Læknaneminn - 01.12.1978, Page 28
Athuga ber eftirfarandi atriði:
1. Forðast ber að nota kanna (sondu) til að mæla
dýpt legsins við þessar aðgerðir eins og gert er
við greiningarútskaf (abrasio mucosae uteri)
vegna hættunnar á legsprungu (sjá mynd 9).
2. Ávallt skal senda innihald legsins til vefja-
rannsóknar (blöðruegg ? Arias-Stella breyting-
ar?).
3. Á Kvennadeild Landspítalans er legið alltaf
tæmt þegar fósturlát á sér stað fyrir 16. viku,
þótt það virðist vera fullkomið, til að minnka
hættuna á blæðingu og sýkingu. Eftir 16. viku
meðgöngu er legið aðeins tæmt, ef mikið blæð-
ir eða sýnt þyki, að fylgjubiti hafi orðið eftir í
leginu. Ef legtæming er ófulkomin, halda verk-
ir og blæðing áfram, legháls lokast ekki og leg-
minnkun (uterus involution) seinkar.
4. Ollum Rh-neikvæðum konurn er gefið Rh-im-
munoglobulin eftir fósturlát, þar sem ekki er
vitað um blóðflokk fóstursins.
Eftir fósturlát hefur konan blóðlitaða hreinsun
í 1—2 vikur, sem á þó ekki að vera meiri að magni
en venjuleg tíðablæðing. Leghálsinn lokast eftir 36-
48 klst., og legið nær eðlilegri stærð eftir 2-3 vikur.
Egglos verður 2-A vikum eftir fósturlát, og fyrstu
tíðir eru oft ríkulegar.
Ef fósturlát verður eftir 14. viku eða um er að
ræða síendurtekin fósturlát, skal gera eftirfarandi
rannsóknir, áður en konan fer heim:
1. Sykurþolspróf.
2. Skjaldkirtilspróf.
3. Mótefnamælingu í sermi gegn listeriosis, toxo-
plasmosis, cytomegalovirus og lues.
4. Ef grunur er um vansköpun á legi eða síendur-
tekin fósturlát er um að ræða, er gerð hystero-
salpingographia (HSG) 2 mánuðum síðar.
Fylyikvillar
1. Blœðing getur orðið það mikil, að hún valdi
blóðskorti síðar og getur stundum orðið lífs-
hættuleg. Áríðandi er að vita að legið nær ekki
að dragast saman og blæðing stöðvast ekki,
fyrr en legið er tæmt. I einstaka tilfellum kem-
ur fram truflun á storknunarhæfni blóðsins, t.d.
dreifð segamyndun (disseminated intravascul-
ar coagulation - DIC) með hypofibrinogenemi
einkum ef fóstrið hefur verið dáið lengi. Fluo-
than eykur blæðingu frá legi og ber því að
forðast að nota það til svæfingar við legtæm-
ingu.
2. Legsprunga: Við legtæmingu er alltaf nokkur
hætta á legsprungu (perforatio uteri) vegna
þess, hve vefir eru mjúkir. Nauðsynlegt er að
þreifa konuna vandlega, áður en aðgerð er gerð
til þess að ganga úr skugga um, hvort legið sé
24
LÆKNANEMINN