Heimili og skóli - 01.03.1973, Page 63
BREF TIL KEIMNARA
Eftirfarandi kaflar eru sýnishorn úr bók-
inni „Bi'éf til kennara.“ Hún er skrifuð af
8 ítölskum skóladrengjum frá fjallahérað-
inu Barbiana í nágrenni borgarinnar Flór-
enz á Italíu. Þeir tóku sér það verkefni fyr-
ir hendur að kanna og gagnrýna ítalska
skólakerfið. Og árangurinn varð ofangreind
bók, sem einkum er ætlað að skírskota til
fátækra foreldra á Ítalíu. Bókin hlaut þeg-
ar afar góðar viðtökur þar í landi og reynd-
ar alls staðar, þar sem hún hefur verið
þýdd.
Hér er stuðzt við enska útgáfu bókarinn-
ar, en þar skrifar eftirmála fyrrverandi
menntamálaráðherra Breta, Edward Boyle,
sem nú er vararektor háskólans í Leeds.
Hann segir m. a. þetta:
„Bréfið ykkar hafði mikil áhrif á mig og
því langar mig til þess að senda ykkur
kveðju mína. Bréfið ykkar lýsir miklum
geðshræringum, stundum reiði, en jafn-
framt þeirri skoðun, sem aldrei verður
nægilega oft undirstrikuð, að allt of marg-
ir drengir og stúlkur í landi ykkar og mínu
hverfa frá námi án þess að hafa átt þess
kost að sýna raunverulega getu sína í skól-
anum.“
Kœri kennari
Þú manst sjálfsagt ekki eftir mér eða
hvað ég heiti? Við erum svo margir, sem
höfum fallið hjá þér. Hins vegar verður mér
oft hugsað til þín og hinna kennaranna og
þessarar stofnunar, sem þú kallar skóla og
um drengina, sem náðu ekki prófi.
Við, sem féllum, fórum í vinnu úti í sveit,
í verksmiðjur, þar sem við erum þér
gleymdir.
Feimni
Þegar ég byrjaði í unglingaskóla fyrir
tveimur árum, var ég feiminn við þig.
Reyndar hefur feimnin háð mér allt mitt
líf. Þegar ég var lítill drengur, var ég van-
ur að Iíta til jarðar eða læðast meðfram
veggjunum til þess að sjást ekki.
I fyrstu hélt ég, að um einhvern sjúkdóm
væri að ræða, sem herjaði á mig eða alla
fjölskyldu mína. Mamma er þannig, að hún
verður feimin og roðnar, ef hún sér símtól.
Pabbi talar ekki mikið, en hann hlustar og
tekur eftir.
Sein-na hélt ég, að feimni væri sjúkdóm-
ur, sem þjáði einungis fjallabúa. Bændurn-
ir, sem bjuggu niður í dalnum, virtust ör-
uggari með sig. Svo að ég tali ekki um
verkafólkið í bæjunum.
Nú hef ég horft upp á það, að því er í
raun og veru svipað farið og okkur. Verka-
fólkið í bæjunum lætur „pabbadrengina“
hrifsa til sín allar ábyrgðarstöður í stjórn-
málaflokkunum og þar með öll þingsætin.
HEIMILI OG SKÓLI — 55