Læknaneminn - 01.11.1965, Blaðsíða 54
LÆKNANEMINN
H
ingastjóri hefur umboð til að ráða í,
skulu þeir ganga fyrir, sem lengst eru
komnir í námi (vide infra), þó með
þeirri undantekningu, að enginn fái
sömu stöðuna tvívegis, ef annar býðst.
Þeir, sem eru í sama hluta, teljast
jafnlangt komnir í námi. Nú sækja
tveir eða fleiri úr sama hluta um laun-
aða stöðu, og skal þá sá hljóta, sem
minnstar tekjur hefur haft á launuðum
námskeiðum. Ef ekki næst samkomu-
lag, skal hlutkesti ráða. Ráðningastjóri
skal beita sér fyrir því af fremsta
megni, að skipað skuii í aliar stöður
af sanngirni, svo að sem réttiátast
skiptist milli manna.“
Ennfremur voru nokkur ákvæði um
námskeið einnig látin ná yfir aðrar
stöður og aðrar minni háttar breyting-
ar gerðar.
Urðu um tillögur Gunnars og skiln-
ingsatriði í sambandi við þær ailfjör-
ugar umræður, bæði í pontu og utan
hennar, og var erfitt að henda reiður
á því öllu. M.a. vitnaði Guðmundur Sig-
urðsson, II. hl., í athuganir, sem hann
hafði gert, og taldi, að nóg yrði af
kandídötum í stöður þeirra allt til ára-
móta 1966—’67, nema á handlæknis-
deild, og lítið útlit væri því fyrir laus-
ar kandídatsstöður handa stúdentum.
Loks voru tillögur Gunnars sam-
þykktar óbreyttar, nema hvað 8. gr.
var breytt samkvæmt tillögu Baidurs
Fr. Sigfússonar, III. hl. Tókust nú svip-
aðar umræður að nýju, og véfengdu
þeir Jón G. Stefánsson, III. hl., og
Baldur niðurstöður Guðmundar og færðu
rök að máli sínu.
Nokkur fleiri mál voru rædd á fund-
inum. Kom m.a. fram í fundarbyrjun,
að yfirlæknir Hvítabandsins hefði sam-
þykkt að ráða stúdenta í síðasta h’.uta
til eins mánaðar í senn, en miðhluta-
menn verða að ráða sig til tveggja mán-
aða eins og áður.
Kvikmyndasýningar á vegum félags-
ins voru með alfjörugasta móti s.l. vet-
ur, eða átta talsins, og voru alls sýnd-
ar tuttugu og tvær kvikmyndir um hin
margvíslegustu efni. Voru þær aða'.lega
fengnar frá lyfjaframleiðendunum
Squibb og Pfizer, en einnig nokkrar frá
brezka sendiráðinu og Krabbameinsfé-
lagi Islands.
Ennfremur hafa verið haldnar þrjár
sýningar í sumar. Eiga sýningastjórar
félagsins miklar þakkir skilið fyrir
dugnaðinn, og mættu sýningarnar
gjarna vera betur sóttar en verið hef-
ur, þar eð oft er um úrvalsmyndir að
ræða.
Blóðgjafaáróður sá, er Auðólfur Gunn-
arsson, III. hl., hieypti af stað í Háskói-
anum í vetur, bar aiigóðan árangur.
Skráðu 139 stúdentar sig á lista þeirra,
sem reiðubúnir eru að gefa blóð, þegar
til þeirra verður leitað. Áberandi var,
hve mikill hiuti þeirra eru læknanem-
ar, og eins hitt, hve margir þeirra
höfðu áður gefið blóð og vissu um
blóðfiokk sinn.
Ljósprentun fyrstu árganga Lækna-
nemans, er drepið hefur verið á í fyrri
blöðum, hefur ekki hlotið þær undir-
tektir, að unnt sé að ráðast í hana að
svo stöddu, og þykir okkur það miður
farið.
Hins vegar barst í sumar óvæntur
glaðningur inn í félagsherbergi lækna-
nema, þar sem voru tvö gömul eintök
af Læknanemanum, fjölrituð og fágæt.
Greip ritstjórinn þau auðvitað hið snar-
asta og læsti niður í kassa með annarri
blaðaeign félagsins, en ekki er enn vit-
að um gefanda, þrátt fyrir ítrekaðar
fyrirspurnir.
Ennfremur hefur hafzt upp á fyrsta
fjölritaða blaðinu, sem Arinbjörn Kol-
beinsson gaf félaginu fyrir nokkrum
árum síðan, svo að nú eru fengin þrjú
elztu og fágætustu eintökin, og hafa
þau verið sett í bókband. Einnig
voru þar með nokkur blöð frá Gunn-
laugi Snædal, og loks hefur Halidór
Halldórsson látið okkur í té fjögur
blöð. Kunnum við þeim öllum beztu
þakkir fyrir, ekki sízt hinum óþekkta
velunnara okkar. Vantar þá bara fjög-
ur blöð (6., 7. og 8. árg., fyrra blað-
ið), áður en unnt er að binda safnið.
Heitum við enn á lesendur að hjálpa
okkur um það, sem á vantar.
Þau ágætu tíðindi hafa gerzt i sumar,
að Fjórðungssjúkrahúsið á Akranesi
býður nú læknanemum aftur launað
námskeið, eins og áður tíðkaðist. Kom
hinn fyrsti þaðan um miðjan jú!í s.l.
og hafði í fórum sínum drög að launa-
samningi, sem bíður samþykktar Félags
læknanema og stjórnar sjúkrahússins.
Er þar gert ráð fyrir, að stúdentinn
taki sjúkraskrár, sjái um útskriftir,
aðstoði við uppskurði og vinni rann-
sóknastörf, þegar brýna nauðsyn ber
til, en eigi frí um helgar. Mánaðarlaun
eru kr. 15.600,00 og fríar ferðir, fæði
og húsnæði.