Læknaneminn - 01.09.1982, Síða 12
Um réttarefnafræði
Jakob Kristinsson
Inngangur
Eiturefnafræði má skipta í ýmsar
undirgreinar eftir viðfangsefnum.
Ein þessara undirgreina heitir á
ensku forensic toxicology. A íslensku
mætti nefna hana réttareiturefna-
frœði. Sú venja hefur þó skapast, að
nefna hana réttarefnafrœði, sem er
mun þjálla og er upphaflega þýðing á
eldra heiti, sem var forensic chemi-
stry (á dönsku retskemi), en það
hefur nú orðið mun víðtækari merk-
ingu.
Viðfangsefni réttarefnafræðinnar
eru lyfja- og eiturefnafræðilegar
rannsóknir í þágu lögreglu og dóm-
stóla og grundvallarrannsóknir á því
sviði. Er þar fyrst og fremst um að
ræða leit að lyfjum, eiturefnum eða
hættulegum efnum í líkamssýnum
eða efnissýnum, sönnun á tilvist
þeirra, mælingu á magni þeirra og
eiturefnafræðilegt mat á niðurstöðu-
tölum. Sem dæmi um þetta má nefna
rannsóknir á voveiflegum mannslát-
um, mælingar á áfengismagni í blóði
ökumanna og rannsóknir á ávana- og
fíkniefnum.
Réttarefnafræðilegar rannsóknir á
voveiflegum mannslátum eru unnar í
náinni samvinnu við réttarlækna. Ef
grunur um eitrun kemur fram, eru
við réttarkrufningu tekin sýni af líf-
færum hins látna, í samráði við rétt-
arefnafræðing, sem leitar í þeim að
lyfjum og eiturefnum. Enn fremur
eru dauðsföll af ýmsum öðrum or-
sökum (s.s. af völdum slysa) tekin til
réttarefnafræðilegrar rannsóknar,
þegar hugsanlegt er talið, að tilvist
áfengis, lyfja eða annarra efna geti
veitt nánari skýringu á aðdraganda
þeirra. Hér á landi og eins í ná-
grannalöndum okkar, eru rannsókn-
ir á dauðsföllum viðamestar allra
réttarefnafræðilegra rannsókna.
Næstar þeim að umfangi eru mæling-
ar á áfengismagni í blóði ökumanna,
en þær eru í grundvallaratriðum frá-
brugðnar öðrum réttarefnafræðileg-
um rannsóknum, þar eð tilgreint er í
lögum hvernig túlka beri niðurstöðu-
tölur þeirra og þarfnast þær því ekki
réttarefnafræðilegs mats. Hér á landi
eru blóðsýni úr ökumönnum send til
rannsóknar af viðkomandi yfirvaldi,
án milligöngu réttarlækna.
Rannsóknir á ávana- og fíkniefn-
um beinast einkum að meintri ólög-
legri meðferð og neyslu ávana- og
fíkniefna. Þar er annars vegar um að
ræða rannsóknir á efnissýnum, sem
löggæsluyfirvöld hafa lagt hald á, og
hins vegar rannsóknir á blóð- eða
þvagsýnum úr fólki, sem grunað
hefur verið um neyslu ólöglegra
vímugjafa.
Eins og áður sagði eru rannsóknir
á dauðsföllum viðamestar réttar-
efnafræðilegra rannsókna hér á
landi. Af þeim sökum og einnig
vegna þess hve mjög þær snerta störf
lækna og verðandi lækna mun það
sem á eftir fer nær eingöngu fjalla um
þær.
Val sýna
Náið samstarf réttarlæknis og réttar-
efnafræðings um val sýna við krufn-
ingu er forsenda þess að rannsókn-
irnar beri fullan árangur. Valin eru
mismunandi sýni eftir því hvers eðlis
málið er hverju sinni. Þannig geta
blóð- og þvagsýni verið fullnægjandi,
þegar leitað er að örfáum tilteknum
efnum, en allsendis ófullnægjandi,
þegar framkvæma þarf tæmandi
leit að Iyfjum og eiturefnum. Hér á
eftir verður í megindráttum gerð
grein fyrir almennum reglum um val
sýna.
Blóð er sýni, sem oftast er auðvelt
að ná við krufningu. Niðurstöður
mælinga í blóði post mortem má oft
meta með hliðsjón af mælingum, sem
gerðar hafa verið í blóði eða sermi
lifandi manna. Blóðsýni eru venju*
lega tekin úr stórri bláæð (t.d. vena
iliaca). Einnig kemur til greina að
taka blóð úr hjarta, þar sem oft er
hægt að ná miklu magni. Varast ber
að blanda saman blóðsýnum teknum
á mismunandi stöðum og ætíð ber að
geta þess á umbúðum hvaðan sýnið
er tekið.
Heili. Sýni úr heila gefa til kynna
magn eiturefna í miðtaugakerfinu.
Heilinn er fitukenndur og þar safnast
fyrir ýmis fitusækin (lipofil) efni, svo
sem lífræn leysiefni. Einnig má gera
ráð fyrir að auðveldara sé að setja
banvæn áhrif miðtaugakerfislyfja í
samband við þéttni þeirra í heila en í
öðrum líffærum. Þegar grunur er um
eitrun af völdum cýaníða ætti ætíð að
senda sýni úr heila til rannsóknar.
Lifur. Mörg efni safnast fyrir í
lifur, og þéttni þeirra þar getur í sum-
um tilvikum orðið meira en hundr-
aðföld þéttni þeirra í blóði. Lifrin er
auk þess stórt líffæri og þess vegna
verulegar Iíkur á að þar megi finna
efni, sem tekin hafa verið í smáum
10
LÆKNANEMINN 3—/leas - 35. árg.