Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1979, Side 16

Læknaneminn - 01.10.1979, Side 16
A að taka upp r coronary bypass aðgerðir á Islandi? Ólafur Gísli Jónsson stud. med. Á seinni árum hefur kirurgisk meðferð við hjarta- sjúkdómum aukizt mjög í flestum löndum í okkar heimshluta. Er hún nú af flestum talin mjög mikil- vægur þáttur í meðferð slíkra sjúklinga, einkum ef lyfjameðferð her ekki árangur sem skyldi. I seinni tíð hafa því heyrzt raddir meðal íslenzkra lækna um að taka beri upp hjartaskurðlækningar hérlendis, og hefur áhuginn þá einkum heinzt að aðgerðum á kransæðum, svonefndum coronary artery bypass grafting, hér á eftir skammstafað CABG. Það mun hafa verið árið 1971 sem umræður hóf- ust hérlendis að marki um þessi mál, í kjölfar þess að gert hafði verið við coarctatio aortae í fyrsta skipti hérlendis. Urðu um þetta einhver blaðaskrif, þar sem meðal annars kom fram, að það helzta sem vanlaði lil að hægt væri að hefja hjartaskurðlækn- ingar hérlendis, væri hjarta- og lungnavél. I fram- haldi af þessu var gefin fjárhæð til kaupa á slíkri vél. Síðan mun þetta mál hafa verið endurvakið a. m. k. einu sinni og svo aftur árið 1977. í framhaldi af því var skipuð nefnd til að kanna þessi mál, en hún náði ekki samstöðu um málið, og er það nú í biðstöðu að því er virðist. Skynsamlega ákvörðun um hvort hefja eigi hjartaskurðlækningar hérlendis er ekki hægt að taka nema að vanrllega hugsuðu máli. Margir þættir koma inn í það mat, og er suma hverja æði erfitt að meta, eins og ég komst íljótt að eftir að hafa ákveðið að skrifa stutta greinargerð um jietta. Þyrfti reyndar mun meiri tíma og fleiri gögn um málið en kostur gafst á fyrir mig í þetta sinn. Ber því að taka allar tölur sem hér birtast með hæíilegum fyrirvara, þótt reynt hafi verið að hafa það sem sannara reyndist. Það er Ijóst, að stofnkostnaður verður talsverður, ef hefja á hj artaskurðlækningar hér. Því hlýtur sá fjöldi aðgerða, sem væntanlega verða gerðar, að vera sá þáttur sem mestu máli skiptir, ef reynt er að meta þetta peningalega. Einnig er þess að gæta, að ákveðinn lágmarksfjölda aðgerða þarf til að halda læknum og tæknimönnum, sem við slíkar aðgerðir fást, í nægilegri þjálfun. Aðrir þættir sem koma inn í kostnaðarhliðina eru t. d. kaup á vélum og áhöld- um, aukinn starfskraftur á sjúkrahúsinu, aukin þjónusta ákveðinna aðila, einkum rannsóknastofu og blóðbanka. Verður nánar fjallað um þessa og fleiri þætti hér á eftir. Það mun öllum Ijóst, að tíðni hjarta- og æðasjúk- dóma hefur aukizt stórlega í svokölluðum velmegun- arþjóðfélögum á síðustu áratugum. Árið 1967 voru 46% mannsláta af völdum þessara sjúkdóma, hjarta- sjúkdómar einir ullu 30% árin 1966-70, miðað við 13,1 % 1951-55. Dánartíðni hérlendis vegna þess- ara sjúkdóma er með því hæsta sem gerist, 853/ 100.000 íbúa 1965. U. þ. b. 50% fleiri deyja úr hjartasjúkdómum einum en úr krabbameini, og þre- falt fleiri en látast af slysförum, en þetta eru þó þær dánarorsakir sem næstar koma. Eitt algengasta einkenni hjartasjúkdóms er ang- ina pectoris. Rannsókn Hjartaverndar bendir til, að 10% íslenzkra karla á aldrinum 37—64 ára séu með angina, og 9% íslenzkra kvenna á sama aldri. Út frá þessu hefur verið áætlað nýgengi fyrir angina u. þ. b. 1 % hjá körlum, en 0,6% hjá konum. Ef farið er í mannfjöldaskýrslur, þýðir þetta að á hverjum tíma séu um 2900 karlar og 2600 konur á þessum aldri með angina, og árlega hætist 290 karlar og 175 kon- ur við. Það er því ljóst að hér er við mikið lækn- isfræðilegt vandamál að stríða. Meðferð angina pectoris hefur fram á síðustu ár verið lyfjameðferð, en hún hefur ekki alltaf dugað, og eru flestir á því að CABG sé mikilvæg viðbót. CABG virðist mjög rökrétt meðferð, þ. e. að tengja fram hjá þrengslum í kransæðum, sem mjög oft eru proximalt í þeim. Markmiðið er þannig að: 1) Aftur að fá sem bezt blóðflæði um myocard- 10 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.