Heimili og skóli - 01.03.1973, Qupperneq 67
UMSAGNIRUM BÆKUR
Frá Ríkisútgáfu námsbóka
Lestrarhók. Nýr flokkur. — 1. og 2. hefti.
Bjarni Bjarnason, Jón J. Þorsteinsson og
Yilberg Júlíusson völdu efnið að mestu úr
safni Steingríms Arasonar.
Bækur þessar eru gamlir kunningjar, en
koma nú fyrir sjónir okkar í nýjum og
glæstum búningi. Og er það ekki sízt að
þakka ágætum teikningum Baltasar.
Ber 1. heftið heitið Hvíti kjóllinn, en 2.
heftið nefnist Litla Ljót, hvort tveggja eftir
fyrstu sögu bókanna. Lesefni þetta er eink-
um ætlað til lestrarkennslu og er afar gott
sem slíkt. Setningar eru stuttar og nokkuð
um endurtekningar, en samt er efnið áhuga-
vekjandi og nær vel til barnanna.
Bókunum fylgja vinnubækur og er mik-
ill fengur að þeim. Yinnubækurnar hafa
tekið saman skólastjórarnir Ásgeir Guð-
mundsson og Páll Guðmundsson.
Þegar við Kalli vorum strákar.
Höfundur Orn Snorrason.
Hér á áram áður var þessi bók mikið
lesin af nemendum í Barnaskóla Akureyr-
ar. Og gott er, ef hún var ekki beinlínis
lesin upp til agna.
Eg minnist þess, að fyrir allmörgum ár-
um hafði ég í bekk hjá mér dreng, sem átti
í erfiðleikum með lesturinn. En allt í einu
brá svo við, að strákur varð fljúgandi læs
á mjög skömmum tíma. Þegar ég innti hann
eftir því, hvað komið hefði fyrir, svaraði
drengur: „Ég fékk bara svo skemmtilega
bók, að ég varð að lesa hana aftur og aft-
ur.“ Og bókin var Þegar við Kalli vorum
strákar. Ég ætla, að barnabók geti ekki
fengið öllu betri meðmæli.
Það eru því gleðitíðindi, að Ríkisútgáfan
skuli hafa gefið þessa bók út, og ekki spill-
ir það ánægjunni, að Halldór Pétursson
hefur myndskreytt bókina með sínu sér-
stæða og skemmtilega handbragði.
Og í lokin, því ekki að skrifa fleiri
barnabækur, Orn?
Sóley.
Höfundur Kristín S. Björnsdóttir.
Þessi litla bók er ætluð nemendum í
yngri bekkjum barnaskólans. Hún hefur
þann kost til að bera, að vera hvort tveggja
í senn gott og fræðandi lesefni og vel við
hæfi lesþroska barna á þessu aldursskeiði.
Hefur höfundi tekizt vel að sameina þessa
þætti og er vonandi, að hann láti meira frá
sér heyra í framtíðinni.
Myndskreyting bókarinnar nýtur sín ekki
lil fulls. Ég ætia, að allar myndir hefðu átt
að vera í litum. Það hefði jafnframt aukið
mjög á gildi þeirra fyrir textann. Myndirn-
ar teiknaði ung listakona, Þorbjörg Hösk-
HEIMILI OG SKÓLI — 59