Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1988, Blaðsíða 45

Læknaneminn - 01.10.1988, Blaðsíða 45
stöðustig sem nefnist “Registrar”. Registrar starf er næsti valkostur og allmargir íslenskir Iæknar hafa farið beint í slíka stöðu, yfirleitt á háskólasjúkrahúsi. Þessar stöður eru oftast auglýstar. Ráðningin er til eins árs í senn, að jafnaði með framlengingu í huga. Staðan samsvarar stöðu reynds aðstoðarlæknis hér á Iandi, þó oft með talsvert meiri ábyrgð og sjálfstæði í starfi. Launin eru nokkru hærri en í SHO stöðu og vaktir strjálli, hvatning til vísindavinnu kemurnú oftast til ímeiri mæli, en ætlast er til góðrar vinnu sem fyrr. Tekið skal fram að vinnuskýrslur tíðkast ekki. Menn eru ráðnir til að gegna ákveðnu starfi með vissum vaktafjölda og launin eru fyrir þann pakka. Námsleyfi greiðist þó sérstaklega. Nokkrir íslendingar hafa byrjað vinnu á háskólasjúkrahúsum sem “Research Fellow” í rannsóknaáætlun, sem yfirleitt er fjármögnuð sérstaklega gegnum háskóladeildirnar. Slík staða er oftast til eins árs í senn með framlengingarmöguleika í annað ár í mörgum tilvikum. Ur svona stöðu er venjulega greið leið í Registrar stöðu. Rannsóknastaða er því góður kostur, ef hann býðst. Hvernig á að komast til Bretlands? Stöður eru auglýstar í fylgiriti British Medical Joumal, sem ekki fylgir með til útlendra kaupenda. Þetta blað ætti þó að liggja frammi á skrifstofu Læknafélaganna eða á bókasafni Landspítalans fyrir þá sem áhuga hafa. Flestir þeir sem farið hafa ti IB retlands hafa farið með hjálp íslenskra lækna, sem þar hafa verið áður. Að sækja námskeið í Bretlandi meðan starfað er á Islandi gæti einnig orðið tilefni til stöðutækifæra. Nauðsynlegt er að fá atvinnuleyfi frá General Medical Council, sem er stofnun sem hefur faglegt eftirlit með læknum í Bretlandi, eins konar læknaráð. Leyfið þarfað fá áður en starf hefst í Bretlandi. Leyfið fæst annaðhvort með því að fara í inntökupróf, PLAB- prófið (1,2), sem haldið er tvisvar á ári á nokkrum stöðum í Bretlandi eða með því að fá undanþágu frá því, en þá verður að reikna með 3-4 mánuðum frá umsókn og þar til leyfið kemur. í PLAB-prófinu (Professional and Linguistic Assessment Board) er verið að tryggja að umsækjandi hafi næga kunnáttu í læknisfræði og undirstöðugreinum hennar, en einnig í ensku. Undanþága fæst fyrir þá sem fara í Registrarstöður á háskólaspítölum eða í rannsóknarstöður. Háskóladeildin ábyrgist þá að viðkomandi uppfylli þau lágmarksskilyrði sem PLAB-prófið ætti annars að tryggja. Þegar spurst er fyrir um stöðu, bæði auglýsta stöðu og möguleika á stöðu, er nauðsynlegt að í bréfi ti I yfirmanns fy lgi yfirlit um ævi og störf, curriculum vitae (4). Venjulega er í því getið tveggja eða þriggja manna, sem mundu gefa meðmæli, ef þess væri óskað (referees). Breski læknirinn skrifarþáþeim íslenskaog óskar eftir meðmælum. Opin meðmælabréf með umsókn tíðkast ekki afaugljósum ástæðum. Bester að fá íslenskan lækni, sem þekkir breskan lækni á viðkomandi stað til að skrifa og spyrjast fyrir um möguleikana (Dear John, at our unit now there is a very promising, intelligent and hard-working young doctor who would like to go to Britain for further specialisation in.). Curriculum vitae þess sem sótt erumstöðufyrirerþálátiðfylgjameð. Slík persónuleg tengsl eru mikilvæg og sennilega árangursríkust við útvegun námsstöðu. Til þess að slíkt verði þarf viðkomandi að hafa getið sér það orð í námi og starfi heima, að íslenski læknirinn treysti sér til að mæla með honum. Möguleikar á stöðu hafa líka opnast í nokkrum sérgreinum gegnum sérgreinasamtök lækna í Bretlandi, sem hafa milligöngu við að útvega heppi- Iegar námsstöður fyrir erlenda lækna. íslenskir Iæknar hafa, eins og Norðurlandabúar yfirleitt, orð á sér fyrir góða grunnmenntun og enskukunnáttu. Viðhorf þeirra til ýmissa hluta eru einnig lík þeim sem Bretarhafa. Þettaeykur möguleika á að fá stöðu. Ótvírætt er kostur að geta skrey tt sitt curricul um með birtum greinum í innlendum eða erlendum fagtímaritum, m.a. greinum í Læknanemanum. Uppbygging námsins Sérnám í Bretlandi byggir á þeim grunni að unnið sé að því að taka bresku sérfræðiprófin, sem sérgreinasamtökin standa að. Sérgreinasamtökin, “Colleges”, eru íraun stofnanir um sérgreinina. Prófin eru oftast í tveim hlutum, fyrri hluta sem varðar undirstöðugreinar sérsviðsins, svo sem líffærafræði, lífeðlisfræði, lífefnafræði, meinafræði, lyfjafræði, frumulíffræði og læknisfræðilegri eðlisfræði og tölfræði. Þennan hluta taka menn snemma í sérnámi. Seinni hlutinn, skriflegur, verklegur og munnlegur, er venjulega tekinn um 2-4 árum seinna. Mismunandi sérgreinar hafa mismunandi kröfur um náms- ferilsbækur, prófbækur og ritgerðir á námstímanum. LÆKNANEMINN ^Í988-41. árg. 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.