Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Side 34

Læknaneminn - 01.11.1965, Side 34
LÆKNANEMINN Tómas Helgason, prófessoB1 — Við vorum að heyra, að taka ætti upp nýtt námskeið í geðlækn- isfræði í vetur. — Já, ætlunin er að hafa nám- skeið fyrir miðhlutastúdenta, þar sem farið yrði yfir almenna geð- sjúkdómafræði, umgengni við sjúklinga, geðlæknisvitjun, töku sjúkraskrár og þess háttar. — Er þá ætlunin að kenna eftir einhverri sérstakri bók? — Ekki fyrst í stað að minnsta kosti. Ég hef hugsað mér þetta fremur í samtals- og fyrirlestra- formi, þar sem rætt yrði um, hvernig umgangast eigi sjúklinga og bregðast við undir ýmsum kringumstæðum, og sem sýni- kennslu, þar sem talað yrði við sjúklingana að stúdentunum áheyrandi. Þessu námskeiði ætti eiginlega að vera lokið, áður en stúdentarnir hefja verknám á Kleppi, sem ætti þá að notast þeim betur en áður. — Fyrirlestrarnir í byrjun síð- asta hluta haldast þá áfram? — Já, þetta er viðbót, m.a. ætl- uð til að geta nýtt þann tima bet- ur, en þar hef ég hingað til þurft að nota fyrstu 5—10 tímana til að tala um almenna geðlæknis- og geðsjúkdómafræði. Þær umræður mun ég flytja fram í þetta nýja námskeið og hafa hitt eingöngu fyrir sérhæfari geðlæknisfræði, en þar verður þá meiri tími til að tala um neurosur og meðferð þeirra, geðvillur og vanvitahátt, sem hafa orðið meira eða minna út undan vegna tímaskorts. Þetta hefur einkum verið bagalegt með neurosurnar, þar sem mikill hluti almennrar læknisvinnu er einmitt fólginn í greiningu og meðferð þeirra. Annars mun þetta nýja nám- skeið líka snerta það efni að nokkru leyti, þ.e.a.s. samtalsform- ið, hvernig taka á sjúkrasögu, um- gangast sjúklinga og haga orðum sínum við þá, raunar ekki ein- göngu geðsjúklinga, heldur sjúkl- inga almennt. Hvergi er þó nær- færni og háttvísi í umgengni þýð- ingarmeiri en við rannsókn og meðferð geðsjúklinga. Þetta nýja námskeið ætla ég fyrir þá stúdenta, sem eru á fyrsta misseri miðhluta, en raunar hefðu þeir þurft að fá það í síðasta iagi strax að loknu prófi úr fyrsta hluta, áður en þeir hefja verknám um sumarið, og um leið almennt námskeið í skoðun sjúkra og töku sjúkrasögu. Stúdentar koma sum- ir á Klepp beint úr prófi, og það er oft undir hælinn lagt, hvort læknarnir muna eftir að kenna þeim almenna skoðun, ef þeir hafa ekki næga einurð í sér til að biðja um leiðsögn. Ég hef raunar alltaf brýnt það fyrir stúdentum, að beri þeir sig ekki eftir björginni, fáist ekki neitt. Við, sem eigum að heita kennarar, þreytumst á að mata stúdentana alltaf með skeið, ef við erum ekki vissir um lystina, en erum hins vegar skyldugir að svara því, sem spurt er um, enda er það miklu skemmtilegra kennsluform. Það er líka alveg sama, hve vitlaust er spurt, því að stúdentar eru ekki fæddir með þessa vizku fremur en við, sem höfum þrælað við að afla okkur hennar í tuttugu ár. Menn eru ótrúlega hræddir við að koma upp um, að þeir viti ekki allt, ég veit varla hvers vegna, kannski vegna þess að við teljum okkur gáfuð- ustu þjóð í heimi! En þetta er

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.