Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1979, Síða 54

Læknaneminn - 01.10.1979, Síða 54
Krufningar í Liverpool sumarið 1979 Atli G. Eyjóifsson stud. med. Ekki leit vel út með krufningarferð okkar á 2. ári. Við hömuðumst við að herja út velvilja þeirra sem réðu peningunum í háskólanum. En eftir langa mæðu var allt klárt og fóru menn í vorpróf sælir og gátu varla beðið með að komast í krufninguna í Liverpool. 17. júlí söfnuðumst við svo saman út á flugvelli, alveg ólm í að komast loksins í krufninguna. Við höfðum fregnað frá fyrirrennurum okkar á 2. ári að nú fyrst fengi maður að læra anatomíu. Nú myndum við liggja í bókunum og yfir krufningar- borðunum og tilhugsunin gerði menn blátt áfram ölvaða. Eins og venja er, þá var ferðast með rútu frá London til Liverpool. Þetta var vandasöm ferð. Ein- hverra hluta vegna þurftu bókstaflega allir að fara á klósettið svo til um leið og rútan lagði af stað. Settu þessar furðulegu hlandfarir manna svip á ferðina. Sennilega má kenna tilhlökkuninni um, svei mér þá mannskapurinn mátti bara ekki vatni halda. Að lokum tókst o-kkur að komast alla leið til Liver- pool, en það merkilega við þetta allt er að mann- skapurinn var alltaf í spreng allan tímann sem við dvöldum þarna. Eg hef enn enga líklega skýringu heyrt á þessu fyrirbæri. Okkur var fagnað af, að því er virtist, sérlega kurteisum manni, en hann átti eftir að verða okkar helsti óvinur. Þeíta var yfirmaður húsnæðismála á staðnum. Við bjuggumst í upphafi við góðu sam- starfi við manninn, en í staðinn sýndi hann okkur fádæma óréttlæti og dónaskap. Hann bannaði söng og gleði um nætur. Hann lét loka barnum þegar okk- ur þótti réttast að hann væri opinn. Hann heimtaði að við hættum að dansa á þakinu hjá honum og til að kóróna allt saman þá bannaði hann allt sund í fiskapollinum. Við sáum ekki annað ráð en að virða manninn algerlega að vettugi. Það tókst prýðilega. Krufningarnar fóru ákaflega vel af stað. Prófess- Lœrimeistarar vorir, Miss Philips og prófessorinn. ornum, honum Harrison sem rannsakaði Tut Ank Amon, og Ms. Phillips sem seinna á árinu giftist ungum lækni, tókst vel að glæða áhuga okkar á við- fangsefninu. Þau eiga mikið hrós skilið fyrir sinn þátt. Gífurleg ánægja manna var með þá skoðun prófessorsins að próf væri ónauðsynlegt á þessu stigi málsins. Kannski hefur honum þótt við svona klár í anatomíu, a. m. k. sýndum við mikla ástund- un og vinnugleði framan af. Það verður að segjast eins og er að sumir hóparnir kláruðu sitt program nokkrum dögum fyrir áætlun. Það þótti öllum vel af sér vikið. Mikið lagði sumt fólk sig fram til að klára tímanlega. Tíminn sem þarna græddist var notaður vel eftir því sem ég best veit. Rotary menn Liverpool og fjölskyldur þeirra voru stór þáttur í veru okkar þar. Svo rammt lét þetta íólk að sér kveða að stilltustu menn létu ókyrrast. Eins og fyrri daginn var þar í forystu Jack Pearson, sem fylgdi okkur alla daga. Hann var óþreytandi við að bjóða fram sína aðstoð við þau vandamál sem upp komu. Víst er að ýmsum varð hann að góðu liði og hlaut hann vináttu flestra okkar og þakkir að launum. Ekki voru þó allir jafn hrifnir af framlagi Mr. Pearson og annarra Rótara, en vissulega fylgdu 40 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.