta er líklega árið 1958. Rannveig var líka kunnug Sigurði O. Björnssyni, sem var forstjóri Bókaforlags Odds Bjömssonar á Akureyri. Svo hún spyr hvort hún rnegi ekki skrifa Sigurði og inna hann eftir möguleikum á frekari útgáfu á sögum mínum. „Þú ræður nú líklega hverjum þú skrifar,“ sagði ég og lét hana alveg sjálfráða um þetta. Þá skrifar hún Sigurði og býður honum sögu til birtingar í Heima er bezt, en hann var þá útgefandi þess. Hann tók þessu mjög vel og birti fyrsta sögukaflann eftir mig í maí- blaði þess árs, úr sögu sem heitir Sýslumannssonurinn. Þeir höfðu reyndar þann háttinn á að þeir birtu sögurnar íyrst í blaðinu og gáfu þær síðan út á bók. Og síðan má segja að ekkert lát hafi orðið á, sögur mínar hafa birst í Heima er bezt, sem framhaldssögur allt frarn á þennan dag. Síðasta sagan Ég er reyndar hætt að skrifa að mestu núna og ég hygg að ein mín síðasta ef ekki alsíðasta saga hafi nú birst í Heima er bezt. En þetta er mér engu að síður svo mikil ástríða að ég er oft með pennann á lofti og að skrifa ýmislegt smærra, mér til dægradvalar. Höndin er orðin stirð, sem á pennanum heldur, en það er ntikil vinna sem liggur að baki hverri sögu. Ég hef jafhan haft þann háttinn á að skrifa fyrst uppkast, síð- an hreinskrifa ég einu sinni, og skrifa það svo upp aftur í þriðja sinn. Og nú finnst mér þetta orðið of mikið í fang að færast og hef lagt þennan þátt í lífi mínu að mestu á hilluna. Og þegar ég horfi tilbaka og hugsa um alla þá vinnu sem að baki liggur þessum sögum mínum, þá verður mér á að velta fyrir mér, hvenær ég hafi eiginlega haft tíma til þess að gera þetta. Hvemig gat ég komið þessu öllu í verk? Ég var að athuga það fyrir nokkm síðan hvað þetta væri orðið mik- ið og líklega eru sögumar mínar orðnar eitthvað um eða yfir þrjátíu talsins, fyrir utan einstöku smásögur, sem ég hef skrifað. Vísur og ljóð hef ég líka gert nokkuð af að yrkja, þó ekki hafi ýkja mikið af því efni birst opinberlega. Sögurnar em nánast alltaf mitt eigið hugarfóstur, ég geri ekki mikið af því að taka fyrirmyndir úr umhverfi mínu eða persónur sem ég hef þekkt. Ég var sem bam alltaf að biðja fólk að segja mér sögur, og gömul kona, Halldóra Guðmundsdóttir, sem átti heima á næsta bæ, sagði mér oft sögur og sagnir af atburðum sem hún kunni. Hún var afskaplega ffóð og hafði farið víða. Ég var sí og æ að koma til hennar og biðja hana að segja mér sögu. Ég var orðin hálfgerð plága á henni. „Kemur hún að biðja um sögu,“ sagði hún stundum, „ég er búin að segja þér allt sem ég kann.“ „Segðu mér þá bara afiur það sem þú sagðir mér fyrst,“ var ég þá vön að svara. Lesið hef ég mikið um ævina og fóstru minni þótti ég nú stundum með heldur margar bækur á náttborðinu. Þá voru bara olíulampar að lesa við, þeir brenndu olíu og hún var svo sem ekki gefin þá frekar en nú, og þurfti að sækja hana í kaupstaðinn. Hún var jafnan keypt á brúsa á haustin og þurfti að endast yfir veturinn. En áfyll- ingin á lampanum var nú stundum langt komin eða búin þegar lestri bókarinnar lauk hjá mér. En hún fyrirgaf mér nú það, blessunin hún fóstra mín. Og þó sagan mín um Jensen skipstjóra gerist að mestu í Noregi, þá hef ég nú reyndar aldrei komið þangað. Ég hef þó haft tækifæri til þess að skoða heiminn ofurlítið, því Fóstra mín, Margrét Ferdinantsdóttir. Myndin er tekin við heimili okkar í Sandgerði. Heima er bezt 107

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.