Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1953, Page 14
12
Þegar bætur hafa verið greiddar samkvæmt 1. mgr., getur Tryggingastofnunin
krafizt þess, að eiginmaður endurgreiði þær, þegar til hans næst. Innheimta má slíka
kröfu á sama hátt og iðgjöld samkvæmt 117. gr., ef Tryggingastofnunin óskar þess.
27. gr. — Mæður, sem fá úrskurð yfirvalds um barnalífeyri með óskilgetnum
börnum sínum, geta snúið sér til Tryggingastofnunarinnar með úrskurðinn og fengið
lífeyrinn greiddan þar.
Þegar Tryggingastofnunin greiðir barnalífeyri samltv. 1. mgr., á hún endur-
kröfurétt á hendur föðurnum, og fer um innlieimtu slíkrar kröfu eftir ákvæðum
117. gr.
Verði vanskil af hálfu föðurins, skal innheimta kröfuna hjá dvalarsveit móður-
innar eða þess, er framfærslu barnsins annast í hennar stað, nema Tryggingastofn-
unin kjósi heldur að innheimta hana frá framfærslusveit föðurins, og telst fjár-
hæðin framfærslustyrkur veittur honum. Um rétt dvalarsveitar á hendur fram-
færslusveit og framfærslusveitar á hendur barnsföður fer samkvæmt ákvæðum
framfærslulaga. — Sjá 1. 38/1953, 8. gr.
Nú deyr faðir óskilgetins barns, áður en barnið hefur náð 16 ára aldri, og greiðir
þá Tryggingastofnunin barnalífeyri engu að síður, en getur þá jafnframt gert kröfu
í dánarbú hins látna samkv. reglum 25. gr. 1. nr. 46 27. júní 1921.
28. gr. — Reglur 27. gr. skulu gilda eftir því, sem við getur átt, um greiðslu
barnalífeyris, er fráskildar konur fá úrskurðaðan með börnum sínum. — Sjá
1. 38/1953, 9. gr.
29. gr. — Nú liefur kvæntur maður verið dæmdur til fangelsisvistar eða úr-
skurðaður á drykkjumannahæli eða aðra hliðstæða stofnun, og getur Trygginga-
stofnunin þá greitt barnalífeyri samkv. ákvæðum 26. gr., eftir því sem þau geta
átt við.
30. gr. — Árlegar fjölskyldubætur eru sem hér segir:
Á 1. verðlagssvæði ................. kr. 400.00
Á 2. — ................. — 300.00
og eru þær greiddar eftir reglum 31.—33. gr. með hverju barni undir 16 ára aldri,
sem er umfram 3 í fjölskyldu. — Sjá 1. 38/1953, 5. og 11. gr.
31. gr. — Fjölskylda telst hér foreldrar og börn þeirra innan 16 ára aldurs,
þar með talin stjúpbörn og kjörbörn. Undantekin eru börn, sem ekki eru á fram-
færi foreldranna.
Ef barn er í fóstri, getur Tryggingastofnunin greitt fósturforeldrum bæturn-
ar, ef fullvíst er, að barnið sé í raun réttri á framfæri þeirra, sbr. 3. mgr. 58. gr.
32. gr. — Fjölskyldubætur skulu greiddar foreldrum barnanna, ef þeir eru á
lífi og sjá um uppeldi þeirra. Þó getur Tryggingastofnunin greitt þær öðrum aðila,
ef hún telur, að bæturnar komi börnunum að betri notum með þeim hætti, sbr.33.gr.
Fjölskyldubætur eru ekki greiddar vegna barna, sem barnalífeyrir er greiddur
með samkv. 20.—29. gr. eða greitt er með af öðrum sem því svarar samkv. úr-
skurði — Sjá 1. 38/1953, 10. gr.
33. gr. — Barnalífeyri eða fjölskyldubætur, sem greitt er, samkv 20.-—32. gr.
skal eingöngu nota til framfærslu eða menntunar börnum þeim, sem hlut eiga að
máli. Tryggingastofnunin getur neitað að greiða bætur eða hætt að greiða þær,
nema fulltryggt sé, að þær verði notaðar eða hafi verið notaðar í þessu skyni. Skal
Tryggingastofnunin liafa um þetta samvinnu við barnaverndarnefndir og aðra aðila,
sem eiga að hafa eftirlit með uppeldi barna og framfærslu, og getur hún ákveðið
að greiða þessum aðilum bæturnar, en þeir sjái síðar um, að þær komi börnunum
að sem beztum notum.