Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1953, Side 15
13
3. Bœtur til mœðra, ekkna o. fl.
34. gr. — Við hverja barnsfæðingu á móðirin rétt á að fá greiddar kr. 80.00,
hvort sem hún stundar vinnu utan heimilis eða ekki.
Mæðrum, sem stunda atvinnu utan heimilis, skal greiða fæðingarstyrk kr.
140.00 mánaðarlega í allt að þrjá mánuði samtals fyrir og eftir fæðingu, enda
leggi þær niður vinnu og sé ekki greitt kaup fyrir þennan tíma. Gift kona fær því
aðeins greiddar bætur samkv. þessari málsgrein, að maður hennar geti ekki séð
heimilinu farborða.
Nú greiðir atvinnurekandi kaup, sem er lægra en fæðingarstyrkur samkv.
framansögðu, og skal þá Tryggingastofnunin greiða fæðingarstyrk, þó aldrei hærri
en svo, að hann að viðbættu kaupi nemi meiru en kr. 175.00 á mánuði.
Greiða skal fæðingarstyrk frá þeim tíma, sem kona leggur fram læknisvottorð
um, að hún muni sennilega ala barn innan 6 vikna, og allt til þess er 6 vikur eru
frá barnsburði, sbr. þó 2. mgr. Fæðingarstyrkur er því aðeins greiddur, að móðirin
hlíti þeim reglum, sem settar kunna að verða um lækniseftirlit um meðgöngu-
tímann.
Mæður, sem ekki stunda atvinnu utan heimilis síns, fá auk þeirra kr. 80.00,
sem um ræðir í 1. mgr., greiddar kr. 120.00 upp í kostnað þann, sem fæðingin
hefur í för með sér. — Sjá 1. 38/1953, 12. gr.
35. gr. — Hver sú kona, sem verður ekkja innan 67 ára aldurs, á rétt á bót-
um í 3 mánuði eftir lát eiginmanns hennar, kr. 200.00 mánaðarlega. Ef ekkjan
hefur börn yngri en 16 ára á framfæri sínu, á hún enn fremur rétt á bótum í 9 mán-
uði í viðbót, kr. 150.00 mánaðarlega. — Sjá 1. 38/1953, 5. gr.
36. gr. — Auk bóta samkv. 35. gr. á hver sú kona, sem verður ekkja eða hættir
að taka barnalífeyri samkv. 23. gr. eftir að hún er orðin fullra 50 ára, rétt á ár-
legum lífeyri, allt að sömu fjárhæð og greiða ber ekkju samkv. 2. málsl. 1. tölul.
57. gr., og ákveður tryggingaráð fjárhæðina með hliðsjón af fjárhagsástæðum
ekkjunnar og verðlagssvæðum. Sama rétt á ógift móðir, ef hún er orðin 50 ára,
þegar hún hættir að taka barnalífeyri.
37. gr. — Nú hefur kona búið með karlmanni í a. m. k. 2 ár og alið honum
barn, eða búið með honum samfleytt í 5 ár. Á hún þá sama rétt til bóta og ekkja
skv. 35. og 36. gr., ef maðurinn fellur frá.
Þetta er þó þeim skilyrðum bundið, að bæði liafi verið ógift, að þau hafi haft
sameiginlegt heimili og maðurinn séð um framfærslu konunnar og barnanna, eins
og um hjón og börn þeirra væri að ræða.
Sömu reglur gilda um giftar konur, sem eiginmaður hefur hlaupizt frá, ef þær
hafa á framfæri sínu börn sín yngri en 16 ára. Fer um endurkröfurétt á hendur
manninum eftir reglum 2. mgr. 26. gr.
Bætur samkv. þessari grein getur Tryggingastofnunin lækkað eða fellt niður
með hliðsjón af fjárhag konunnar.
38. gr. — Tryggingastofnunin getur veitt bætur eiginkonu ellilífeyris- og ör-
orkulífeyrisþega, enda þótt hún sé ekki fullra 67 ára eða sjálf öryrki, sbr. 18. gr.
Slíkar bætur skulu vera:
Á 1. verðlagssvæði allt að .... kr. 720.00 á ári
Á 2. verðlagssvæði allt að .... kr. 540.00 á ári
Bætur þessar eru því aðeins veittar, að Tryggingastofnunin telji þess þörf, að
undangenginni rannsókn á fjárhag umsækjanda. — Sjá 1. 38/1953, 5. gr.
Ef maður kvænist fullra 60 ára eða eldri, getur eiginkona lians eigi fengið
bætur samkvæmt þessari grein. Sama máli gegnir um konu örorkulífeyrisþega,