Skinfaxi - 01.04.2023, Qupperneq 26
26 S K I N FA X I
Hver eru stærstu mál sem
þú hefur komið að innan
UMSB?
Ég hef ekki komið að mörgum
málum innan UMSB, sat sem full-
trúi UMFÍ í vinnuhópi fyrir Lands-
mót UMFÍ 50+ árið 2022 sem
haldið var í Borgarnesi en annars
hef ég ekki komið að neinum mál-
um þar. Ég var mjög virkur iðk-
andi í öllum mögulegum íþrótta-
greinum í Borgarnesi frá 1990 til
2004 og var sundþjálfari frá 2000
til 2003, en flutti þá til Reykjavík-
ur og fór í háskólanám. Ég hef í
raun ekki komið að neinu tengdu
ungmennafélagsmálum þangað
til ég var beðin um að bjóða mig
fram í stjórn UMFÍ árið 2019.
Hvernig sérð þú Unglinga-
landsmótið þróast á næstu
árum?
Ég sé Unglingalandsmótið þróast
í þá átt að fleiri börn og unglingar
sem ekki hafa íþróttabakgrunn
komi og taki þátt. Að gamli lands-
mótsandinn fái að svífa yfir vötn-
um og að það skipti meira máli
að vera með en að vinna. Við sjá-
um það sem dæmi í því að ein
Rakel ásamt syni sínum, Ingvari Marel.
Rakel Másdóttir
Fædd í Kópavogi 1994 og uppalin þar. Býr í Garðabæ.
Hvaða málefni innan UMFÍ
eru þér hugleiknust?
Hugleiknust eru mér málefni sjálf-
boðaliðans og um inngildingu í
starfið okkar. Ég legg mikla áherslu
á að ungmenna- og íþróttastarf
eigi að vera fyrir alla og ég veit
að það eru tækifæri til að gera
betur í þeim efnum. Jafnframt er
mikilvægt að við hugum vel að
sjálfboðaliðunum okkar og náum
til enn fleiri, enda getur sjálf-
boðaliðastarf gefið fólki gríðar-
lega margt þó að það sé ekki í
formi launa.
Hverjar eru helstu áskor-
anir UMSK í dag og á kom-
andi árum?
Það verður ávallt áskorun UMSK
að þjónusta fjölbreyttan hóp
aðildarfélaga. Aðildarfélög UMSK
eru mörg og fjölbreytt. Sum félög
eru að stíga sín fyrstu skref en
önnur hafa starfað til fjölda ára
og hafa mikinn fjölda iðkenda.
Félögin hafa jafn ólíkar þarfir og
þau eru mörg en mikilvægt er
að UMSK geti þjónustað þau öll.
Þetta má gera með reglulegum
samtölum við aðildarfélögin og
með því að vera vel upplýst um
þarfir þeirra og væntingar til
UMSK.
Hvaða veganesti frá UMSK
nýtist þér best í störfum
fyrir UMFÍ?
Í störfum mínum fyrir UMSK hef
ég fengið að kynnast stjórn-
sýslunni að baki stjórnarstörfum
almennt. Þá hef ég fengið dýpri
skilning á það hvað félög eins
og UMSK og UMFÍ gera fyrir
aðildarfélög og iðkendur innan
hreyfingarinnar. Ég hef skilning
á störfum aðildarfélaga eins og
UMSK og þörfum þeirra sem á
eftir að nýtast mér vel. Jafnframt
hef ég starfað fyrir Íþróttafélagið
Gerplu til fjölda ára og hef góðan
skilning á rekstri íþróttafélaga og
þörfum þeirra. Ég tek þakklát við
starfi í varastjórn UMFÍ og hlakka
til að leggja mitt að mörkum þar.
Ég er viss um að reynsla mín í fyrri
störfum komi að notum og mun
starfa fyrir UMFÍ af heilindum og
áhuga.
Hallbera Eiríksdóttir
Fædd 1984 á Akranesi, ólst upp í Borgarnesi. Býr í Grafarvogi.
vinsælasta greinin síðustu árin
hefur verið kökuskreyting. Fleiri
svipaðar greinar gætu átt heima
á Unglingalandsmóti UMFÍ, til
dæmi lego-kubba eða bygginga-
keppni með segulkubbum, fata-
hönnun eða eitthvað í þeim dúr
sem ekki hefur beina tengingu
við íþróttir.
Hvernig sérð þú hreyf-
inguna eftir tíu ár?
ð mínu mati skiptir máli að hreyf-
ingin fylgi tíðarandanum og nýti
sér möguleikann sem felst í nú-
tímatækni. Það verður að vera
áhersla á sjálfboðaliða, þar sem
hreyfingin byggir á sjálfboðalið-
um og tími fólks er alltaf að verða
verðmætari eftir því sem þjóð-
félagið gerir meiri kröfur. Sveigjan-
leiki fyrir sjálfboðaliða til að leggja
sitt af mörkum eftir þörfum hvers
og eins þarf að vera í forgrunni
og því er mikilvægt að hægt sé
að bjóða upp á fjölbreyttar leiðir
fyrir fólk að taka þátt þegar tími
er takmarkaður og áhugasvið mis-
munandi. Þess vegna er einnig
mikilvægt að skoða sjálfvirkni-
væðingu vel, hvar hægt er að
Hallbera ásamt Júlíönu Lindu dóttur sinni á Bolafjalli.
forvinna með hjálp tækninnar til
að mögulega létta undir sjálf-
boðaliðum eða fækka höndum
sem þurfa að koma að verkefninu.