Læknaneminn - 01.12.1978, Page 7
Augnhagur Borgfirðinga
Yfirlit um sjón, sjónlag og algengustu augnsjúkdóma
í Borgarnesslœknisumdœmi
Guðmundur Björnsson læknir
Samantekt
Sagl er frá augnhag 1352 einstaklinga í Borgarness-
læknisumdœmi, sem er 27,0% af íbúum 0-39 ára og
62,2% af íbúum 40 ára og eldri.
Greint er frá sjónskerpu með besta gleri í aldurs-
flokkum. Borin er saman sjónskerpa eftir 50 ára ald-
ur meðal glákusjúklinga og ekki-glákusjúklinga.
Sjónlag meðal 1240 einstaklinga er flokkað í ald-
ursflokknum 5—39 ára og 40 ára og eldri.
Sagt er frá augnsjúkdómum og afleiðingum augn-
slysa. Einkum er fjallað um þá sjúkdóma, sem tíð-
ast orsaka sjóndepru og geta leitt iil blindu: Hæg-
fara gláka, drer (cataract) og ellirýrnun í miðgróf
sjónu.
Talið er að flest ef ekki öll glákutilfelli í hérað-
inu séu tíunduð og gefi því allrétta mynd af algengi
sjúkdómsins. Heildaralgengi (overall prevalence) er
6,5% meðal 50 ára og eldri (7,9% karlar, 4,5%
konur). Þróun sjúkdómsins gengur liraðar meðal
karla og komast fleiri á lokastig. Algengasti fylgi-
kvilli gláku er drer, sem er algengari meðal gláku-
sjúklinga en ekki-glákusjúklinga. Heildaralgengi
drers er um 10% eftir fimmtugt og eftir áttrœtt er
um helmingur með sjónskerðingu af þess völdum.
Ellirýrnun í miðgróf er með svipað algengi og eykst
hröðum skrefum með aldri.
Enginn sjúklingur fannst með sykursýkisbreyt-
ingar í augnbotnum. Algengi framangreindra sjúk-
dóma er borin saman við algengi í Framingliam
könnuninni í U.S.A. Reyndist algengið vera mjög
svipað í báðum könnunum, nema sykursýkisbreyt-
ingar í augnbotnunum.
Algengi skjálg og starframnar sjóndepru virðist
vera svipað og meðal nágrannaþjóða.
Blinda (samkvæmt skilgreiningu WHO) var 3%o
af íbúatölu og er hœgfara gláka og ellirýrnun á
sjónu algengustu orsakirnar.
Rœtt er um núverandi ástand sjónverndarmála
hér á landi og hvatt til frekari aðgerða í þeim efn-
um.
Innyantfur
í grein þessari segir frá augnhag 1352 einstak-
linga, sem leituðu til höfundar í augnrannsókn á
heilsugæslustöðina í Borgarnesi á tímabilinu júní
1976 til októberloka 1978.
Enda þótt könnun þessi sé ekki stór að vöxtum
má þó ætla að hún spegli augnhag landsmanna al-
mennt, þar eð hún tekur yfir ákveðinn landshluta,
sem er blandað þéttbýlis- og dreifbýlissvæði. Dreif-
ing íbúa í aldursflokka í héraðinu er ekki ósvipuð
og í Reykjavík. I Borgarnesumdæmi eru íbúar 67
ára og eldri (1. 12. ’77) 10,1%, en í Reykjavík
10,3%. Allt landið 8%. Einkum ætti þessi könnun
að gefa hugmynd um algengustu augnkvilla meðal
aldraðs fólks, einkum þá sem valda sjóndepru, enda
komu tiltölulega flestir til skoðunar úr elstu aldurs-
flokkunum.
Segja má að um valinn efnivið sé að nokkru leyti
að ræða, þar sem skipuleg könnun með úrtaki í ald-
ursflokkum átti sér ekki stað og ber að hafa þetta
í huga við lestur greinarinnar. Sérstök leit var þó
gerð að öllum þekktum glákusjúklingum og blind-
um í héraðinu, en vel má vera og sennilegt að gláka
leynist meðal þeirra, sem ekki komu til skoðunar.
lifniviíiuv oy aðferðir
Þeir einir eru taldir í þessu uppgjöri, sem eiga
lögheimili í Borgarnesslæknisumdæmi (áður Borg-
arness- og Kleppjárnsreykjahérað), en íbúatala 1.
des. 1977 var 3477 samkvæmt skýrslum Hagstofu
Islands.
Gerð var augnskoðun á 1352 einstaklingum, sem
er 38,9% af íbúatölu umdæmisins. Af körlum komu
LÆKNANEMINN
5