Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1982, Side 19

Læknaneminn - 01.09.1982, Side 19
I Þegar komið er með hinn slasaða á heilsugæslustöðina, þarf að sjálf- sögðu að taka hann tafarlaust til meðferðar, en ekki láta hann bíða uns röðin kemur að honum. Rétt er að láta deyfingardropa í augu og halda síðan skolun áfram og kanna hvort nokkrar agnir sitji eftir, sér- staklega undir efra augnaloki. Velta þarf augnalokinu og strjúka votum bómullarpinna upp í efra slímhúðar- hvolf (fornix superior). Það er undir því komið hversu mikill bruninn er hversu lengi á að skoia. Erfitt er í byrjun að meta brunann eftir útliti augans. Oftast veitir ekki af hálfri til heilli klukkustund a.m.k. við lútar- bruna. Stundum þarf stöðuga dreyp- ingu nokkra klukkutíma. Að skolun lokinni eru venjulega látnir dropa í augað sem innihalda stera og Sýkla- lyf (t.d. oculoguttae Scheroson-F eða oculoguttae Ultralan oleosum). Einnig er dreypt augndropum, sem víkka út ljósop og lama sjónstillingu t.d. oculoguttae Cyclogyl 1% til að draga úr verkjum og koma í veg fyrir innri bólgu. Ef bruninn er á háu stigi verður' erting í lithimnu og samloðun (syne- chiae) við augastein getur átt sér stað, ef ljósop er ekki víkkað. Ster- arnir minnka örvefsmyndun í glæru og slímhúð og minni hætta verður á samvexti augnaloks við auga (sym- blepharon). Til þess að kanna út- breiðslu brunans á auga er notaður fluorescin-litur. Skaddaður vefur lit- ast grænn. Loks er augað þakið með augn- púða en fylgjast þarf með sjúklingi daglega uns sár eru gróin. Alla meiri- háttar bruna er rétt að senda til augn- læknis að fyrstu hjálp lokinni. Á heilsugæslustöðvum þarf að kenna hjúkrunarfræðingunt sérstak- lega að meðhöndla bruna í augum af völdum ætiefna, ef þannig vildi til að læknir væri ekki við hendina, þegar slíkan sjúkling bæri að garði. Fyrsta stigs lútarbruni. Sódaskorpa og fersk bólga. Annars stigs lútarbruni. Chemosis. IVIinna glampar á cornea. Blaðra mynd- ast. Þriðja stigs lútarbruni. Necrosis. Hvít mött cornea. Æting veldur efnahvörfum í vefj- unum. Við sýrubruna myndast yfir- borðsskán vegna útfellingar eggja- hvítu og kemur skánin í veg fyrir að sýran fari dýpra í vefinn. Lútar- kenndu efnin fara aftur á móti inn í vefinn með því að ganga í samband við fituefni í frumuveggnum og valda skemmd í frumunum (necrosis). Eru Slímhúðarsamvextir eftir lútarbruna. batahorfur því mun verri við lútar- bruna. Fyrsta stigs bruni á auga einkenn- ist af roða í slímhúð og minnkuðu sársaukaskyni í glæru. Við annars stigs bruna safnast vökvi undir slímhúð og blaðra (chemosis) myndast. Sársaukaskyn er oft nær upphafið í glæru (skemmd- ir í stroma corneae) og slímhúð, sem er með fölleitum blæ vegna minnk- aðs blóðstreymis. Við þriðja stigs bruna verður glær- an mött og tilfinningalaus vegna þess að drep (necrosis) er komið í vefinn. Sérstaklega þarf að hafa í huga, að Iútarbruni getur í fyrstu virst mein- Iaus. Þar sem lúturinn gengur smám saman inn í vefinn geta liðið einn eða tveir dagar uns blöðrumyndun kem- ur fram og einkenni um drep sjáist í slímhúð og glæru. Af þessum sökum er rækileg skolun og jafnvel stöðug dreyping marga klukkutíma svo nauðsynleg. Þegar blöðrumyndun í slímhúð er mikil við lútarbruna þarf að hleypa vökva út, en hann verkar á æðarnar þannig að þær þrengjast og flytja því ekki nægilegt blóð. Kemur þá drep í nærliggjandi vef, bæði í slímhúð og glæru. Vökvanum er hleypt út með því að losa slímhúð frá glæru (peritomia) á nokkrum kafla. Við þetta aukast líkurnar á að nægi- Ieg blóðrás myndist í æðum (við LÆKNANEMINN 3",/im2-35. árg. 17

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.