Læknaneminn - 01.06.1970, Blaðsíða 81
LÆKNANEMINN
60
Kjarfan R. Guðmundsson, dósent:
SJÚKRA TILFELLI
Um er að ræða 61 árs karlmann,
sem lagður var inn á Taugasjúk-
dómadeild Landspítalans í des-
ember 1969, vegna höfuðmeiðsla í
sambandi við yfirlið.
Helztu atriði í heilsufarssögu
eru sem hér segir: Á 28 ára aldri
fékk sjúklingur brjósthimnu-
bólgu upp úr inflúenzu. Á 47—48
ára aldri fékk hann lungnabólgu
þrisvar sinnum. I febrúar 1968
var hann á Borgarspítalanum
vegna magasárs og í september
1969 var tekinn hluti af magan-
um á Landspítalanum. Mánuði áð-
ur hafði hann verið vistaður á III.
deild Landspítalans vegna lið-
verkja, sem verið hafa viðloðandi
s. 1. 10 ár, og var hann grunaður
um collagen-sjúkdóm. Giktarpróf
reyndust eðlileg, og smásjárskoð-
un á vöðvasneið var eðlileg. Það
fannst mikil spondylarthrosis,
einkum í hálshrygg. Sjúkdóms-
greining var depressio mentis
og arthrosis variae, og var hann
brautskráður 21. 8. 1969 með
Marplan 10 mg X 3.
Sjúklingur leitaði nú til tauga-
læknis, sem fann lömun og rýrnun
á hægri griplim og fasikulationir.
í ráði var að leggja hann inn á
Taugadeildina vegna gruns um
amyotropiska lateral sclerosis.
f september s.l. byrjaði sjúkl.
að fá yfirliðaköst. Köst þessi
komu oftast fyrirvaralaust, og
það er fullkomið meðvitundar-
leysi. Komu þau einkum ef hann
reis snögglega upp, eða ef hann
stöðvaðist eftir gang eða sneri sér
skyndilega við. Stundum hefur
hann fengið titring um sig allan
án þess að missa meðvitund, jafnt
báðum megin. Yfirliðaköstin komu
stundum oft á dag. Hann jafnar
sig fljótt, en var stundum slappur
í tali á eftir og stundum með tví-
sýni. Hann hefur oft meitt sig á
höfði við fallið, einkum þó 3 vik-
um og 4 dögum áður en hann var
lagður inn bráðainnlagningu þann
2. 12. 1969. Köst án meðvitundar-
leysis hafði hann einnig fengið og
datt þá til dæmis niður á hné.
Við komu á deildina var sjúkl.
skýr og nokkuð eðlilegur í fram-
komu. Engar taltruflanir. Hann
kvartaði um höfuðverk vinstra
megin, sem hann hafði haft s.l. 2
vikur. Vinstra megin var mar-
blettur á enni og dálítið glóðar-
auga. Allar heilataugar voru eðli-
legar. Augnbotnar voru eðlilegir,
svo og sjónsvið og augnhreyfing-
ar. Ljósop voru jöfn og svöruðu
eðlilega. Það var engin lömun á
munnvikum. Vöðvar í upphand-
leggjum voru í rýrara lagi, og það
var dálítil lömun þar. Engar
fasikulationir sjást. Gangur var
dálítið óöruggur með fallhneigð til
vinstri.
Síðar, þann 13. og 19. desember,
fannst ataxi við hægri fingur nef-
próf og bæði hæl-hné próf.
Dvsdiadochokinesis á hægri hendi.
Létt lömun á hægri útlim. Líflegri
reflexar á hægri neðri útlim og
það var vafasamur Babinski