Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1982, Side 9

Læknaneminn - 01.09.1982, Side 9
 il > f\ ") ‘1 k \ » Straum- ^ magnari Straummælir Rafnlaöa Ag-anóóa Pt-katóóa Elektrolytar Kcl + fosfatbuffer ^ Himna (polyoronvlene, teflon oolyetylene eóa mylar) Flæói sameinda Mynd 3. Súrefniselektróða. sem Iátinn er skrá pC02 beint. Mæl- ingin er fljótleg (1-2 mín.) og ná- kvæm, ± 0.5% mælingarskekkja þegar best Iætur. Leiðrétta þarf mæl- inguna hafi sjúklingurinn annan hita en 37°C. Munar um 4% fyrir hverja 1°C og er Iagt við mælinguna sé hiti hærri en 37°C, en dregið frá sé hann lægri. Elektróðurnar, sérstaklega þær sem mæla p02 og pC02, eru talsvert viðkvæmar og vandmeðfarnar. Nauðsynlegt er að stilla þær daglega og er það gert með stuðpúðalausnum með þekktu pH fyrir pH elektróðuna og með blöndum af súrefni og kol- díoxíði fyrir hinar. Auk þess er súr- efniselektróðan stillt á 0 með sér- stökum vökva sem inniheldur ekkert súrefni. Til frekara öryggis er tækið prófað reglulega með sérstöku „gerviblóði'" sem hefur þekkt pH, pC02 og p02 (Qualicheck (R)). Fáist þá ekki rétt gildi verður að fara yfir elektróðurnar og stundum verður að skipta alveg um þær. Á seinustu ár- um hafa komið á markað sjálfvirk tæki til þessara mælinga og spara þau mikla vinnu fyrir meinatækna. Nýlega eru komnar á markað p02 og pC02 elektróður sem festa má á húð sjúklinga, og mæla þær þá stöð- ugt p02 og pC02 í háræðablóði gegn- um húðina (Transcutaneous Blood Gas System). Hafa þær hitatæki, sem halda húðhita á mælingarstað í um 37°C til þess að háræðablóðið líkist sem mest slagæðablóði. Tæki þessi eru dýr enn sem komið er, og því eingöngu notuð á gjörgæslu og vöku- deildum. Eðlileg gildi slagæða- blóðgasa Pa02 fer lækkandi með hækkandi aldri. Ofternotuðjafnan: Pa02= 105—0.3 x aldur (ár) Hér á landi er notuð mælieiningin Torr = mmHg. í Skandinavíu og Bretlandi er notuð mælieiningin kPa (kilopascal),, en SI nefndin hér á landi ákvað að nota enn um sinn Torr. PaC02: 35-45 Torr pHa : 7.35-7.45 Sýru — basa jafnvægi Ekki er rúm í þessari grein til að fara nákvæmlega í þessi atriði, enda finn- ast víða greinargóð skrif um þau.4 Þó skal hér getið um nokkur atriði, en gert ráð fyrir að Iesendur kunni veru- leg skil á efninu. Við blóðgasmælingar eru sem fyrr getur mæld pH og pC02. Út frá þess- um gildum er HC03— reiknað út eftir jöfnu kenndri við Henderson og Hasselbach. Oftast er hún rituð: pH=6. i+iog 1 ncon " [COJ Ekki er hún sérlega aðgengileg þar sem fæst okkar ganga með loga- rithmatöflur upp á vasann eða jafn- vel kunnum með þær að fara. Hins vegar er hægt að rita sömu jöfnu á mun einfaldari hátt: [H+l=24*ÍIravr Glerelektróóa Mynd 4. Koldíoxíðelektróda. LÆKNANEMINN 3'4/1982 - 35. árg. 7

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.