Skinfaxi - 01.04.2023, Page 13
S K I N FA X I 13
Klara Bjarnadóttir er fædd og
uppalin á Djúpavogi en gift Grind-
víkingi. Þau fluttu til Grindavíkur
með börnin sín þrjú árið 2014. Hún
segir ekkert annað koma til greina
en að fara aftur heim til Grindavíkur:
„Grindavík er heimabær okkar.“
Klara tók við formennsku í Ungmen-
nafélagi Grindavíkur sumarið 2021.
Hún er önnur konan til að setjast í
formannsstólinn og hefur nú vermt
hann kvenna lengst hjá félaginu. Sú
fyrsta var Ágústa Gísladóttir, sem
var formaður árin 1977–1978.
Klara Bjarnadóttir (lengst til vinstri)
ásamt fjölskyldu sinn í leik með
Grindavík í körfubolta.
sín fyrir Grindvíkingum. Hún nefnir sem dæmi
leiki í Subway-deildinni í körfuknattleik, en
bæði kvenna- og karlalið Grindavíkur hafa háð
heimaleiki sína í Smáranum í Kópavogi. „Það
eru ómetanlegt að Breiðablik hafi tekið svona
vel á móti okkur. Álftanes á einnig skilið miklar
þakkir fyrir að taka svona vel á móti okkur í
fótboltanum. Við höfum æft reglulega þar
síðustu ár og nú æfa flestir flokkar þar og spila
leiki.“
Knattspyrnuæfingar eru einnig hjá ÍR, Fylki
og í Sporthúsinu og körfuboltaæfingar eru
einnig hjá Leikni, ÍR og Stjörnunni. Fasta
æfingatíma vantar fyrir yngstu flokkana í körfu
en unnið er að því hörðum höndum að finna
tíma. Sundiðkendum hefur verið boðið að
mæta á æfingar hjá öllum félögum á landinu
og hafa margir iðkendur nýtt sér það. Júdó-
iðkendur sækja fastar æfingar í Reykjanesbæ
en líka á Selfossi og í Reykjavík.
„Öll þessi félög, auk þeirra sem hafa boðið
fram aðstoð og eru með grindvíska iðkendur
á æfingum, eiga skildar hjá okkur miklar
þakkir,“ bætir Klara við.
Samheldin í skjálftavirkni
Klara segir einn af eftirminnilegri leikjunum
upp á síðkastið hafa verið bikarleik í 9. flokki í
körfuknattleik sem fram fór í Sandgerði. „Það
var skemmtilegur leikur, þó að hann hafi tap-
ast. Það var svo gaman að sjá strákana spila
saman eftir að hafa aðeins tekið saman eina
æfingu á tveimur vikum. En skemmtilegast
var að geta spilað svona nálægt heimabænum
okkar,“ segir hún ánægð og full þakklætis yfir
ómetanlegum stuðningi íþróttahreyfingar-
innar.
Klara segir að Grindvíkingar standi saman
og hjálpist að. Grindavík sé lítið bæjarfélag
þar sem allir kannist við alla og samheldnin
sé mikil.
Hún bendir meira að segja á að þótt forel-
drarnir standi í miklu skutli og keppni á milli
íþróttafélaga sé það þess virði.
„Við foreldrarnir hittumst oft á æfingum og
leikjum. Þá spjöllum við saman og gleymum
okkur í smá stund. Við nýtum líka þessar stund-
ir til að peppa hvert annað upp. Það er dásam-
legt að hitta aðra Grindvíkinga. Ég sakna þess
og það gefur manni mikið að fá þessar mínút-
ur með þeim. Við ætlum okkur flest að fara
aftur heim og byggja upp bæinn. Við komum
tvíefld til baka. Ég fer heim út af fólkinu, út af
samfélaginu og samheldninni,“ segir Klara.