Læknaneminn - 01.12.1978, Blaðsíða 12
Heildaralgengi (overall prevalence) hægfara
gláku meðal 50 ára og eldri er samkvæmt þessari
könnun 6,5% (meðal karla 7,9% og kvenna 4,9%).
Sjá 4. töflu.
Algengið eykst með aldri: Bæði kyn: 50-59 ára
0,8%, 60-69 ára 4,9%, 70-79 ára 7,8% og 80 ára
og eldri 20,5%. Algengi meðal karla og kvenna
helst í hendur uns sjötugsaldri er náð. Eftir það er
gláka mun tíðari meðal karla.
TABLE5
Visual fields'. Functional status of 100 eyes with
open angle glaucoma in Borgarnes district.
Males No. of eyes % Females No. % Both sexes No.+%
Incipient .... .... 14 22 16 45 30
Established1 .. .... 29 45 17 47 46
Terminal ... . .... 21 33 3 8 24
64 100 36 100 100
1 Established: Bjerrum scotoma and arcuate scotoma.
Total blindness: Males: 14 eyes.
Females: 3 eyes.
Total blindness both eyes: 1 male.
Sjónsvið glákusjúklinga er flokkað í 5. töflu, en
sjónsviðskönnun segir best til um gang sjúkdómsins,
þ. e. starfshæfni augans. Um þriðjungur allra gláku-
augna eru með óverulegar breytingar á sjónsviði,
þ. e. a. s. með sjúkdóminn á byrjunarstigi og um
fjórðungur augna á lokastigi, þ. e. aðeins hliðlægar
sjónsviðsleifar [temporal island] eða alblindir. Af
körlum voru um 16% með byrjunarbrey'tingar á
báðum augum en um 27% af konum. Bæði kyn sam-
an um 20%.
I 5. töflu kemur fram að sjónsviðsskerðing í beild
er meiri meðal karla en kvenna.
I 6. töflu er greint frá sjónskerpu meðal gláku-
sjúklinga. Um helmingur allra augna er með nær
óskerta lestrarsjón (6/6-6/15) og um tveir þriðju
hlutar sjúklinganna með lestrarsjón á betra auga.
Meiri sjónskerðing er meðal karla.
Af glákusj úklingum teljast 5 einstaklingar í flokki
blindra, en af þeim er einn alblindur.
Sjúkdómar í glákuaugum eru skráðir í 7. töflu.
Er drer algengasti fylgikvillinn og er drermyndun í
10
TABLE6
Visual acuity among 50 open-angle glaumcoma cases
in Borgarnes district.
Both All eyes No. % sexes Better eye No. % Males Females Better eye % %
6/6 24 24 17 34 31 39
6/9-6/15 23 23 16 32 25 44
6/18-6/24 19 19 12 24 28 17
6/60-LP 16 16 4 8 13
Total blindness 18 18 1 2 3
100 100,0 50 100,0 100,0 100,0
TABLE7
Eye-diseases in 50 open angle glaucoma cases
in Borgarnes district.
Males Females
Cataracta 8 8
Aphakia 3 1
Atrophia bulbi post trauma 1
Degeneratio macularis senilis 1 2
Retinopathia disciformis centralis 1
Amblyopia ex anopsia 2 1
Total 14 14
augasteini meiri eða minni og veldur sjóntapi með-
al 40% glákusjúklinga.
Tuttugu glákusjúklinganna (15 karlar og 5 kon-
ur) höfðu gengist undir skurðaðgerð til að lækka
augnþrýsting (veituskurði) eða tæp 40%.
Drerskurðir höfðu verið gerðir á 4.
Arfgengi. Um helmingur glákusjúklinga kváðu
sjúkdóminn vera meðal náinna ættmenna, en þessi
þáttur hefur enn ekki verið kannaður.
Fjórir bræður aldraðir (fæddir 1892, 1894, 1899
og 1901) komu til skoðunar og eru í meðferð, allir
með hægfara gláku á háu stigi, uggðu ekki að sér,
en komu til að fá gleraugu. Eru þeir allir bændur
að atvinnu. Varð faðir þeirra blindur.
Ellidrer (cataracta senilis). I þessari athugun er
drer skilgreint: Sjónskerpa 6/9 eða minni af völd-
um drermyndunar í augasteini. Sé grannt skoðað í
LÆKNANEMINN