Heimili og skóli - 01.03.1973, Síða 9
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
HEIMILI
OG
SKÓLI
1. HEFTI 1973 - 32. ÁRG.
TÍMARIT U M UPPELDISMÁL
CTGEFANDI: kennarafélag eyjafjarðar
Ritið kemur út tvisvar S ári, minnst 60 síður hvort
hefti, og kostar árg. kr. 250.00, er greiðist fyrir 1. jú!í
Ctgáfustjórn:
Valgarður Haraldsson, (ábyrgðarm.).
Kristín Aðalsteinsdóttir.
Jóhann Sigvaldason.
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Guðvin Gunnlaugsson. kennari,
Vanabyggð 9, Akureyri.
PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÖNSSONAR
EFNISYFIRLIT :
Frá ritnefnd ......................... 1
Skólafrumvörpin nýju (B. h.) ......... 2
Hvað sögðu alþingismenn um skóla-
frumvörpin?...................... 10
Norðlendingar segja úlit sitt á grunn-
skólafrumvarpinu................. 21
Kveðja að norðan (minningargrein)
(V. H.) 30
Foreldraþáttur (V. H. og Tr. Þ.) .... 31
Málið og skólinn (B. R.) .............. 34
Hrafnagilsskóli vígður (Sv. P.) .... 39
Byggingarsaga Hrafnagilsskóla (K. S.) 42
Endurskipulagning skólahverfa...... 52
Frá mengjanámskeiði ............... 54
Bréf til kennara (Þýð. V. H.) .... 55
Umsagnir um bækur (V. H.) ........ 59
*
t
X
t
i
i
t
t
t
x
X
I
1
❖
t
❖
!
I
FRA RITIMEFMD
Sú breyting hefur orðið á útgáfustjórn
„Heimilis og skóla,“ að Indriði Ulfsson,
skólastjóri, hefur látið af störfum, skv. eig-
in ósk, en við sæti hans hefur tekið Valgarð-
ur Haraldsson, námsstjóri.
Utgáfustjórn vill við þetta tækifæri
þakka Indriða mikið og gott starf í þágu
tímaritsins og Kennarafélags Eyjafjarðar.
En eins og lesendum blaðsins mun kunn-
ugt, hefur útgáfa þess undanfarin ár hvílt
mest á hans herðum. Hefur það ekki verið
vandalítið verk, þar sem öflun efnis í blað-
ið er að mestu leyti unnið í tómstunda- og
sjálfboðaliðsvinnu, og oft hefur reyndin
orðið sú, að ritstjórinn hefur orðið að skrifa
það að mestu einn.
Við viljum því enn einu sinni skírskota
til lesenda blaðsins og velunnara með það,
að allt aðsent efni til birtingar er afar vel
þegið og eykur á fjölbreytni þess. Eins og
heiti tímaritsins ber með sér, er því ætlað
að vera tengiliður milli heimila og skóla,
en oft hefur viljað við brenna, að sjónarmið
annars aðilans hefur orðið um of ráðandi.
Ritnefndin hefur orðið ásátt um það að
gera þá breytingu á útgáfu ritsins, að í stað
þess að gefa út 5 hefti á ári, verði heftin
aðeins tvö, sem út komi síðla vetrar og á
haustin, hvort um sig 60—70 bls. Með
þessu móti hyggt ritnefndin koma í veg fyr-
ir, að útkoma heftanna dragist óheyrilega
á langinn. Jafnframt verður leitast við að
vanda eftir föngum efnisval í blaðið.
Þá hefur orðið að hækka áskriflargjald
ritsins í 250 krónur vegna gífurlegrar aukn-
ingar á tilkostnaði við útgáfu þess. Það er
von ritnefndar, að áskrifendur og lesendur
blaðsins taki þessum breytingum vel, og
haldi áfram að styðja útgáfuna.
HEIMILI OG SKÓLI — 1