Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1965, Side 51

Læknaneminn - 01.11.1965, Side 51
LÆKNANEMINN 51 Maríuóður Húnvetnings (Lag: María, María). Eitt sinn fæddist svo ósköp lítil María, María, með niðdimm augu og' nebbatrítil, María, María. Hún andaði þegar ótt og títt, einnig hún grenjaði milt og þýtt. Maria, María, María, María, María, María! Utan við skjáinn angaði vorið, María, María. Eitt af lömbunum enn var borið, María, María. Um alla sveitina ýkjulaus ánægja var af þeim litla haus. María, María, o.s.frv. Fljótlega óx hún að vizku og viti, María, Maria. Varð nú piltanna vonabiti, María, María. Yfir þá sveitina eldur brauzt, er aldáða stúlkan fór brottu eitt haust. María, María, o.s.frv. Næsta skrefið var nærkonuskólinn, Maria, María. Fannst víst mörgum þá fölna sólin, María, Maria. Streymdu inn konur á steypinum, sem stúlkan fór um með höndunum. María, María, o.s.frv. Utvíkkunin var ekki fengin, María, Maria, er tróð hún sér inn til að toga í drenginn, María, María. Hún kippti og rykkti og reyndi að ná í rassinn á kauða, sem fremstur lá. María, María, o.s.frv. Krakkinn fæddist í fögrum boga, María, María. Og augun stúdenta ákaft loga, María, María. Óska þeir sér með ástarsvip að eignast einn slíkan ljósugrip. María, María, o.s.frv. Framtíðin ein nú fær að vita, María, Maria, hvort farirðu áfram með fjöri og hita, María, María, hvort piltarnir áfram eftir þér augunum renni á göngum hér. María, María, María, María, María, María. Páll frá Breiðabliki. LEIÐRÉTTiiMGAil Okkur hefur heldur betur orðið á í messunni við prófarkalestur viðtals við prófessor Steingrím Baldursson í síðasta blaði, og biðj- um við hann velvirðingar á mis- tökunum. I fyrsta lagi hafa fallið niður þrjár línur úr síðustu grein á bls. 22, öðrum dálki, en rétt hljóðar hún þannig: „— Um langt árabil voru kennd- ar við læknadeild Lærebog i uorganisk kemi og Lærebog i organisk kemi eftir Einar Biil- mann. Bækur þessar komu út í mörgum útgáfum og voru seinni útgáfurnar endurskoðaðar af Hakon Lund. Árið 1954 kom út Lærebog i uorganisk kemi eftir Hakon Lund, og var sú bók all- miklu styttri en Lærebog i uorg- anisk kemi eftir Biilmann. Jafn- framt var hætt að gefa bók Biil- manns út.“ I öðru lagi hefur dottið innan úr málsgrein á bls. 23, öðrum

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.