Læknaneminn - 01.12.1978, Page 63
og nefndin leggur ekki mat á réttmœti þessara
upplýsinga.
3. Sumar tillögur nefndarinnar ganga lengra en
að auka kennslugetu hvað varðar nemenda-
fjölda, heldur eru það tillögur um úrbætur sem
gera þarf til að auka gæði kennslunnar burt séð
frá nemendafj ölda.
4. Skýrsla nefndarinnar er að mörgu leyti ófull-
komin og þarfnast frekari úrvinnslu og áfram-
haldandi starfs deildar og háskólayfirvalda.
5. Ekki er enn útséð um vilja fjárveitingavalds
við tillögum nefndarinnar.
I ályktun okkar í háskólaráði sagði einnig að
nefndarálitið ætti að nota sem grundvöll til að vinna
að endurbótum á stjórn og kennslufyrirkomulagi
læknadeildar, svo og til að setja fram rökstudda
kröfugerð á hendur ríkisvaldinu. Kom í ljós í
skýrslu nefndarinnar að þessum atriðum hafði um
margt verið áfátt í læknadeild á liðnum árum.
Niðurstaðan í ályktun okkar var sú, að ekki væri
rétt að samþykkja tillögu læknadeildar enda hefðu
ekki allar leiðir verið reyndar til þrautar til að auka
kennslugetu deildarinnar, til að mjmda úrbætur á
skipulagi deildarinnar svo og var ekki vitað hver
vilji fjárveitingavaldsins væri. Einnig væri það slæm
barátluaðferð gagnvart ríksvaldinu að beita fjölda-
takmörkunum, því ríkisvaldið gæti þar litið svo á
að viðunandi ástand hefði skapast í læknadeild.
Fór svo að tillaga læknadeildar var felld með 12
atkvæðum gegn 3, og geta því 1. árs nemar andað
léttar í bili. Vona ég svo að langt verði þangað til
næsti kafli af þessari framhaldssögu birtist.
„Ég helcl að hann hafi haft hita, lœknir.“
LÆKNANEMINN
51