Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Qupperneq 6

Læknaneminn - 01.11.1965, Qupperneq 6
6 LÆKNANEMINN runalega var sú kenning eða til- gáta, að epilepsia og schizophrenia væru einhvers konar andstæður, og átti svo að leitast við að útrýma hinu meira böli með hinu minna (von Medxma ’35). Sömuleiðis má með sama fyrirvara nefna notkun Insulins við schizophreni. Uppruna- lega var það notað sem róandi og lystaukandi lyf, bæði í lækninga- tilraunum við delerium tremens (H. Steck ’32) og við aðrar psyc- hoses acutae (H. Steck ’33). Rák- ust menn í sambandi við lækninga- tilraunir við schizophreni á nýti- legar verkanir að talið var af hypoglycemi (coma og/eða con- vulsiones) fyrir tilviljun eða klaufaskap, ófullkomna tækni (Sakel ’33). Var á sínum tíma tal- ið, að Insulincoma-meðferðin væri sérvirk (specifik) við schizophreni, en ekki aðeins til þess að ráðast á einkenni hennar. Mjög eru menn farnir að dofna í þeirri trú, þó að það fagnaðarerindi þætti mikið í fyrstu. Nýtt blað var hins vegar brotið í sögu lyfjameðferðar í geðsjúk- dómafræði árið 1952, þegar skýrt var á læknaþingi í Luxembourg frá verkunum af nýju lyfi, sem reynt var í Frakklandi (Delay & Deniker): Largactil. Um svipað leyti var sögð áþekk saga af efni unnu úr Rauwolfia serpentina. Voru það svissneskir vísindamenn, sem hreinunnu Serpasil úr rótinni og sýndu fram á verkan þess á psykotisk einkenni. Því líkast var, að við þetta hvort tveggja risi ný alda áhuga og vonar um, að finna mætti nýjar leiðir, mildari og síð- ur hættulegar, til lækninga í þess- um efnum. Hefur síðan hvert lyfið á fætur öðru verið lagt fram. Kom- ið hefur hins vegar í ljós, að eðli langflestra þessara lyfja hefur reynzt svipað, svo að skipta má þeim í fáeina flokka, sem eru meira og minna frábrugðnir sín á milli að verkan og innri gerð efnanna. Skulu nú nefndir þeir helztu, aðal- einkenni þeirra, kostir og lestir. Skulu þá fyrst nefnd fentiazin. Fyrsta lyfið í þessum flokki er Largactil, sem hefur haldið velli fram á þennan dag. Þrátt fyrir all- an þann fjölda meira og minna skyldra lyfja, hefur ekkert komið fram, sem örugglega bæri af Larg- actili, þegar bornar eru saman lækningaverkanir annars vegar og aukaverkanir og eituráhrif hins vegar. Efnafræðilegur munur þess- ara lyfja er mismunandi hliðar- keðjur við fentiazin-kjarnann í sætunum, sem táknuð eru með R-1 og R-2. í fyrra sætinu hefur hingað til aðallega verið notað: 1) alifatisk hliðarkeðja, 2) keðja með piperidin-hring, 3) keðja með piperazin-hring. I R-2 hafa hins vegar verið tengd ýmis ein- faldari sambönd eða einstök atóm, ýmist metoxy-, acetyl- eða thio- metyl-hópar, klóratóm, trifluo- metyl- eða dimetylsulfamoyl-hópar (taUð upp í röð vaxandi styrkleika, en aukaverkanir látnar liggja á milli hluta). Að telja upp hvað eina af þess- um efnum og gera grein fyrir þeim hefði litla þýðingu í yfirliti eins og þessu, en leitazt skal við að nefna þau helztu, sem náð hafa verulegri fótfestu og viðurkenn- ingu og gera þá grein fyrir þeim. Af þeim efnum, sem hafa alifat-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.