Skinfaxi - 01.04.2023, Síða 25
S K I N FA X I 25
Hvaða málefni innan UMFÍ
standa þér næst?
Móta-, lýðheilsu- og félagsmál.
Hver eru stærstu málefnin
sem þú hefur komið að
innan Fjölnis?
Það eru mörg misstór og mikil-
væg málefni sem ég hef tekið
þátt í hjá félaginu. Eitt af þeim
sem standa upp úr er að taka þátt
í að koma á skipulagðri hreyfingu
fyrir 60+ en við erum með um
150–160 manns sem koma til okk-
ar frá einu sinni til þrisvar í viku
í leikfimi og eða æfingar í styrk,
þoli og jafnvægi. Við byrjuðum
með Frísk í Fjölni í vor, en það eru
skipulagðar æfingar sem byggja
á fjölbreyttum æfingum til að efla
styrk, þol, liðleika og jafnvægi.
Iðkendur geta valið um að æfa
tvisvar eða þrisvar í viku. Gerðar
eru mælingar í upphafi og enda
hverrar annar á færni þátttakenda.
Um 80 manns taka þátt í þessu
Málfríður Sigurhansdóttir
Fædd á Seltjarnarnesi 1965 en býr í Grafarvogi.
verkefni í fjórum hópum. Til við-
bótar Frísk í Fjölni erum við með
leikfimi einu sinni í viku í fimleika-
sal félagsins. Þar er meiri áhersla
lögð á almenna leikfimi og liðleika.
Þar mæta tæplega 80 manns í
tveim hópum í leikfimina. Það sem
er ekki síður mikilvægt er félags-
legi hlutinn, en eftir allar þessar
æfingar staldra flestir við, fá sér
kaffibolla og spjalla hjá okkur í
Miðjunni, funda- og félagsrými
félagsins.
Hvernig sérðu fyrir þér að
stefnumótun UMFÍ nýtist
sambandsaðilum og
aðildarfélögum?
Stefnumótunin leggur áherslu á
að UMFÍ sé öflugur þjónustuaðili
sambandsaðila og leiðandi í for-
varnamálum og lýðheilsumálum
ásamt því að aðstoða og veita
fjárhagsstyrki til grasrótarinnar.
Ég sé þetta allt nýtast félögunum
til eflingar á starfsemi þeirra.
Málfríður við við Biltmore-kastala í Asehville í Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum.
Hverjar eru helstu áskor-
anir USÚ í dag og á komandi
árum?
Helstu áskoranir Ungmenna- og
íþróttasambandsins Úlfljóts, og
þá sérstaklega aðildarfélaganna,
í dag, á komandi árum og raunar
Sigurður Óskar Jónsson
Fæddur á elliheimilinu á Höfn 1987, en á þeim tíma var ljósmóðirin
með aðstöðu þar í kjallaranum. Býr á Stapa í Nesjum í Hornafirði.
alla tíð, eru fjarlægðir og ferða-
kostnaður. Frá Höfn eru 100 km
á Djúpavog og 200 km á Kirkju-
bæjarklaustur, en megnið af
keppnisferðum er til Reykjavíkur,
þangað sem eru um 450 km aðra
leið. Það segir sig sjálft að beinn
kostnaður við öll þessi ferðalög
er gífurlegur, svo ekki sé minnst
á vinnutap og annan óbeinan
kostnað. Því má við þetta bæta
að aldrei hafa verið í boði neinar
niðurgreiðslur til íþróttafélaga
vegna flugs til Hafnar, þannig að
allar þessar ferðir eru farnar á bíl.
Annars eru áskoranir USÚ sjálf-
sagt svipaðar og hjá öðrum litl-
um íþróttahéruðum. Það gengur
t.d. ekkert of vel að fá fólk í stjórn
og svo er orðið nokkuð langt síðan
USÚ var síðast með starfsmann.
Hvernig sérð þú móta- og
viðburðahald UMFÍ þróast á
næstu árum?
Mér finnst móta- og viðburðahald
UMFÍ vera í nokkuð góðum gír.
Unglingalandsmótið og Lands-
mót UMFÍ 50+ halda áfram að
þróast, en það er mikilvægt að
mótshaldarar hafi áfram þann
sveigjanleika að geta sett sinn
svip á dagskrána, t.d. með
keppnisgreinum í takt við móts-
staðinn. Aðrir minni viðburðir
hafa verið að flakka um landið,
t.d. á staði þar sem ekki er raun-
hæft að halda stóru viðburðina,
sem ég held að sé hið besta mál.
Hvað gerir þú helst í frí-
stundum þínum annað en
að sinna málefnum UMFÍ?
Foreldrar mínir reka blandað
mjólkur- og sauðfjárbú og flestar
frístundir mínar undanfarin ár hafa
því farið í að sinna búskap; sauð-
burði, heyskap, smalamennsku,
gjöfum og mjöltum, svo eitthvað
sé nefnt. Að öðru leyti hef ég
gaman af því að ferðast, sérstak-
lega til að sjá staði sem ég hef
ekki komið á áður, hvort sem það
er hérlendis eða erlendis.
Sigurður sýnir meistaratakta í UMFÍ-ferð í Noregi.