Læknaneminn - 01.10.1991, Page 20

Læknaneminn - 01.10.1991, Page 20
óútreiknanleg, en mestá nóttunni bendirþað sterklega til að á ferðinni sé óráð en ekki annars konar heilabilun (9). Athygli og árvekni Athygli er alltaf skert í óráði. Sjúklingur hefur skerta hæfni til að bregðast við skynáreitum og beina athyglinni í ákveðna átt (6,9). Arvekni getur bæði verið minnkuð eða aukin þannig að annað hvort bregst sjúklingur lítið eða mjög harkalega við áreiti sem hann verður fyrir (8). Athyglistími er einnig minnkaður og sjúklingur truflast mjög auðveldlega. Þessi truflun er einnig mismikil eftir tíma dags og oft minnst á daginn. Athyglisskerðing er eitt aðaleinkenni óráðs og eitt hið mikilvægasta og mjög svo hjálpleg við að greina óráð frá heilabilun (9). Truflun á svefn-vöku ferli Vökustig er oft lækkað á daginn, sjúklingurinn er syfjaður og dottar oft. A nóttunni hefur hann hins vegar tilhneigingu til að vaka og er þá á háu örvunarstigi. Þannig getur hið venjulega svefn-vöku ferli verið brenglað eða þá að sjúklingur sefur alls ekki. Slík brenglun virðist síðan geta aukið þá truflun sem verður á vitsmunum og athyglisgáfu sem áður hefur verið lýst (6). Einnig er talað um hreytilegt meðvitundarstig sem eitt höfuðeinkenni óráðs. Er þá átt við minnkaða eða aukna hæfni sjúklings til að svara utanaðkomandi skynáreitum (9). Truflun á hreyfiþörf og hreyfingu Sjúklingur með óráði getur verið annað hvort of- eða vanvirkur með tilliti til hreyfinga og tals. Hann kann að vera dauflegur og brugðist hægt og hikandi við eða þvert á móti, ákafur og framkvæmt hálftilgangslausar hreyfingar og talað hátt og hratt. Sá síðamefndi er líklegri til að vekja athygli á ástandi sínu en sá dauflegi. Jafnvel gæti farið svo að þar sem sá dauflegi truflar engan, gæti ástand hans farið framhjá starfsfólkinu og það ekki greint óráðið (6,7). Þeir sem þjást af fráhvarfi frá áfengisneyslu eða neyslu róandi lyfja sýna frekar ofvirkt ástand en þeir sem hafa efnaskipta heilatruflun (metabolic encephalopathy), sem frekar eru vanvirkir (7). Sumir sjúklingar sýna ósjálfráðar hreyfingar svo sem skjálfta eða blakskjálfta (asterixis). Ennfremur geta nokkrir verið mállausir eða legið stjarfir (6). Önnur einkenni Sjúklingur með óráði getur sýnt ýmis konar geðbrigði samfara ofangreindum einkennum, svo sem hræðslu, reiði, þunglyndi, tilfinningakulda (apathy) eða vellíðan (euphoria) (9). Teikn um örvun á sympatíska taugakerfinu, samfara hræðslu og reiði, geta komið fram eins og hraður hjartsláttur, sviti, fölvi eða roði í andliti, útvíkkuð sjáöldur og hækkaður blóðþrýstingur. Slík teikn eru oftlega samfara óráði af völdum andkólínergra lyfja eða lyfja- og áfengis fráhvarfs (6). Horfur og gangur Samkvæmt skilgreiningu er óráð tímabundinn sjúkdómur sem lagast á nokkrum dögum eða vikum. Óráð hefurtilhneigingu til að standa lengurhjágömlu fólki en hjá ungu. Ef vel er staðið að greiningu og meðferð er útkoman oftast góð og sjúklingur verður eins og hann á að sér. Hjá eldri sjúkingum getur þetta ástand verið merki um lokastig undirliggjandi sjúkdóms sem leiðir til dauða. Hluti tilfellanna endar þó í langvarandi heilabilun en ekki er vitað hvað það hlutfall er stórt, en sumir hafa áður ógreinda langvinna heilabilun, sem kemur upp á yfirborðið í kjölfarið á óráði (9). Orsakir óráðs Orsakir óráðs má flokka í fjóra flokka: 1) sjúk- dómar í heila, 2) líkamlegir sjúkdómar sem einnig trufla starfsemi heilans svo sem efnaskiptatruflanir, æxli, sýkingarog hjarta- og æðasjúkdómar, 3) eitranir svo sem lyfjaeitranir eða eitranir sem rekja má til 18 LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.