Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1953, Side 12
10
14. gr. — Skipta skal landinu í tvö verðlagssvæði. Til fyrsta verðlagssvæðis
teljast kaupstaðir og kauptún með 2000 íbúum eða fleiri, til annars verðlagssvæðis
allir aðrir staðir á landinu. Þó er heimilt að færa kaupstaði eða kauptún milli verð-
lagssvæða, ef óskir koma fram urn það frá hlutaðeigandi sveitarstjórn og rannsókn
á framfærslukostnaði á þeim stað réttlætir tilfærsluna.
15. gr. — Árlegur ellilífeyrir er sem hér segir:
1. verðlags- 2. verðlags-
svæði svæði
kr. kr.
Fyrir hjón, þegar bæði fá lífeyri ......................... 1920.00 1440.00
Fyrir einstaklinga og hjón, þegar annað fær lífeyri 1200.00 900.00
Sömu fjárhæð og hjónum samkv. þessari gr. skal greiða konu og karlmanni,
þótt ógift séu, ef þau búa saman og hafa sameiginlegt lieimilishald. — Sjá 1. 38/1953,
5. gr.
16. gr. — Sé greiðslum ellilífeyris frestað, hækkar árslífeyrir hins tryggða sem
hér segir:
68 ára gamall maður fær
69 — — — —
70 — — — —
72 — — — —
73 — — — —
74 — — — —
75 — eða eldri — —
5% í viðbót
10% - -
15% - -
20% - -
25% - -
30% - -
35% - -
40% - -
Þeir, sem við gildistöku laganna eru eldri en 67 ára og taka lífeyri þegar í
stað, hljóta lífeyri samkvæmt 15. gr. án hækkunar þeirrar, er um ræðir í 1. mgr.
hér á undan. Ef þeir liins vegar fresta lífeyristöku, fá þeir 5% í viðbót fyrir hvert
heilt ár, sem líður án þess þeir taki lífeyrinn. — Sjá 1. 38/1953, 39. gr.
17. gr.— Ef ellilífeyrisþegi þarfnast sérstakrar umönnunar sökum sjúkleika eða
ellilasleika og getur því eigi komizt af með þann lífeyri, sem ákveðinn er í 15. og 16.
gr., getur Tryggingastofnunin hækkað lífeyri hans, samkvæmt umsókn, um allt að 40
af hundraði eða séð honum fyrir vist á elliheimili. Skal Tryggingastofnunin vinna
að því, að komið verði upp hæfilegum fjölda elliheimila, sbr. 101. og 104. gr.
18. gr. — Örorkulífeyrir er jafnhár ellilífeyri, sbr. 15. gr., og greiðist samkv.
sömu reglum, eftir því sem við getur átt. — Sjá 1. 38/1953, 5. gr.
Rétt til örorkulífeyris eiga þeir menn á aldrinum 16—67 ára, sem eru varan-
legir öryrkjar á svo háu stigi, að þeir teljast ekki færir um að vinna sér inn %
þess, er andlega og líkamlega heilir menn eru vanir að vinna sér inn í því sama
héraði við störf, sem hæfa líkamskröftum þeirra og verkkunnáttu og sanngjarnt er
að ætlast til af þeim með hliðsjón af uppeldi og undanfarandi starfa.
19. gr. — Tryggingayfirlæknir úrskurðar örorkustig þeirra, sem sækja um ör-
orkulífeyri. Slíkum úrskurðum má áfrýja til sérfræðinganefndar, sbl. 6. og 7. gr.
Tryggingastofnunin getur hvenær sem er látið endurmeta örorku þeirra, sem
fengið hafa örorkulífeyri, ef líkur þykja til, að þeir séu eigi lengur öryrkjar, sbr.
2. mgr. 18. gr.
2. Barnalífeyrir og fjölskyldubœtur.
20. gr. — Árlegur barnalífeyrir er sem hér segir:
Á 1. verðlagssvæði .................. kr. 800.00
Á 2. — ................. — 600.00