Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2003, Page 19

Heima er bezt - 01.03.2003, Page 19
Örnólfur Thorlacius: Tíminn og hafið Upphaf nútíma siglingafræði Nú finna menn nákvœma hnattstöðu skips úti á rúmsjó - eða vélsleða á Vatna- jökli — með tcekni sem styðst við merki frá gervitunglum á braut um jörð (GPS). Til skamms tíma voru skip og flugvélar staðsett með kerfi miðunar- stöðva á jörðu niðri (t.d. loran eða decca). En fram á 20. öld tóku sjómenn mið af gangi sólar eða stjarna og af tíma. Lengd og breidd Landfræðingar og kortagerðarmenn draga ímyndaðar línur eða bauga eft- ir endilöngum hnettinum, á milli norður- og suðurskauts. Þessir lengdarbaugar eða hádegisbaugar, eru tölusettir í hálfhring til austurs og vesturs út frá núllbaug. Allir staðir á núllbaugnum hafa lengd- ina núll, síðan koma staðir með austlæga og vestlæga lengd, allt að 180°. Löng hefð er fyrir því að núll- baugurinn er dreginn í gegnum forn- fræga stjörnurannsóknastöð í út- hverfi Lundúnaborgar, Greenwich. Þvert á alla lengdarbaugana miðja gengur svo miðbaugur, og sunnan og norðan hans er kerfi samsíða breidd- Lengdar- og breiddarbaugar. arbauga, sem eru tölusettir í gráðum norður- og suðurbreiddar. Þeir þrengjast að sjálfsögðu eftir því sem nær dregur heimskautunum og enda sem punktar á pólunum, á 90° norður og suður. Sjómenn hafa lengi ákvarðað breidd staðar út frá sólarhæð eða hæð einhverrar stjörnu. Allur stjörnuhiminninn á norðurhveli jarð- ar virðist snúast um pólstjörnuna eða norðurstjörnuna. Hún er ævinlega beint yfir höfði manns sem stendur á norðurpólnum, en nemur við sjón- deildarhring við miðbaug. Þar sem hún sést ekki, má finna breidd staðar út frá gangi annarra stjarna eða sólar. Lengdin, til austurs eða vesturs, finnst með því að mæla hvenær sól eða einhver stjarna er hæst á lofti. Þegar sól er hæst á lofti er hádegi að John Harrison. staðartíma. Á skipum er þessi tími svo borinn saman við afar nákvæma klukku, sjóúr eða skipsklukku, sem sýnir annan tíma, venjulega heims- tíma eða meðaltíma í Greenwich, þ.e. hvenær sól er þar í hádegisstað. Þar sem jörðin snýst um 15 gráður á klukkustund, má af mismuninum ráða, hve mörgum gráðum skipið er austan eða vestan við núllbaug- inn. Sá galli var lengi á gjöf Njarðar að engin klukka gekk rétt um borð í skipi. Flestar klukkur á landi voru pendúlklukkur, sem ekki þola að haggast. Þegar Magellan sigldi um heimsins höf snemma á 16. öld, hafði hann ekki nákvæmari tímamæli en stundaglas með sandi. Léttadrengir skiptust á um að fylgjast með glas- inu, telja hve oft það tæmdist og snúa því jafnharðan. Eftir því sem úthafssiglingar fóru vaxandi, brann þessi vandi meir á sæförum. Árið 1707 strandaði til dæmis floti breskra herskipa á heim- leið frá Gíbraltar við Scillyeyjar úti fyrir Cornwall og fórust þar nærri 2000 menn. Þessi harmleikur varð til þess að ríkisstjórn Önnu Bretadrottningar hét árið 1714, verðlaunum hverjum þeim, sem fundið gæti aðferð til að Heima er bezt 115

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.