Læknaneminn - 01.12.1978, Blaðsíða 33
sveigt fram eða aftur á við. Flestar legsprung-
ur verða á isthmussvæðinu, sem er mýksti hluti
legsins (sjá mynd 9).
Ef legsprunga verður, er nauðsynlegt að fylgj-
ast nákvæmlega með því, hvort fram komi ein-
kenni um innvortist blæðingu eða áverka á
þarma (t. d. Iífhimnubólgu, garnastífla) og
gera þá kviðarholsskurð í tæka tíð.
Mynd 9. Aftursveigt leg.
3. Sýkingar, t. d. legslímhúðarbólga (endometri-
tis) eða eggjaleiðarabólga (salpingitis) eru
mun sjaldgæfari en áður, en koma enn fyrir,
einkum ef fyllsta hreinlætis og sóttvarna er ekki
gætt (sjá sýkt fósturlát).
GcSræn áhrif fásturláts
Mikilvægt er að hafa í huga þau sálræn áhrif, sem
fósturlát getur haft á konur. Mjög mismunandi er,
hvernig konur bregðast við því. Sumum konum get-
ur fósturlát jafnvel verið kærkomið, t. d. ef þungun
er ótímabær eða óvelkomin, en miklu oftar hefur
fósturlát neikvæð áhrif á sálarástand þeirra og veld-
ur miklu andlegu álagi. Sumum konum finnst að um
sé að ræða hörmulegt áfall. Á þetta sérstaklega við
um konur, sem átt hafa við ófrjósemisvandamál að
stríða eða orðið fyrir síendurteknum fósturlátum.
Konum getur fundist fósturlátið vera merki um
kvenlega vanhæfni þeirra eða litið á það sem refs-
ingu gagnvart sér. Því seinna á meðgöngu sem fóst-
urlát verður, þeim mun meiri hætta er á andlegum
eftirköstum. Þetta á sérstaklega við eftir að konan
er farin að finna fósturhreyfingar, en frá þeim tíma
skynjar hún fóstrið sem lifandi einstakling. Konur
eru yfirleitt lilfinninganæmar og viðkvæmar á með-
gönguskeiði og verður því meira en ella um þau
vonbrigði, sem fósturlát veldur. Sérstök nærgætni í
framkomu og andleg aðhlynning er því nauðsynleg
við hjúkrun þessara sjúklinga. Greinargóðar upp-
lýsingar og útskýringar geta komið í veg fyrir
margra vikna eða mánaða vangaveltur og áhyggjur.
Bretar orða þennan þátt meðferðar með hugtakinu
„tender loving care“ (TLC).
Útshrift af spítalu
Mikilvægt er að konur mæti skilningi og fái hald-
góðar upplýsingar við útskrift. Hjá flestum konum
vaknar spurning um, hvers vegna fósturlát hafi orð-
ið. Rétt er að upplýsa þær um, að í fæstum tilfellum
sé orsökin þekkt. Hins vegar má benda á, að fóstur-
lát virðist vera náttúrulegur hlutur þegar fóstur-
myndun er óeðlileg. Algengt er að konur kenni sjálf-
um sér um að úr fósturláti hafi orðið og hafi því
sektartilfinningu, og er því rétt að leiðrétta þennan
misskilning, ef hann er fyrir hendi. Einnig má benda
á, að um meiri líkur séu á, að næsta þungun gangi
eðlilega, en að fósturlát endurtaki sig. Konur spyrja
oft um, hvenær þeim sé óhætt að verða vanfærar á
ný. Þeim skal ráðlagt að bíða, þar til þær hafa náð
sér líkamlega og andlega, þ. e. a. s. í flestum tilfell-
um í 2—3 mánuði.
Gefa skal konunni eftirfarandi upplýsingar við
útskrift:
1. Hvað gert hefur verið.
2. Hvernig búast má við að hreinsunin verði.
3. Að þær skuli mæla sig á hverjum morgni í
vikutíma og hafa samband við sjúkrahúsið fái
þær meira en 38° hita, verki eða miklar blæð-
ingar.
4. Að þær skuli forðast samfarir í 2—3 vikur.
5. Um getnaðarvarnir. Ráðleggja skal notkun
gúmmíverja og getnaðarvarnarkrems fyrst í
stað. Lykkju (IUD) má setja inn u. þ. b. 2 vik-
um eftir fósturlát, og getnaðarvarnarpilluna má
byrja að taka eftir fyrstu tíðir.
6. Ef fósturlát verður eftir 18 vikur, kemur oftast
25
læknaneminn