Læknaneminn - 01.12.1978, Page 36
Mœlingar á öndunarstœrðum
Ólafur M. Hákansson læknanemi, Stefán Jónsson læknir og
Jóhann Axelsson prófessor
Á vegum Rannsóknastofu háskólans í lífeðlisfræði
hafa um nokkurra ára bil verið gerðar stærðarmæl-
ingar á lungum og flæðishraða lofts í öndunarveg-
um. Athuganir þessar hafa sumpart verið hluti
mannfræðirannsókna þeirra er gerðar voru í Þing-
eyjarsýslum árin 1973-1974 og sumpart hluti þrek-
prófana á íþróttamönnum á stór Reykjavíkursvæð-
inu, sem fram fóru árin 1975-1976. Hér á eftir er
gerð grein fyrir niðurstöðum þessara athugana og
þær bornar saman við erlendar rannsóknir.
EfniviSur ojr/ a&ferSir
Alls tóku 459 manns þátt í báðum þessum könn-
unum. Er þeim skipt í tvo hópa, þá er ekki stunduðu
íþróttir sérstaklega, er voru 174 konur og 166 karl-
ar á aldrinum 7-35 ára. Hinn hópurinn voru ein-
göngu íþróttamenn, allt karlar á aklrinum 11-35
ára, 119 að tölu. Allir íþróttamennirnir voru á-
hugamenn á sínu sviði, annaðhvort handbolta- eða
fótboltamenn.
Lungnaprófin á íþróttamönnum voru gerð með
Vitalograph Single Breath Instrument (Vitalograph
Ltd, Buckingham, England). Voru þeir prófaðir
standandi. Allar aðrar öndunarmælingar voru gerð-
ar með Bernstein spirometer (AB Instrumenta,
Lund, Sweden) og sátu þátttakendur meðan prófun
fór fram. Flæðishraði útöndunarlofts var mældur
með Peak Flow Meter (Airmed Ltd., Harlow, Eng-
land). Hæsta gildi af 3-5 atrennum var skráð. Erf-
itt gat verið að fá fram nógu kröftuga öndun hjá
yngstu þátttakendunum og þurfti þá fleiri atrennur
til að viðunandi niðurstaða fengist. 011 gildi voru
umreiknuð í BTPS (body temperature and pressure,
saturated with water vapour), nema flæðishraði
lofts, sem gefinn er upp í einingunni ATPS (am-
bient temperature, saturated with water vapour).
Mælingar fóru fram fyrri hluta dags, oftast fyrir há-
degi. Við tölfræðilega úrvinnslu gagna var fylgt
viðurkenndum aðferðum.10
1Xiðurstöður
í töflu 1 er skráð þyngd, hæð, FVC og FEVj
hvers aldurshóps kvenna. Tafla 2 sýnir gildi sömu
mælinga hjá körlum er ekki stunda íþróttir. I töflu
3 eru niðurstöður sams konar mælinga hjá íþrótta-
mönnum auk flæðishraða lofts (Peak Flow 1/min).
Af töflunum má sjá að enginn greinilegur munur er
á hæð pilta og stúlkna fram til 14 ára aldurs, en
meðalþyngd stúlknanna er ívið meiri. Ennfremur
kemur fram að lítill munur er á meðalgildum bæði
FVC og FEVi hjá piltum og stúlkum fram til 14 ára
aldurs, þó hafa piltarnir aðeins vinninginn. Eftir 14
ára aldur má hins vegar sjá greinilega skiptingu þar
sem karlar hafa hærri gildi bæði hvað varðar þyngd
og áðurnefndar öndunarstærðir.
Marktæk aukning á FVC á sér ekki stað, hvorki
hjá konum né körlum, eftir 17 ára aldur, að undan-
teknum þeim hópi íþróttamanna, sem eru á aldrin-
um 21-25 ára. Meðalgildi loftflæðishraða við kröft-
uga útöndun fer vaxandi hjá aldurshópum iþrótta-
mannanna fram til 20-30 ára; lengra verður ekki
dæmt vegna fæðar þátttakenda í efsta aldursflokkn-
um. Sé fylgni hæðar og þyngdar athuguð sést að
hún er góð við bæði FVC og FEV^ hjá stúlkunum
fram til 16 ára aldurs, en síðan ekki marktæk hvað
varðar þyngd en sæmileg við líkamshæð. Fylgni
þessara mælistærða við hæð er hins vegar mjög góð
hjá kvennahópnum í heild (tafla 4). Hjá karlmönn-
um, er ekki stunda íþróttir, er líkt á komið sé hópn-
um skipt við 16 ára aldursmörkin. Hins vegar sýnir
hópurinn í heild mjög góða fylgni mælistærðanna
við þyngd og hæð (tafla 5).
íþróttamönnunum var ekki skipt í samsvarandi
aldurshópa við fylgniathugun, en hjá hópnum í
28
LÆKNANEMINN