Læknaneminn - 01.10.1979, Qupperneq 19
3) Svæfingalið. 5 svæfingalæknar starfa á Land-
spítalanum, og hafa þeir allir unnið á deildum er-
lendis þar sem hjartaaðgerðir eru framkvæmdar.
Ekki þyrfti því að koma lil aukakostnaður vegna
lleiri svæfingarlækna. Nóg er af stöðum fyrir hjúkr-
unarkonur, bæði á skurðstofu og gjörgæzludeild.
4) Tæknimenn þarf lil að sjá um perfusion með-
an á aðgerð stendur, þrýst'ngsmælingar og umsjón
hjarta- og lungnavélar. Einhver mannafli er til stað-
ar á tæknideild Landspítalans, þar af einn sem dval-
ið hefur á hjartarannsókna- og hjartaskurðlækninga-
deildum í Englandi og Bandaríkjunum. E. t. v. þarf
að bæta við einhverju starfsfólki hér. Kostnað viJ
það er erfitt að meta, en 10 milljónir á ári sem kaup-
gre'ðslur ætti að vera ríflega áætlað. Hafa ber í
huga, að þessi starfskraftur nýtist í fleira en störf
við kransæðaaðgerðir.
5) Skurðstofur. Tvær skurðstofur á Landspítala
henta fyrir CABG aðgerðir. Takmarkaður legrúma-
fjöldi á Landspítalanum veldur þvi að mun minna
er opererað þar en mögulegt væri, og ætti því að
vera nóg pláss fyrir þann fjölda CABG sem nefndur
var.
6) Legurúmafjöldi. Taka verður tillit til þess
legutíma sem hver sjúklingur þarf, við þessa útreikn-
inga. Ef miðað er við 14 daga legutíma að meðaltali
fyrir hvern sjúkling, 50 aðgerðir á ári og að dag-
gjöld séu kr. 50.000, gerir það samtals 35 milljónir
á ári.
7) Áhöld og tæki. Kaupa þyrfti eina hjarta- og
lungnavél, sem samkvæmt því sem ég komst næst
kostar 15-20 milljónir án tolla og slíks. Gjafafé mun
vera til fyrir a. m. k. hluta þessarar upphæðar. Einn-
ig jsyrfti að kaupa 3 hjartarafsjár (monitora), sem
samtals kosta u. þ. b. 12 milljónir. Monitorarnir
koma einnig að gagni við ýmsar aðrar aðgerðir og
aðra sjúklinga.
Skurðstofuáhöld fyrir æðaaðgerðir munu vera
gömul og úrelt á Landspítalanum, og ríflega áætlað
myndu slík áhöld kosta 10 milljónir króna. Þessi
áhöld koma líka að gagni við ýmsar aðrar æðaað-
gerðir, og mun vera joörf á endurnýjun jreirra, hvort
sem hjartaskurðlækningar verða hafnar eða ekki.
Ef við reiknum með að Jressi tæki séu afskrifuð á
10 árum, verður árlegur kostnaður vegna þeirra
tæplega 5 milljónir króna. Fastur kostnaður við
hverja aðgerð (einnota áhöld og hlutar í hjarta- og
lungnavél, sem aðeins eru notaðir einu sinni) er 2—
300 þúsund kr. Miðað við 50 aðgerðir gerir það 10
—15 milljónir.
8) Aukinn kostnaður vegna rannsóknastofu og
blóðbanka. Erfitl er að meta þennan kostnað. Ef
kostnaður af rannsóknum og auknum vöktum starfs-
fólks er í heild metinn þannig að einn sé á vakt á
hvorum stað og vinni að meðaltali 8 klst. á dag alla
daga ársins, sem hlýtur að vera ríflega mikið, gerir
Jsað u. ]í. b. 25 milljónir króna á ári.
9) Röntgen- og aðrar kliniskar rannsóknir. Nú
Jaegar eru allar slíkar rannsóknir gerðar á Land-
spítalanum, þannig að ekki er um að ræða viðbótar-
kostnað vegna Jjess.
Ef ofangreindur umframkostnaður er tekinn sam-
an, lítur dæmið þannig út:
Tækjabúnaður.................... kr. 5.000.000
Einnota áhöld .................... — 15.000.000
Rannsóknastofa og blóðbanki..... — 25.000.000
Laun tæknimanna................... — 10.000.000
Legukostnaður (daggjöld) ......... — 35.000.000
Samtals 90.000.000
Það gerir 1,8 millj. króna á hvern sjúkling miðað
við 50 aðgerðir á ári. I jDessari tölu er ekki tekið til-
lit til þess, að tækjabúnaður og mannafli nýtist einn-
ig í aðrar aðgerðir, t. d. æðaaðgerðir. Þá er og þess
að geta, að sérfræðingar telja, að fleiri hjartaað-
gerðir en CABG verði hægt að gera hér, t. d. að-
gerðir á hjartalokum. Er liklegt að flestar slíkar að-
gerðir verði hægt að gera hér nema hjartaaðgerðir
á börnum, sem áfram þyrfti að senda út, a. m. k.
fyrst um sinn. Þessi tala ætti Jjví ekki að vera mjög
lágt metin. Þó er hún heldur ekki mjög há, t. d. mið-
að við það að einbýlishús ganga nú á 100 milljónir,
eða ef miðað er við verð á skuttogara.
Kostnaður við að senda hvern sjúkling til Eng-
lands í aðgerð var árið 1977 kr. 800.000, og er lík-
lega óhætt að tvöfalda þá upphæð nú eftir rúm tvö
ár. Upphæðin verður Jjá 1,6 millj. per sjúkling, og
miðað við 50 aðgerðir 80 millj. á ári.
Þrátt fyrir það að tölurnar hér að ofan séu gróf-
Framh. á bls. 31.
LÆKNANEMINN
13