Læknaneminn - 01.10.1988, Síða 16

Læknaneminn - 01.10.1988, Síða 16
Capoten hefur mikiö veriö notaö viö hækkuðum blóöþrýstingi, en undanfariö hafa komið í Ijós kostir þess, aö nota lyfið hjá sjúklingum meö lítilsháttarhækkaöan eöa meöalhækkaöan blóðþrýsting Mjög góöur árangur hefur náðst, í lækkun á lítilsháttarhækkuðum eöa meðalhækkuðum blóö- þrýstingi, sem ekki hefur veriö stjórnaö af þvagræsilyfjum af flokki tíazíða. Paö sem meira er, veldur Capoten ekki þeim aukaverkunum, sem beta- blokkar hafa. Ennfremur, er komist hjá langtímaáhrifum þvagræsilyfja, t.d. lágu kalíumgildi í sermi, hækkun blóösykurs, þvagsýru og blóðfitu. Meö notkun á Capoten finnst sjúklingi, meö hækkaðan blóðþrýsting, sér hafa verið gefin von um eðlilegt líf, einungis með því að taka inn EINA TÖFLU Á MORGNANA OG EINA TÖFLU Á KVÖLDIN. SQUIBB CAPOTEN raptopril Vióheldur eólilegum lífsmáta Lyfið er skráö meö tilliti til eftirfarandi: 4. 1. Ábendingar: Viö hækkuðum blóöþrýstingi. Hjartabilun. 2. Frábendingar: Ofnæmi fyrir lyfinu. Gæta skal varúðar viö gjöf lyfsins hjá sjúklingum meö skerta nýrna- og lifrarstarfsemi. Fósturskemmandi áhrif eru enn ekki Ijós. Meðganga og brjóstagjöf eru -því frábendingar. 3. Varúð: Hjá sjúklingum meö natriumskort getur blóöþrýstingur falliö of mikiö. Byrja skal lyfjagjöf meö 5. litlum skammti. Einnig er ráölegt aö fara hægt í sakirnar hjá sjúklingum með svæsna hjartabilun og gefa lyfið einungis eftir aö meðferð meö digitalis og þvagræsilyfjum 6. er hafin. Aukaverkanir: Húð: Útþot. Meltingarfæri: Truflun á bragðskyni. Nýru: Proteinuria hefur komiö í Ijós hjá sjúklingum meö nýrnabilun (glomerularsjúkdóm) og sumir fengiö nephrotiskt syndrom. Blóðmyndunarfæri: Hvítblóökornafæö. Blóötruflanir hafa komið í Ijós hjá sjúklingum meö sjálfsónæmissjúkdóma (autoimmune system sjúkdóma) Milliverkanir: Áhrif lyfsins aukast, ef þvagræsilyf eru 7. gefin samtímis. Prostaglandinhemjarar, t.d. indómetacín, minnka áhrif lyfsins. 8. Skammtastærðir handa fullorðnum: Við hækkuðum blóðþrýstingi: 25 mg tvisvar sinnum á dag. Má auka i 50 mg tvisvar sinnum á dag. Aldrei skal gefa meira en 450 mg daglega. Við hjartabilun: Venjulegur upphafsskammtur er 12,5 mg tvisvar sinnum á dag, má auka í 50 mg þrisvar sinnum á dag og mest 450 mg daglega. Athugið: Lyfið skal taka 1 klst. fyrir mat eða 2 klst. eftir máltíð. Skammtastærð handa börnum: Lyfiö er ekki ætlað börnum. Pakkningastæröir lyfsins eru: Töflur 25 mg x 90 stk. Töflur 50 mg x 90 stk.

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.