Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1970, Side 68

Læknaneminn - 01.06.1970, Side 68
58 LÆKNANEMINN á legu miðlægra vefja heilans er, að köngull þarf ekki að vera kalk- aður til þess að fá áreiðanlegar niðurstöður við rannsóknirnar. Þar sem þessum rannsóknum er beitt í dag, eru þær ekki notað- ar einar sér, heldur til stuðnings öðrum rannsóknum. Nákvæmni þeirra er þó mikil og gefur réttar niðurstöður í 95—98% tilfella, borið saman við niðurstöður af röntgenmyndum, heilaritum og aðgerðum. 3. Notkun í fæöinga- og kvensjúkdómafrœði. Hljóðmyndir af kviðar- og grindarholi. í þessum greinum hafa út- hljóð verið notuð í tiltölulega stuttan tíma, og hagnýtt gildi þeirra er nú almennt viðurkennt. Eins og áður hefur verið rætt um, er hér ekki gert ráð fyrir, að þær séu notaðar eingöngu, heldur með öðrum rannsóknmn. Kostur rann- sókna með úthljóðum er, hversu skaðlausar þær reynast sjúkling- um. Þess vegna er unnt að endur- taka rannsóknir eins oft og þurfa þykir, en slíkt er varhugavert, meðan röntgengeislar eru ein- göngu notaðir. í fæðingafræði er bæði notuð línusjá og sneiðsjá (A-scop og B- scop). Með línusjá er hægtaðmæla höfuðbreidd fósturs, sem orðið er 7 mán. eða eldra (Donald et al. mældu fóstur þetta af mikilli ná- kvæmni í 95% tilfella, skekkja aðeins ±3 mm). Það er því mögu- legt að fylgjast með vexti fóstur- höfuðsins. Við rannsókn á 50 kon- um í Bandaríkjunum kom í ljós, að meðalbreiddaraukning á viku síðustu 2 mánuðina var 1,8 mm. Á grundvelli breiddarmælinga er síðan kleift að áætla þyngd fóst- ursins. Sneiðsjáin gefur sömu möguleika, en þá er þyngdin áætluð út frá mælingum á brjóst- grind fóstursins. Þannig hefur mönnum tekizt að reikna út, að meðal þynging fósturs á viku síð- ustu mán. er 190 g. Með örbylgjum hefur einnig tekizt að greina eftirfarandi: 1) Líknarbelg í legi, sem ekki er eldri en 6—8 vikna gamall. 2) „Anencephalia“ og vatnshöfuð (hydrocephalia ). 3) Legköku, en rannsóknir fram- kvæmdar í Bandaríkjunum sýndu réttar niðurstöður um staðsetningu í 97% tilfella. Ef legkakan lá öll á afturvegg legsins, var ekki mögulegt að greina hana með þessari að- ferð. (Mynd 5). 4) Blöðrufóstur (hydatidiform mole) á byrjunarstigi. Þetta mun eina aðferðin til þeirrar greiningar, áður en það losnar (á ca. 16. viku) frá leginu. 5) Fósturlát, sem í mörgum til- vikum er hægt að greina inn- an nokkurra klukkustunda. Með röntgengeislum er hins vegar ekki hægt að staðfesta grunað fósturlát, fyrr en nokkrar breytingar hafa orðið á fóstrinu, t. d. misgengi höf- uðbeina. I kvensjúkdómafræði og reynd- ar við rannsóknir á kviðarholi yfirleitt er sneiðsjáin notuð en þá eru teknar myndir í tveim vídd- um. Með þessari aðferð geta menn rannsakað lögun einstakra líffæra, t. d. garna, fylltrar blöðru, legs, hryggsúlu, nýrna, milta og lifrar. Bæði ein sér og með öðrum rann- sóknum hefur notkun úthljóða mikið gildi til að greina á milli óholra (solid) æxla og blöðru- æxla (cystic tumors); skinuhols- (cavum peritonei) og blöðru-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.