Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1982, Side 38

Læknaneminn - 01.09.1982, Side 38
truflað blóðstreymi í vöðvanum. Þannig geta verkur og vöðvaspenna sem einu sinni hafa komist í gang viðhaldið hvort öðru. Harðsperrur eftir snjómokstur einn morgun geta orðið að margra vikna gigt- Meðal aðferða tíl að rjúfa þennan vítahring eru: Nudd, slakar, eykur blóðrás. Hiti, slakar og eykur blóðrás (sólin, baðker, hitapoki). Verkjalyf. Hreyfing. (Ganga, sund, skokk, helst a. m. k. 20 mín. svo að vöðvarnir nái aö hitna og slakna). Vöðvaslakandi lyf (verka best í svefni). B) Taugaspenna, kvíði vöðva- spenna. Ástæða er til að leggja áherslu á að andleg spenna og kvíði geta verið fullkomlega eðlileg og æskileg fyrirbæri. En þegar þau kom- ast á hátt stig eða eru langvarandi koma truflanir og óþægindi. (Góð prjónakona segist geta prjónað peys- ur í margar klukkustundir á dag án óþæginda. Komist hún í tímaþröng verður hún pirruð og fær óðar vöðva- gigt). Kvíði er ekki einungis tilfinn- ing um ótta eða öryggisleysi, meira eða minna meðvituð, heldur fylgja kvíðanum alltaf líkamleg einkenni sem ekki teljast sjúkleg. Dæmi um kvíðaeinkenni eru hraðari hjartslátt- ur, hækkaður blóðþrýstingur, dýpri öndun, aukinn sviti, titringur, munn- þurrkur, niðurgangur, stundum herpingur eða kökkur í hálsi, þrýst- ingstilfinning í brjósti, oft með auk- inni öndunarþörP, kvíðaverkur í brjóstinu eða kviðnum og ekki síst 2 Fólk talar um aö ná ekki „djúpa andanum“. Þetta ástand, ásamt þrýstings- eöa fargtilfinn- ingu á brjóstinu, er tengt og trúlega afleiöing af aukinni spennu í öndunarvöðvum, enda fara þessi einkenni oft saman við vöðvagigt milli rifja í brjóstvöövum, heröavöðvum og hálsi með viðeigandi höfuðverk. aukin spenna í þverrákóttum vöðv- unr. Þótt einkennin séu fleiri verður þessi upptalning látin nægja. Lang- varandi kvíði getur leitt til sjúklegs ástands. Dæmi: Hjartsláttartrutlun, háþrýstingur, oföndun (hyperventil- ation syndrome), ristilkrampi (colon irritabile), vöðvagigt. Það er ógerlegt að vera andlega spenntur, reiður eða kvíðinn (sem fyrir frumstæðan mann mundi þýða að vera í viðbragðsstöðu til árásar eða flótta) án þess að hafa spennta vöðva. Vöðvar haldast spenntir þannig að þeir eru vaktir til virkni og hemlaðir samtímis. Vöðvaspennan getur verið um allan líkamann en er oft mest í þeim vöðvum sem hafa mest með tjáningu tilfinninga að gera en það eru vöðvar í höfði, hálsi og handleggjum ásamt öndunarvöðv- um. Sjálf vöðvaspennan með tilheyr- andi óþægindum viðheldur kvíða (sbr. róandi áhrif slökunar). Notkun vöðvarafrits (biofeedback) sem fær- ist í vöxt erlendis í meðferð á vöðva- gigt, einkum á spennuhöfuðverk, hefur gert mönnum Ijósara en áður hið nána samband vöðvaspennu og tilfinninga.3 Þar sést vel hvernig að- ferðir sem margir nota til að binda reiði og kvíða, t. d. „að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði“ eða „láta ekki á neinu bera“(hvort tveggja stjörfun - ,,immobilisation“), geta leitt til spennu og verkja. Langvarandi kvíði, reiði eða þunglyndi sem einnig er spennt ástand geta eðlilega komið af stað og viðhaldið þessum vítahring. Þeim er hættast sem svo rækilega hafa lært að bæla andlegan sársauka eða reiði að þeir tjá sjaldnast og þekkja jafnvel ekki sjálfir hvenær þeir hafa slíkar tilfinningar, finna 3 Biofeedback er notað til að kenna slökun og stjórna vöðvaspennu. Svipuð tækni er notuð til að kenna stjórn á hjartslætti, blóðþrýstingi o. fl. í starfsemi líkamans, sem hingað til hefur verið talið óháð stjórn viljans. aðeins kvíðann, spennuna eða jafn- vel aðeins verkinn sem af þeim leið- ir.4 Þá hættir þeim til að byggja upp vöðvaspennu sem ekki geta varpað af sér áhyggjum dagsins að kvöldi. Sem betur fer getur margt rofið þennan vítahring. Eðlilegasta að- ferðin til að veita spennu útrás er að nota hana til að leysa vandann sem veldur. Það er oft hægt. En stundum er ástæðan óljós, stundum er litlu hægt að breyta í ytra umhverfi þótt Ijóst sé hvað er að. Þá reynir á hæfn- ina að lifa í mannheimi á tuttugustu öld. Líkamleg áreynsla - þolþjálfun, göngur, skokk. sund, leikfimi, skíóa- göngur - veitir tilfinningum eðlilega útrás, slakar á andlegri og líkamlegri spennu, gefur líkamlega þreytu og endurnærandi svefn. Auk slökunar verður árangurinn aukin orka og þol, útvíkkuð þreytumörk, endurhæfing hreyfingakerfis sem oft var í senn þreklítið, spennt og staðnað. Samtal við einhvern sem skilur. Lyf gegn kvíða, spennu, svefnleysi. (Mjög virk ef heppilega notuð en kenna lítið). Biofeedback - helst ásamt samtals- lækningu. Kerfisbundin vöðvaslökun. Innhverf íhugun. Yoga. Söngur, vel beðnar bœnir o. fl. 4 Vöðvakerfið er gert til að hreyfa að boði taugakerfis og tilfinninga, en er oft notað sem hemlakerfi til að stöðva framrás tilfinning- anna. Vöðvakerfið getur fengið það þreytandi hlutverk að byrgja inni árum saman, oft til æviloka, tilfinningar sem einstaklingurinn leyfir sér ekki að tjá. Þannig getur stíf og óeðli- leg líkamsstaða eða andlitssvipur (armor, inhibition) verið óbein tjáning á ótta við að vera of stór, of lítill, of áberandi eða varnar- laus, tjáð dapurleik og reiði þess sem er undir oki og þorir ekki að bylta því af sér eða býr yfir sorg sem ekki var leyft að fá útrás í gráti. 36 LÆKNANEMINN 3-4/iim - 35. árg.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.