Læknaneminn - 01.12.1978, Side 24
2. fram koma einkenni um a$ legið sé að tæma
sig, þ. e. a. s. breytingar á leghálsi eða þykktar-
leifar í leghálsi eða löggöngum (sjá síðar).
Óumflýj anlegu fósturláti lýkur annað hvort með
fullkomnu fósturláti (abortus completus) eða ófull-
komnu fósturláti (abortus incompletus). Þegar um
er að ræða fulkomið fósturlát fæðist fóstrið og
fylgjuvefurinn í heilu lagi og legið hreinsast full-
komlega. Þannig eru oftast fósturlát á fyrstu 8 vik-
um meðgöngu og eftir 18. viku (sjá mynd 3). A 8-
18. viku er algengast að fósturbelgir springi og
fóstrið fæðist, en þykktarleifar sitji eftir í legi (sjá
mynd 4).
Talað er um síendurtekin fósturlát (abortus ha-
bitualis), ef kona missir fóstur þrisvar í röð eða
oftar.
Dulið fósturlát (missed aboriion) kallast það,
þegar fóstrið deyr nokkru áður en legið tæmir sig.
Fram til þessa hefur hugtakið dulið fósturlát eink-
um verið notað um fósturlát á öðru trimestri (12-
28 v.). Nýtilkomnar örbylgjurannsóknir (sonar)
hafa hins vegar staðfest, að á þennan hátt gerast
flest fósturlát á fyrsta trimestri. Fóstrið getur verið
dáið í nokkrar vikur og jafnvel eyðst („blighted
ovum“), áður en úr fósturláti verður.
Stundum verður sýking í sambandi við fósturlát
eða fóstureyðingu og nefnist það sýkt fósturlát
(abortus septicus).
Orsakir
Fósturlát snemma á meðgöngu stafa oftast af göll-
um á fóstri eða fylgjuvef, en seinna á meðgöngu af
sjúkdómum móður. Rétt er þó að hafa í huga að oft
er orsökin ókunn. Helstu þekktu orsakir fósturláta
má flokka í 2 aðalflokka:
a) Sjúkdómar hjá fóstri eða fylgjuvef:
1. Sköpulagsgalla (morfologiska galla) á fóstri,
naflastreng, fylgju eða belgjum er að finna í
a. m. k. 60% tilfella. Blöðrumyndun (hydrop-
isk degeneration) í næringarhýði (tropho-
blast) er t. d. algeng.
2. Frumurannsóknir hafa leitt í ljós litningagalla
í 20-30% tilfella. Aðallega er um að ræða:
autosomal trisomy (auka litningar), poly-
ploidy (69 eða 72 litningar) eða X-monosomy
(aðeins einn X-litningur — XO - mynstur).
Þessir gallar verða við kynfrumumyndun
Mynd 3. Fullkomið jósturlát.
20
LÆKNANEMINN