Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1982, Side 29

Læknaneminn - 01.09.1982, Side 29
Blow-out fraktúra. mikil. Oftast eyðist hún á löngum tíma, en stundum þarf að fram- kvæma glerhlaupsaðgerð, taka ógagnsæjan vef og Iáta tæran vökva í staðinn. Sjónulos (ablatio retinae) er ekki óalgengt eftir augnslys. Talið er að um 15% af öllu sjónlosi séu afleiðing slyss3. Venjulega er það síðbúinn fylgikvilli, en um 80% verða á fyrstu tveimur árum eftir slys. Við blæðingu í glerhlaup myndast oft bandvefs- strengir, sem fljótt geta valdið sjónu- losi. Bjúgur í sjónu er algengur eftir högg á auga og er yfirleitt í aftur- skauti augans. Bjúgmyndun sem verður í miðgróf er nefnd ,,Berlins- ödem" (commotio retinae). Sést þá mjólkurhvít skella, illa afmörkuð, en miðgrófin er rauðleit. Oft verður varanlegt sjóntap. Rifur geta komið í æðahimnu, en vegna blæðinga verða þær oft ekki greindar fyrr en löngu eftir að slysið átti sér stað. Blœðingar sem koma í eða undir sjónu eyðast og valda ekki sjóntapi nema blætt hafi í miðgróf. Af framanskráðu sést að hyggja ber að mörgu við högg á auga. 7. Áverkar á augntótt Við högg framan á augntóttarmynni geta komið sprungur í augntóttar- vegg og innihald tóttarinnar raskast á ýmsa vegu. Ytri augnvöðvar geta lamast vegna blæðinga inni í tóttinni. Blæðing getur valdið það mikilli fyrirferðaraukningu að auga þrýstist fram á við (exophthalmos). Oft er mikið mar í húð. Loft úr nefholum og kjálkaholu getur safnast undir húð og marrar þá í við þrýsting (crepitus). Þrenndartaug (n. trigeminus) getur laskast, sem veldur dofa í húðinni undir auganu. Þreifa þarf á augntóttarrönd í leit að broti, en brot í tóttarveggjum er að jafnaði ekki hægt að finna án röngtenmyndatöku, nema þegar klinisk einkenni gefa til kynna að um brot hlýtur að vera að ræða. Eitt alvarlegasta brotið er svonefnd ,,blow out fractura", en þá brestur botninn á augntótt (þakið á kjálka- holu), veikasti hluti augntóttarinnar. Fituvefur þrýstist niður í kjálkahol- una ásamt hluta af neðri réttilvöðva (m. rectus inferior) og neðri ská- vöðva (m. obliquus inferior). Festast þeir í rifunni. Við það verður hindr- un á hreyfingu augans uppávið og standa augun mishátt. Sjúklingur kvartar þá um tvísýni. Bestur árang- ur meðferðar næst, ef þetta er lagfært með skurðaðgerð sem fyrst, áður en varanleg skemmd verður á vöðvun- um. Klínisk einkenni blow-out fraktúru. Við blæðingu í augntótt verður líka oft tvísýni, þar eða augnhreyf- ingar eru hindraðar. Oft líða margir mánuðir uns jafnvægi kemst aftur á augnhreyfingar. Á því ekki að grípa til skurðaðgerðar vegna tvísýni fyrr en í fyrsta lagi eftir hálft til eitt ár. 8. Nauðsynlegustu áhöld og lyf Til þess að veita fyrstu hjálp við augnáverka á heilsugæsfustöð þarf hvorki mikinn né dýran tækjabúnað. Nokkur kunnátta og góð dómgreind ráða oft mestu um hvort hinn slasaði fær rétta fyrstu meðferð, sem verður e.t.v. til að bjarga sjón á auga. Nauðsynlegustu tæki, umbúðir og lyf eru: 1. Vasaljós. 2. Stækkunargler eða binocular lúpa. 3. Augnalokshaki. 4. Augnspegill (ophthalmoscop). 5. Augnþrýstingsmælir 6. Sjónprófunarspjald 7. Fluorescinlitarræmur 8. Staðdeyfingarlyf t. d. oculo- guttae alcain 0.5% eða oculo- guttae tetracain 0.5% eða 1%. 9. Lyf, sem víkka ljósop og lama sjónstillingu, þ. e. oculoguttae mydriacyl 1% víkkar ljósop en hefur skammvinn áhrif á sjón- stillingu og oculoguttae cyclogyl 1% víkkar bæði ljósop og lamar sjónstillingu nokkra klukku- tíma. 10. Oculoguttae og oculentum chloramphenicoli 1% eða ocu- Ioguttae sulfacetamidi. 11. Ocúlogtt. Scheroson-F og oculoguttae Ultralan oleosum. 12. Augnpúðar. 13. Heftiplástur (leucoporplástur). 14. Bómullarpinnar. 15. Áhöld til að taka framandi hlut úr glæru t. d. „golf club spud“ eða önnur tæki til þess gerð. LÆKNANEMINN - 35. árg. 27

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.