Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1953, Side 115
113
Tafla 51. Tryggingartími í iðn- og sjómannatryggingunni árin 1947—1953,
reiknaður í vikum.
1947 1948 1949 1950 1951 1952 1953
Landbúnaður 216 096 201 609 213 194 220 688 225 140 214 195 203 112
Fiskaðgerð og lóðabeiting .... 22 815 17 394 23 149 29 981 22 624 31 827 34 166
Námuvinnsla 3 517 3 172 4 116 3 823 5 992 5 206 4 699
Iðnaður 383 236 402 133 406 657 424 936 424 385 401 837 473 976
Byggingar og húsasmíði 261 965 238 370 223 739 190 304 202 868 204 644 276 537
Samgöngur og verzlun 241 864 240 097 234 783 222 679 233 459 242 252 258 013
Persónuleg þjónusta 57 828 65 559 64 920 66 775 71 621 68 237 77 809
Opinber þjónusta 104 074 103 192 108 801 110 677 117 283 111 506 120 433
Bifreiðastjórn, atvinnubifreiða 212 190 236 948 230 843 220 471 209 417 219 004 232 954
„ einkabifreiða .. 240 698 291 958 262 898 236 141 235 951 256 029 266 751
Skrifstofuvinna 218 394 212 286 211 140 224 453 224 761 236 062 253 887
Starfsstúlkur 62 695 59 613 57 988 54 909 50 017 61 021 67 063
Ýmislegt 57 611 61 884 52 682 60 042 48 855 48 555 41 261
Iðntrygging samtals 2 082 983 2 134 215 2 094 910 2 065 879 2 072 373 2 100 375 2 310 661
Fiskveiðar og flutningar á sjó:
Flutningaskip yfir 100 1. ... 18 438 26 039 28 776 30 498 34 052 34 609 36 778
Fiskiskip yfir 100 lestir .... 49 568 66 921 63 671 52 553 70 934 79 625 71 131
Vélbátar 12—100 lestir .... 68 838 67 784 61 403 65 227 62 072 61 672 60 766
Vélbátar 5—12 lestir 2 872 2 829 2 925 2 609 2 625 2 846 3 387
Vélbátar undir 5 lestum . .. 4 065 4 267 4 364 3 545 3 552 4 354 4 297
Róðrarbátar 30 »9 4 40 111 20 14
Sjómannatrygging samtals 143 811 167 840 161 143 154 472 173 346 183 126 176 373
Tryggingarvikur samtals 2 226 794 2 302 055 2 256 053 2 220 351 2 245 719 2 283 501 2 487 034
Slökkviliðskvaðningar ♦» 149 103 223 1 479 1 508 1 186
í töflu 50 er sýnd skipting tryggingartímans 1953 eftir atvinnuvegum og
starfsgreinum og tölur ársins 1946 birtar til samanburðar. Fjöldi vinnuvikna
befur rösklega tvöfaldazt á þessu tímabili og var 2,5 millj. 1953, en 1,2 millj. 1946.
Stafar þetta fyrst og fremst af því, að tryggingarskyldum störfum fjölgar, svo
sem getið er um á bls. 102 hér að framan. Enn fremur kemur hér til greina fjölgun
starfandi fólks svo og breyttur grundvöllur framtals atvinnurekenda, en frá 1947 er
farið eftir skattframtölum nema við sjómanna- og bifreiðatrygginguna, þar sem
skráningartími ræður. Af samanburði er einnig ljóst, að framtöl eða úrvinnsla er
nokkuð á annan veg 1953 en 1946 að því, er snertir skiptingu eftir starfsgreinum.
Skýrslur um skiptingu vinnuvikna í iðntryggingu eftir starfsgreinum eru að
miklu leyti gerðar af starfsmönnum skattstofunnar. Skýrslur frá erlendum atvinnu-
rekendum á Keflavíkurflugvelli koma þó beint til Tryggingastofnunarinnar, og
fjöldi vinnuvikna í bifreiðatryggingu er reiknaður samkvæmt greiddum iðgjöldum.
í sjómannatryggingu er farið eftir skýrslum lögskráningarstjóra, en á stöku stað
vantar þó skýrslur, og hefur þá verið notazt við áætlun.
Tölurnar eiga við starfsárin 1946 og 1953 að öðru leyti en því, að bifreiða-
tryggingin 1946 nær yfir tímabilið 1. apríl 1945 til 31. marz 1946. í sjómanna-
tryggingunni er starfsár og iðgjaldaár hið sama. Frá 1947 hafa iðgjöld til iðn-
tryggingar verið lögð á og færð til tekna árið eftir, að störfin eru unnin. Þetta
á þó ekki við um iðgjöld erlendra atvinnurekenda á Keflavíkurflugvelli, sem inn-
heimt eru því sem næst jafnóðum, né um bifreiðatrygginguna 1947—1949.
15