Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1979, Qupperneq 48

Læknaneminn - 01.10.1979, Qupperneq 48
tíma (sbr. texta). NiSurstöðutölur bera með sér, að alkóhól írásogaðist bæði hratt og vel, ef áfengi var drukkið á fastandi maga (mynd 1). Þegar sömu stúdentar voru látnir drekka jafnmikið áfengismagn um það bil tveimur klst. eftir að hafa neytt venjul- legs hádegisverðar, var frásog alkóhóls mun síðra (mynd 2). Hámarksþéttni var þannig að meðaltali 0,5%o lægri í síðari hluta tilraunarinnar en í þeim fyrri. Sambærilegur munur var á þéttni alkóhóls í þvagi (myndir 1 og 2 texti). Ef bera skal saman neyslu áfengis og þéttni alkó- hóls í blóði (eða þvagi) manna, er því óhjákvæmi- legt að taka tillit til fæðutekju hlutaðeigenda fyrir og eftir eða meðan á áfengisdrykkju stóð. Að öðrum kosti er vísast, að dregnar verði mjög rangar álykt- anir af gefnum upplýsingum um drukkið áfengis- magn og sannreyndum niðurstöðutölum alkóhól- ákvarðana. Hinu má þó ekki gleyma, að ýmislegt annað en fæðutekja getur haft umtalsverð áhrif á frásog alkó- hóls frá meltingarvegi. Má þar nefna sýrubindandi lyf, sem áður eru nefnd, og fleiri lyf. Þá er einnig talið að mjólk dragi meira úr frásogi alkóhóls en önnur fæða (sbr. Ritcliie, 1975). Er það væntan- lega vegna þess, að mjólk bindur alkóhól. Sama gild- ir að öllum líkindum einnig um aðrar slímkenndar og fituríkar fæðutegundir. Þá má enn nefna, að mis- munandi mikill og breytilegur samdráttur í vöðvum í maga og þörmum ásamt mismiklu blóðflæði í slím- húð þessara líffæra kann að valda einstaklings- bundnum sveiflum á frásogi alkóhóls og einnig tíma- bundnum sveiflum hjá sama einstaklingi. Svipað gildir raunar um frásog lyfja yfirleitt, en hefur því miður lítið verið rannsakað enn sem komið er. I þessu sambandi vekur einmitt athygli, að veru- legur munur var á alkóhólþéttni jafnþungra manna, er drukku jafnmikið áfengismagn við sömu tilrauna- legu aðstæður (sbr. stúdenta 1 og 4 og 2 og 3; mynd 1 og texti). Mætti þannig ætla, að niðurstöðu- tölur úr fyrri hluta tilraunarinnar gæfu vísbendingu um, að alkóhól frásogist betur frá vodkablöndu en whiskyblöndu. í annarri tilraun virtist þessu vera öfugt farið (Skaftason & Jóhannesson, óbirtar at- huganir). Ekki er þó síður athyglisvert, að alkóhól- þéltni virtist vera minnst hjá stúdent nr. 2 í síðari hluta tilraunarinnar, enda þótt hún væri mest, þegar áfengi var drukkið á fastandi maga (myndir 1 og 2). Yerður þannig ætíð að hafa hugfast, að ýmsar breytilegar eða aðrar óþekktar aðstæður kunna að hafa veruleg áhrif á frásog alkóhóls frá meltingar- vegi. Þessu til stuðnings er sú staðreynd, að stöðul- tölur alkóhólþéttni og líkamsþyngdar (%o í blóði X líkamsþyngd í kg) voru á bilinu 46—82 (meðaltal 63) hjá 14 stúdentum eftir drykkju vodka við gefn- ar tilraunalegar aðstæður (óbirtar athuganir). Þess skal að lokum getið, að ákvörðun á alkóhóli með alkóhóldehýdrógenasaaðferð gefur niðurstöðu- tölur, sem eru í góðu samræmi við niðurstöðutölur mælinga með gasgreiningu á súlu (sbr. Skaftason & Jóhannesson, 1975). HEIMILDIR: Brink, N. G., R. Bonnichsen & H. Theorell: A modified met- liod for the ensymatic microdetermination of ethanol. Acta pharmacol. et toxicol. 1954, 10, 223-226. Richtie, J. M.: I The Pharmacological Basis of Therapeutics, 5th ed., ed. L. S. Goodman & A. Gilman. Macmillan Pu- blishing Co. Inc., New York, 1975 (pp. 142-143). Skaftason, .1. & Jóhannesson, Þ.: Ákvarðanir á alkóhóli (etanóli) í blóSi. Tímarit lögfræðinga 1975, 25, 5-17. Wallgren, H.: I Alchohols and Derivati.ves, Vol. 1. Perga- mon Press, Oxford, 1970 (pp. 164-166). 34 LÆKNANEMINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.