Læknaneminn - 01.10.1988, Page 59

Læknaneminn - 01.10.1988, Page 59
lesstofuplássið í Eirbergi á Landsspítalalóðinni hefur ekki aukist frá síðasta vetri. Það þarf ekki mjög sterka tölvu til að reikna út að þama vantar okkur skyndilega um 50 lespláss. Það er að vísu rétt, sem Sigmundur rektor svaraði til, að nýtingin gæti verið betri í Eirbergi, en alls ekki sem svarar til þessa taps. Við æstum okkur dálítið og málið verður leyst að hluta á þann hátt, að við höldum Tjamargötunni, þar til að bráðabirgða lesaðstaða verður tilbúin í kjallaranum í Vatnsmýrinni. S vo verðum við að nýta Eirberg betur en verið hefur. Það er samt Ijóst að lespláss verða færri eftir en áður. Síðasta vetur gætti dálítið þess misskilnings hjá stjórn námsbrautarinnar í hjúkrun að námsbrautin sæti ein að lesplássunum á 2. hæðinni í Eirbergi. Urðu dálítil leiðindi vegna læknanema, sem þar voru. Rektor hefur nú samþykkt að setja upp tilkynningu sem leiðréttir þetta. 1. desember hátíðarhöldin. Læknadeild, Tannlæknadeild og Raunvísinda- deildsáusamanumhátíðina l.des. '87. Húntókstmjög vel og ekki síður ballið sem var um kvöldið. Matsalur Landsspítalans Síðasta haust setti framkvæmdastjóri tæknisviðs ríkisspítalanna þær reglur að einungis þeir stúdentar sem væru í verklegu námi á Landsspítalanum fengju þar að borða. Astæðan var sögð vera mannekla í eldhúsinu. Fram til þessa höfðu menn af 2.3. og4. ári einnig komið þar við. 4. árs menn úr fyrirlestrum í Loftsölum 3. árs menn úr fyrirlestrum í geðdeildar- húsinu og 2. árs menn frá lestri í lesstofum í Eirbergi eða Tjarnargötu. Stöku maður kom af 1. ári, en það var víst aldrei meiningin. Hjúkrunarfræðinemar af I. og 2. ári höfðu einnig nært sig í matsalnum. Við fórum með Hjúkrunarfræðinemum, margoft á fund fram- kvæmdastjórans og matráðskonunnar á Lands- spítalanum, auk þess sem málið var borið upp á deildarráðsfundi. En ekkert gekk.Núna hillir undir að 3. og 4. árið okkar fái að næra sig, á þeim forsendum að þau eru í verklegu námi að hluta, en auðvitað ættu allir stúdentar í Læknadeild að geta fengið mat á stofnun sem kallar sig Háskólasjúkrahús. Kynningarmynd Læknadeildar Háskólinn vinnur að gerð heimildamynda um allar deildir skólans. í sumar hafa tjórir læknanemar unnið að handriti fyrir læknisfræðina og það er tilbúið. Næst er síðan að byrja að mynda. Horfið var frá því að hafa sameiginlega mynd fyrir alla Læknadeildina, því að þá fengi hvert deildarfélag aðeins um 8 mínútur, sem er allt of lítið. Myndin verður tæpur hálftími. Skoðanakönnun og “frétta- flutningur” útvarpsstöðvarinnar Stjörnunnar. I fyrraveturfórfram skönnun meðal læknanema um viðhorf þeirra til atvinnumála lækna og afstöðu þeirra til námsins (sjá nánar í ársskýrslunni '86-'87). Með okkar samþykki birti Vökublaðið síðan hluta af þessari könnun í vetur, og fór rétt með. “Stjaman” komst síðan í könnunina úr Vökublaðinu og útvarpaði eftirfarandi tvisvar í fréttatíma: “ Mikill meirihluti læknanema við Háskóla Islands er í læknisfræði vegna vonar um góða afkomu..Þar kemur einnig fram að mikill meiri hluti læknanema er tilbúinn að setjast að erlendis að námi loknu.., - væntanlega í von um góða afkomu”. Eftir ábendingu frá okkur kom leið- rétting daginn eftir, sem ekki var nægjanleg. Við kærðum til Siðanefndar blaðamannafélags íslands, og hún var sammála okkur um að þetta væri rangtúlkun á niðurtsöðum könnunarinnar og léleg vinnubrögð. Tveir af fimm nefndarmönnum dæmdu þetta sem brot á siðareglum blaðamanna, svo að “Stjaman” slapp með skrekkinn. Niðurlag Starfsemi félagsins var mikil á síðasta ári og við gerðum margt fleirra en nefnt hefur verið. Samvinnan var mjög góð innan stjórnar og við embættismenn félagsins. Oftast gekk vel að fá fólk til að starfa og dreifðum við vinnunni til sem flestra félagsmanna, bæði til að létta á okkur álagi og til að gera sem flesta félagsmenn virka. Þegar samvinnan var mest, þá leið okkur best. Þetta var gott ár. Fyrir hönd stjórnar Félags Læknanema, Jón Tryggvi Héðinsson, formaður. LÆKNANEMINN 34988-41. árg. 57

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.