Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1953, Page 62
60
Hér eru eingöngu teknar með bætur almannatrygginga. Einnig mætti bæta
við framlagi ríkissjóðs til sjúkrasamlaga. Af því rennur blutfallslega meira til kaup-
staða en sveita.
a. Tekjur.
Iðgjöld hinna tryggðu eru mismunandi eftir verðlagssvæðum, kyni og hjú-
skaparstétt. Sýnt er í töflu 12, hver iðgjöld bafa verið 1947—1953.
í almannatryggingalögunum voru iðgjöld við það miðuð, að III. kafli laganna,
um heilsugæzlu, kæmi til framkvæmda, en samkvæmt bráðabirgðaákvæði var ríkis-
8tjórninni heimilt að lækka iðgjöld, meðan svo væri ekki. Þá var og kveðið svo á,
að félagar lífeyrissjóða þeirra, sem Tryggingastofnunin veitir viðurkenningu skv.
133. gr. laganna, skyldu greiða helming iðgjalds. En þar eð heilsugæzlukaflinn hefur
ekki komið til framkvæmda, er iðgjald sérsjóðsfélaga nálægt þriðjungi almenns
iðgjalds.
í töflu 13 er yfirlit um skiptingu þeirra, sem gjaldskyldir voru til almanna-
trygginga eða undanþegnir iðgjöldum árið 1953, eftir verðlagssvæðum og skiptingu
gjaldskyldra eftir kyni og hjúskaparstétt. Þess ber að gæta, að séu hjón bæði gjald-
skyld, eru þau talin (sem einn aðili) til kvæntra karla. Sé hins vegar einungis annað
hjóna gjaldskylt, telst það til ókvæntra karla eða ógiftra kvenna. Fjöldi gjaldskyldra
taldist þannig vera 62 423, og undanþegnir voru 1 889. Samtals voru því 64 312
Tafla 12. Arleg iðgjöld hinna tryggðu 1947—1953.
Kvæntir karlar Ókvæntir karlar Ógiftar konur
I. II. I. II. I. II.
Ár verðl.sv. verðl.sv. verðl.Bv. verðl.sv. vcrðl.sv. verðl.sv.
1947 380 300 340 270 250 200
1948 390 310 350 280 260 210
1949 390 310 350 280 260 210
1950 390 310 350 280 260 210
1951 473 376 425 339 317 258
1952 577 459 518 414 385 311
1953 714 573 643 518 478 384
Tafla 13. Fjöldi gjaldskyldra og undanþeginna 1953.
I. verðl.sv. II. verðl.sv. Alis
A. Almennir iðgjaldsgreiðendur:
1. Kvæntir karlar 13 631 8 544 22 175
2. Ókvæntir karlar 10 075 9 165 19 240
3. Ógiftar konur 10 914 6 641 17 555
B. Sérsjóðsfélagar:
1. Kvæntir karlar 1 596 454 2 050
2. Ókvæntir karlar 397 118 515
3. Ógiftar konur 752 136 888
C. Undanþegnir iðgjöldum 1 059 830 1 889
Alls 38 424 25 888 64 312