Læknaneminn - 01.10.1988, Page 11

Læknaneminn - 01.10.1988, Page 11
Úr heimild 1, bls. 4. Átfrumur og T - lymfocýtar eru höfuðpaurarnir í greiningunni og í frumumiðluðu drápi(22). Við athugun á frumum úr eðlilegum brjóstvef kemur í ljós að sum svæði skortir HLA-tjáningu fullkomlega. Frumur brjóstakrabbameins virðast í mörgum tilfellum ekki tjá HLA. Þannig sýna illkynja frumur og fjöldi eðlilegra þekjufrumna (epithel) litla tilhneigingu til tjáningar á vefjaflokkamótefnavökum. Þar sem cytotoxiskarT-frumur, íþað minnsta, þekkjaframandi mótefnavaka í tengslum við HLA getur þetta verið mikilvæg vísbending um eðli svörunar ónæmiskerfisins við þessari gerð krabbameins (23). Umfjöllun er hér bundin við brjóstakrabbamein en það er íferð bólgufrumna ekki. Öll “föst æxli”sem athuguð hafa verið úr mönnum sýna meiri eða minni íferð bólgufrumna(24). Samsetning hvítu blóðkornanna í brjóstakrabbameini bendir ekki til þess að um ósérhæfa bólgusvörun sé að ræða þar sem hlutfall T-hjálpar- og bælifrumna er < eða = 1, meðan normalgildi.í blóði, liggja á bilinu 1 til 2(23)(25). J.Hurlemann og P. Saraga sýndu einnig fram á (1985) að það var samhengi milli hvitblóðkomaíferðar í æxlin og tjáningar á HLA flokki 1, en í rannsóknum þeirra tjáðu 25 af 61 æxli þessi antigen (15). Hvít blóðkom eru til staðar í heilbrigðum brjóstvef en hafa aðra dreifingu en í illkynja vexti. Lymfocýtarnir eru í nálægð þekjufrumnanna í heilbrigða vefnum meðan staðsetningin er mikið til bundin við bandvefinn (stroma) þegar um krabbamein er að ræða. Menn skilja illa tilvist og staðsetningu hvítra blóðkorna í heilbrigða vefnum. Hún virðist óháð mótefnavökum og HLA flokk 1 tjáningu. Mönnum hefur helst dottið í hug að almennt stjórni endothel fjölda lymfócýta og afbrigðum þeirra á ákveðnu svæði. Einnig gætu hormónar haft sín áhrif á þá í þeim líffærum þar sem það á við(26). I brjóstvef liggja plasmafrumur undirþekjufrumulaginuogframleiðamótefni.aðallega IgA, hvort sem um mjólkandi brjósterað ræðaeðaekki. Þetta er kannski nærtækasta skýringin á tilvist og staðsetninguhvítrablóðkomaíeðlilegumbrjóstvef(27). Það er ekki ólíklegt að ei tthvað s vipað eigi við um brjóstakrabbamein og sortuæxli en þar verður breyting á STAÐSETNINGU, S AMSETNINGU OG VIRKJUNARÁSTANDI hvítra blóðkoma í æxlinu með vexti þess(24). Um starfsgleði þeirra lymfocýta sem eru í brjósta-krabbameini fer tvennum sögum. Lwin og fleiri fundu (1985) að Tac +(þ.e.T-frumurnar sem tjá viðtaka fyrir interleukin-2) og HLA DR + lympfocytar í þekjufrumu-laginu og bandvefshýðinu voru á bilinu 10-30% en þessi antigen eru notuð sem mælikvarði á örvun. Afturá móti fundu þeirengin merki um virkjaða lymfocýta í eðlilegum brjóstvef(26). Rowe og Beverley drógu aftur á móti þá ályktun af niðurstöðum tilrauna sinna að sú þversögn væri fyrir hendi í illkynja æxli að tilvist þess dragi til sín hvít blóðkorn en að T- frumumar sýni ekki í öllum tilvikum merki örvunar (23). Margir hafa reyndar orðið til að sýna fram á bælingu hvítra blóðkorna sem einangruð hafa verið úr æxlum eða úr blóði sjúklinga með krabbamein á lokastigi. Rannsókn þeirra Töttermann og fleiri þar sem könnuð var drápsvirkni hvitra blóðkoma úr 10 mismunandi krabbameinum, þar með töldu einu æxli úr brjósti, leiddi í ljós að þau voru algerlega ófær um lýtiskt dráp. Þetta átti við jafnvel þó að einkjarna hvít blóðkorn í blóði sömu sjúklinga væru mjög frumudrepandi (cytotoxísk). Líklegasta skýring á þessu er tilvist staðbundinna bæliþátta sem krabbameinsfrumurnar gæfu þá frá sér(28). Nýlega hafa verið birtar fyrsta sinni niður- stöður sem sýna fram á bælingu (inhibition) á svörun hvítra blóðkorna í blóði við mítogenefninu phyto- LÆKNANEMINN Vim-41. árg. 9

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.