Læknaneminn - 01.10.1988, Side 39
hliðarbrún vinstra nýra. Tölvusneiðmyndir af nýrum
voru eðlilegar. Beinaskann samrýmdist “poly-
arthritis.” Röntgenmyndir af höndum, úlnliðum og
ökklunt sýndu byrjandi úrátur. Röntgenmyndir af
hnjám og af brjóstholi voru eðlilegar. EKG sýndi
vægar ST-breytingar og spumingu um “Io ventricular
strain.”
Umræður.
Rannsóknum var hagað út frá því að vitað var að
sjúklingur hafði vöðvaslensfár. Vöðvaslensfár er
dæmigerður sjálfnæmissjúkdómur. Sjálfsskörun
(autoimmune overlap) er vel þekkt í ýmsum
sjálfnæmissjúkdómum. Þannig geta sjúklingar með
vöðvaslensfár haft aðra sjúkdóma sem taldir eru af
sjálfnæmistoga (autoimmune nature), svo sem
útbreidda rauða úlfa (systemic lupus erythematosus),
liðagigt, skjaldkirtilbólgu (autoimmune thyroiditis),
“anemia perniciosa”, psoriasisgigt og sykursýki. Auk
vöðvaslensfársins reyndist hún hafa tvo aðra
sjálfnæmissjúkdóma, þ.e. sígilda liðagigt og “anemia
pemiciosa.” Dæmigerð sjúkrasaga, skoðun og hækkun
á gigtarprófum, beinaskann og röntgenmyndir
staðfestu sígilda liðagigt. B12-vítamínskortur,
Schillings-próf II og “parietal” mótefni staðfestu
“anemia perniciosa.” Smásæ blóðmiga er óskýrð.
“Anemia pemiciosa” var meðhöndluð með
Vibeden sprautum og jámtöflur jafnframt gefnar, þar
sem blóðleysið virtist vera blanda af B12 vítamínskorti
og járnskorti. Liðagigtin var meðhöndluð með T.
Imuran 50 mg x 3. Hlaut hún nokkurn bata sem þó var
ekki fullnægjandi. Var því T. Prednisólón 15 mg
daglega bætt við. Við það dró verulega úr liðeinkennum.
Báðum þessum lyfjum er auk þess beitt við
vöðvaslensfári enda reyndist með tímanum unnt að
minnka skammta af “anticholinesterösum” um meira
en helming og við það dró úr aukaverkunum þeirra.
Þótt fyrmefnd skörun sjálfnæmissjúkdóma sé ekki
fátíð hjá sjúklingum með vöðvaslensfár, þá verður í
þessu tilfelli að teljast mjög óvenjulegt að hún komi
fram áratugum eftir brottnám hóstarkirtils. Ljóst er að
hóstarkirtillinn var fjarlægður í heilu lagi. Hins vegar
gæti hún haft hóstarkirtilsvef annars staðar í miðmæti
(mediastinum). Höfðum við því hug á að fá
tölvusneiðmyndatöku af miðmætinu en sjúklingur
þverneitaði þar sem hún fann fyrir mikilli
innilokunarkennd í tölvusneiðmyndatækinu við
nýrnarannsóknina og hafnaði alfarið miðmætisaðgerð
þó hóstarkirtilsvefur myndi finnast þar.
Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu blaðsins
Elding trading company h.f., Hafnarhvoli Tryggvagötu, símar 15820,16303
LYFJABÚÐIN IÐUNN
LAUGAVEGI 40A
Læknasími: 11911
Almennur sími: 21133
LÆKNANEMINN 2Ám-41. árg.
37