Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Blaðsíða 23

Læknaneminn - 01.11.1965, Blaðsíða 23
LÆKNANE MINN a.m.k. Þetta er ekki kennslusjúkra- hús, enda er mjög erfitt að kom- ast inn á þau. Skömmu á eftir mér kom kanadiskur læknastúdent, sem ætl- aði einnig að dveljast þarna mán- aðartíma. Okkur var vísað til her- bergja í sömu álmu og læknarnir, og voru þau hin vistlegustu á enska vísu. Á sjúkrahúsinu voru aðeins tvær deildir, handlæknis- og lyflæknis- deild, auk venjulegra rannsókna- deilda og slysadeildar, en þangað komu acut-tilfelli bæði medicinsk og kirurgisk, og þaðan voru sjúkl- ingarnir fluttir á deildirnar eftir því sem við átti. Þar voru alltaf tveir menn á vakt í einu, einn af hvorri deild. Við Kanadamaðurinn vorum báðir á lyflæknisdeild. Þar voru þrír consultantar, sem lögðu inn sjúklinga og stunduðu þá. Þeir voru eins konar yfirlækn- ar og allir enskir. Næstur þeim að tign var registrar, skozkur strák- ur, og var hann eins konar deild- arlæknir, en svo voru housemen eða aðstoðarlæknar, einn fyrir hvern consultant. Consultantarnir voru þeir einu, sem ekki bjuggu á sjúkrahúsinu. Húsmonnirnir voru frá ýmsum samve’dislöndum, mest Pakistan og Indlandi. Hjúkrunarkonurnar voru af öllum þjóðernum. Þær æðstu voru þó enskar, en hinar flestar svartar, frá ýmsum sam- veldislöndum. Hjúkrunarnemarnir voru allar nema ein af gula eða svarta kynstofninum. En eitt hafði þetta fólk sameiginlegt: Það var allt gott fólk og gaman að kynnast því. Strax annan daginn fórum við á stofugang. Stofurnar voru mjög svipaðar og á Kleppi, tvær á hverri hæð, önnur fyrir karlmenn og hin fyrir konur. Á hverri stofu voru ca. 20 rúm, og var hægt að tjalda utan um hvert fyrir sig, ef skoða þurfti sjúkling. Ýmis merkileg og sjaldgæf sjúk- dómstilfelli voru þarna, en flestir höfðu sjúklingarnir, auk annars, kroniskan bronchitis, en það virð- ist vera mjög algengur sjúkdómur þarna. Einn consultantinn var svo vin- samlegur að útvega okkur leyfi til að fylgjast með demonstrationum við The London Hospital Medical College (University of London), og fórum við þangað og höfðurn mikið gagn og gaman af. Þar er svipað fyrirkomulag og hjá okkur. Einn stúdentinn tekur journal og skoðar sjúklinginn og les það svo fyrir hópinn og setur sína diagnosu. Aldrei er þó tekið með í söguna nema það, sem máli skiptir í við- komandi sjúkdómi, og sparast því mikill tími. Hinu er öllu sleppt. Þannig var oft hægt að fara yfir tvo sjúklinga á 45 mínútum. Ann- að var öðruvísi en hér: Nemend- urnir helltu spurningum vfir kenn- arann alls ófeimnir. Mættum við gera meira af því. Ég varð að athlægi, þegar ég sagðist lesa Cecil í medicin. ,,Þú átt ekki að lesa svona stóra bók fyrir kandídatspróf, þú gleymir því hvort sem er aftur, sem í henni stendur. Þú átt að lesa litla bók, t.d. Davidson, og læra hana vel. Ef þú gerir það, þá kanntu nógu mik- ið, og svo geturðu notað Cecil ti) uppsláttar. Það er betra að kunna Davidson vel en Cecil illa. Eftir kandídatspróf geturðu svo lesið Cecil“! Þetta sagði skozki registr- arinn, og hinir voru sammála. Vafalaust er mikið til í þessu, og ég veit um menn, sem hafa gert þetta hér og gengið vel, en ekki mundi ég nú þora það! Kanadíski stúdentinn sagði, að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.