Læknaneminn - 01.12.1976, Page 9
b) Stuðlarit II
1) Greinilega koma í ljós sömu atriði og í stuðla-
riti I.
2) Augljós munur dánartalna sveina og meyja hvort
heldur 0-1 árs eða 1-4 ára.
3) Dánartölur meyja 0-4 ára eru nánast þær sömu
og dánartölur sveina 0-1 árs, og fer sá munur
fremur vaxandi en minnkandi.
4) 1941—’45 létust 17,5% fleiri sveinar en meyjar,
en 1971-’75 er þessi munur orðinn 30,8%. Þetta
stafar af því, að bilið milli línanna, sem sýna
heildardánartölur sveina og meyja, er nær kon-
stant. Því hækkar hlutfallið með lækkandi dán-
artölu (sbr. stuðlarit II og línurit 1-1).
5) Línurit 1-1 og 1-2 eru bæði mynduð út frá
stuðlariti II. Á línuriti 1-1 eru teiknaðar upp
kúrfur yfir dánartölu sveina 0-4 ára annars veg-
ar og meyja 0-4 ára hins vegar. Á línuriti 1-2 er
síðan efri kúrfan (1) heildardánartala sveina og
meyja 0—4. ára 1951-’75. Neðri kúrfan (2) á
línuriti 1-2 er þannig mynduð, að dánartala í 1.
viku er dregin frá heildardánartölu 0-4. ára
barna þannig að burðarmálsdauði er ekki hluti
af þeirri dánartölu. Rétt er að geta þess að and-
LÆKNANEMINN
7