Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Page 18

Læknaneminn - 01.11.1965, Page 18
18 LÆKNANEMINN Meðferð. Ef sjúklingur er með- vitundarlaus, beinist meðferðin fyrst og fremst að því að halda öndunarvegum vel opnum og hreinum, koma í veg fyrir öndun- arfæra-infectionir, afstýra því að sjúklingur fái legusár, hirða um blöðru- og þarmastarfsemi og sjá honum fyrir mátulegu fæði og vökva. Ef merki finnast um hækkandi intracranial þrýsting, skal meðhöndla hann á viðeigandi hátt (hypertoniskar upplausnir rectalt eða í æð). Koma skal í veg fyrir, að líkamshiti hækki úr hófi fram, með því að kæla sjúkling eftir þörfum. Rökrétta meðferðin á blæðingu inn í heilavefinn er aðgerð, þar sem numin er brott blóðstorka og bundið fyrir hina blæðandi æð. Sjaldan er þó mögulegt að beita þessari meðferð hjá fólki, sem er komið yfir miðjan aldur, og ekki er hún ráðleg, ef neurologiskar skemmdir eru þegar orðnar mikl- ar. Við embolia eerebri skal með- höndla þann sjúkdóm, sem til grundvallar liggur. Við thrombosis cerebri þykir anticoagulant meðferð vafasöm, a.m.k. ef sjúklingur er með veru- legan háþrýsting. Physiotherapy skal hefja í öll- um tilfellum, eins fljótt og ástand sjúklings leyfir. B. Purpura cerebri. Purpura cerebri eða háræða- blæðingar í heila koma fyrir, eins og að ofan getur, við toxiskar verkanir á háræðar heilans. Valda þær drepi (necrosis) í háræða- veggjunum, svo að blóð vætlar út úr æðunum og skemmir heilavef- inn umhverfis. Er talið, að í mörg- um tilfellum sé um að ræða of- næmissvörun (allergi) gegn að- skotaefnum, t. d. purpura cerebri af völdum salvarsans, sulfonamiða og scarlatina. Einkenni eru gjarnan bráð trufl- un á meðvitund, oft samfara delir- ium, krampar, truflanir á starfi augnvöðva og truflanir á pyramid- alkerfinu. Hvernig þessi einkenni fléttast saman, fer eftir því, hvar blæðingar í heila eru mestar. Stundum koma líka fram purp- ura-blæðingar í húð, og með augn- speglun sjást oft blæðingar í augn- botnum. Mænuvökvi er stundum blóðug- ur, en það þarf þó ekki að vera. Horfur og meðferð. Allar tox- iskar háræðablæðingar eru hættu- legar mjög og enda oft í dauða. Til meðferðar hafa verið reynd antihistaminica og K-vítamín. V. Hæmorrhagia subaraclmoidalis. Orsakir. Algengustu orsakir eru: 1. Aneurysma intracranialis, sem rofnar. Það getur verið tvenns konar: a. Aneurysma congenitum, sem ýmist er til staðar þegar við fæð- ingu eða myndast síðar á ævinni vegna meðfædds galla í æðaveggj- unum (venjulega þar sem æð greinist). Slíkt aneurysma getur verið aðeins eitt, eða mörg eru í sama einstaklingi. Tíðust eru þau á a. carotis interna, a. cerebri media og a. communicans anterior. Aneurysma getur sprungið þegar á barnsaldri, en í ca. 50% tilfella koma einkenni fyrst fram á 40— 55 ára aldri. Aneurysma congeni- tum er algengara meðal kvenna en karla. b. Aneurysma mycoticum er sjaldgæft nú orðið.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.