Læknaneminn - 01.10.1979, Page 31
ástæðan til þess var tilkoma geislavirkra ísótópa til
þess að merkja sterasameindir. Notkun geislavirks
kolefnis (Carbon 14) og síðar Tritium merktra sam-
einda leiddi til Jjess, að fundnir voru nýir sterar, af-
leiddar myndir þeirra (metabolites) og efnasam-
bönd þsirra, að reikna mátti út framleiðni og út-
skilnaðarhraða, að binding stera í plasma og í vefj-
um var uppgötvuð og að staðsetningu og örlög ster-
anna í vefjum mátti nú kanna.
Myntliin «sr/ tnnmyndun
Eins og lesa má í flestum bókum í lífefnafræði eru
sterar myndaðir af tveggja kolefnasameindum eða
acetyl radicals sem síðan með myndun mevalonic
sýru og squalene myndaði cbolesterol, sem sterar eru
síðan myndaðir af. Eggjaslokkarnir eru aðalupp-
spretta oestrone og oestradiol í kvenfólki og er meira
en 95% af oestradioli framleitt í eggjastokkum. I
körlum eru eistun aðaluppspretta testosterones eða
yfir 95%. Debydroepiandrosterone í plasma kemur
aðallega frá nýrnahettum í báðum kynjum en um
50% androstenedione, sem er næstum því eingöngu
komið frá nýrnabettum í karlmönnum, getur komið
frá eggjastokkum að verulegum bluta í kvenfólki.
Ummyndir (metabolites) kynstera í þvagi hafa
verið kannaðir með því að sprauta örskömmtum af
bormóninu inn í blóðrásina.
Það hefur lengi verið vitað að kynsterar og um-
myndir þeirra eru útskilin í þvagi, aðallega sem, svo-
kölluð conjugöt, þar sem sterarnir eru bundnir sýr-
um, aðallega glucuronic sýru og brennisteinssýru.
Conjugötin finnast einnig í blóði og öðrum h'kams-
vökvum. I þvagi er mest af glucuronidum, sem kann
að vera tengt því að nýrun skilja glucuronide conju-
götin 20-40 sinnum hraðar úr blóði heldur en sul-
fötin.
Conjugöt kynstera finnast í galli og entero-hepatic
hringrás þeirra er þekkt. Myndun conjugata á sér
stað í görn, lifur, nýrum og öðrum líffærum en a. m.
k. súlföt eru einnig framleidd í kynkirtlum og nýrna-
heltum. Hlutverk conjugata er lítt þekkt nema ef
vera skyldi til þess að auðvelda útskilnað stera í
þvagi.
Stýring
Tilraunir Smiths árið 1926 og Zondeks og Asc-
heims ári síðar sýndu, að kynkirtlar eru undir ein-
hvers konar stjórn heiladinguls. Með hliðsjón af
vefjabreytingum mátti greina milli tveggja örvandi
þátta frá heiladingli, follicle stimulating hormone
(FSH, follitropin) og interstitial cell stimulating
hormone (ISCH), sem síðar sannaðist að vera hið
sama og luteinizing hormone (LH, Lutropin). FSH
og LH úr heiladinglum manna hafa verið næstum
hreinunnir (meira en 95%) og hafa reynst vera
glycoprotein með sameindarþunga nálægt 32.000 og
28.000.
Þegar mælingar (kvikmælingar, bioassays) FSH
og LH voru hafnar kom í Ijós, að geltir einstaklingar
höfðu há gildi í serum sem síðan lækkuðu við með-
ferð kynstera. Einfalt neikvætt „feed-back“ (nega-
tiv feed-back) kerfi virtist því vera til staðar. Á und-
anförnum árum hefur hins vegar komið betur og
betur í ljós að þetta kerfi er aðeins hluti af mjög
flóknu stýringarkerfi þar sem undirstúka heilans
(hypothalamus) leikur stórt hlutverk.
Tímabilsbundin (periodic) kynhneigð (östrus)
dýra og mánaðarlegir líðahringir kvenna og kven-
kynsmannapa hefur verið innkirtlafræðingum ögr-
andi ráðgáta. Árið 1936 uppgötvaði Pfeiffer að
eggjastokkar ,sem græddir höfðu verið í geltar kven-
rottur, sýndu tímabilsbundna starfsemi, en ekki ef
þeir voru græddir í geltar karlrottur. Tímabilsbund-
in starfsemi kom hins vegar fram ef karlrotturnar
voru geltar strax eftir fæðingu og síðan græddar
eggjastokkum. Pfeiffer ályktaði þess vegna að heila-
dingullinn væri á einhvern hátt innstilltur (condi-
tioned) af einhverjum eislnáþætti fljótlega eftir fæð-
ingu.
Árið 1952 græddu Harris og Jakobsohn heila-
dingla úr karlrottum í kvenrottur, sem áður höfðu
verið sviptar heiladingli og gátu sýnt fram á að
heiladingullinn var ekki ævarandi karlaður (mas-
culinized) þar sem rotturnar fengu aftur tímabils-
bundna kynhneigð (östrus cycles). Þessi tilraun
leiddi í Ijós tvö veigamikil atriði. í fyrsta lagi, und-
irstúkan var líffærið sem var stillt inn (conditioned)
en ekki heiladingullinn og í öðru lagi, heiladingull-
inn starfaði aðeins eðlilega í nánum tengslum við
læknaneminn
21