Læknaneminn - 01.12.1978, Side 16
Fjarsýni minnkar og nærsýni eykst; mest á ung-
lingsárunum. Vegna þessara breytinga á sjón mun
sjónlag meðal 40 ára og eldri (sjá 2. töflu) gefa
réttari mynd af sjónlagi almennt. Eftir fertugt leitar
fólk aðallega til augnlækna vegna aldursfjarsýni
(presbyopia) og þá einkum þeir, sem eru fjarsýnir
eða hafa rétt sjónlag, en nærsýnir þurfa þá síður á
lestrargleraugum að halda. Kann því að vera að
nærsýnir séu heldur fleiri í þessum aldurshópi en
taflan gefur til kynna.
Nærsýnir unglingar leita fljótt til augnlæknis, þar
eð þeir sjá illa frá sér án gleraugna. Kann það að
skýra hið háa hlutfall nærsýni í yngri aldursflokk-
unum. Samkvæmt þessari könnun er líklegt að um
15-20% fullorðinna séu nærsýnir. Er þetta svipað
hlutfall sjónlagsgalla og meðal nágrannaþjóða okk-
ar.
Jackson í U.S.A. komst að raun um, að meðal
1482 sjúklinga 20-30 ára voru 19,6% nærsýnir og
67,7% fjarsýnir.2"3
Af könnun þessari er unnt að ráða i algengi
þeirra sjúkdóma, sem valda mestri skerðingu á sjón
hér á landi, þ. e. hægfara gláku, ellidreri og rýrnun
á miðgróf sjónu. Einnig um algengi skjálg og starf-
rænnar sjóndepru. Aðrir augnkvillar eru mun sjald-
gæfari og því ekkert hægt að segja til um algengi
þeirra í þessu uppgjöri. Þriðja tafla er hvergi nærri
tæmandi hvað snertir augnsjúkdóma hér á landi,
en gefur þó góða mynd af kvillum í augum á á-
kveðnu landssvæði.
Verður nú gerður samanburður á algengi þeirra
augnsjúkdóma, sem valda mestri sjónskerðingu í
Borgarnesumdæmi og á Framingham svæðinu í U.
S.A., þar sem vel skipulagðar og nákvæmar faralds-
fræðilegar rannsóknir hafa nýlega átt sér stað á
augnsjúkdómum, sem tíðast valda blindu.4 Rann-
sakaðir voru 2477 einstaklingar á aldrinum 52-85
ára. Niðurstöður þessarar könnunar eru birtar í 10.
töflu.
Við augnskoðunina í Borgarnesi voru sömu skil-
merki (criteria) notuð og við ofanskráða könnun.
Algengi hœgfara gláku virðist vera svipuð í báðum
könnununum fram á áttræðisaldur en eftir áttrætt
er algengið hér meira meðal karla í báðum könnun-
um og er það marktækt. Heildaralgengi (overall pre-
valence) gláku í Framingham könnuninni eru 3,3%
á aldrinum 52-85 ára, en í þessari könnun tæplega
4% á aldrinum 50-80 ára. Erfitt er að bera saman
algengi gláku meðal höfunda, þar sem fæstir nota
sömu skilmerki við greiningu. Posner og Schloss-
mann fundu 3,1% algengi hægfara gláku meðal
12.000 einka sjúklinga.5 Aðrir höfundar finna flest-
ir minna algengi en erfitt er að átta sig á úrtaks-
hópnum, skilmerkjum og aldurshópum.3,4
Við þessa könnun kemur í ljós að mun meiri
skemmd er í augum glákukarla en kvenna, sbr. 5.
töflu. Sömu sögu er að segja í könnun á glákusjúk-
lingum 624 að tölu, sem gerð var á göngudeild
augndeildar Landakotsspítala í árslok 1978.° Bend-
ir þetta til hraðari þróunar sjúkdómsins meðal
karla, enda eru fleiri glákuaugu meðal karla á loka-
TABLE 10
The Framingham Eye Study. Prevalence of senile
cataract or aphakia, diabetic retinopathy, senile ma-
cular degeneration, and open angle glaucoma (A.J.
O., Vol. 85, No. 1. Jan. 1978).
Age groups Both sexes Males Females
52-64 1293 573 720
65-74 787 318 469
75-85 397 152 245
Total 2477 1043 1434
Senile cataract or aphakia (%)
52-64 4,6 4,4 4,7
65-74 18,1 16,3 19,3
75-85 46,1 41,5 48,9
All age groups 15,6 13,5 17,1
Senile Macular Degeneration (%)
52-64 1,6 1,2 2,0
65-74 11,0 8,8 12,6
75-85 27,9 24,4 30,1
All age groups 8.8 6,7 10,3
Open angle glaucoma (%)
52-64 1,4 1,7 1,2
65-74 5,1 6,4 4,3
75-85 7,2 9,9 4,9
All age groups 3,3 4,1 2,7
Diabetic Retinopathy (%)
52-64 2,1 2,4 1,9
65-74 2,9 3,1 2,7
75-85 7,0 5,2 8,1
All age groups 3,1 3,0 3,2
LÆKNANE MINN
14