Læknaneminn - 01.10.1991, Page 23

Læknaneminn - 01.10.1991, Page 23
milli markverðra og ómarkverða upplýsinga. Þessi atriði eru oft til staðar í óráði. Enn fremur hefur komið fram að há þéttni cortisols í hvfld olli samskonar breytingu á heilalínuriti og sést í óráði. Oráð sést stundum í Cushings heilkenni, sérstaklega hjá gömlu fólki (7). Þriðja kenningin er að skert athygli samfara óráði sé af völdum staðbundinna skemmda svo sem dreps á ákveðnum svæðum í heilanum. Sérstaklega ef slíkar skemmdir eru í hægra heilahveli sem sumir telja að sjái um athyglina. Ólíklegt er að slíkar staðbundnar skemmdir skýri nema fá tilfelli, og oftast er um víðtæka, almenna truflun á starfsemi heilans að ræða (9). Greining og mismunagreining Greiningu óráðs má skipta í tvo þætti. Fyrst er að bera kennsl á óráð útfrá sögu og þeim klínísku einkennum sem lýst hefur verið. Síðan er að leita orsaka óráðsins. Ekkert eitt ákveðið próf er nothæft til greiningarinnar og byggist greiningin því á hinni klínísku mynd. Ef um er að ræða skyndilega vitsmunaskerðingu með minnkaðri athygli sem flökta og eru mest áberandi að nóttunni, eru miklar líkur á að um óráð sé að ræða (mynd 1) (9). Athuga ætti vel sjúklinga sem falla í áhættuhópa með tillit til óráðs, eins og eldra fólk sem leggst inn á sjúkrahús, sjúklinga eftir aðgerð og þá sem hafa sögu um heilabilun, auk þeirra sem eru á mörgum mismunandi lyfjum eða eru sjón- eða heyrnar- daprir (10). Mismunagreining Það er mikilvægt að greina óráð frá heilabilun og geðhvarfasýki. Sjúkrasagan er helsta tækið til að greina óráð frá heilabilun sem einnig einkennist af skertri hugsun, minni og skynjun. Saga um vitsmunaskerðingu sem staðið hefur í mánuði eða ár og er jöfn yfir daginn ásamt nokkurn vegin eðlilegri árvekni, athygli og meðvitundarstigi, sem aukinheldur inniheldur neikvæða sögu um aðra sjúkdóma eða lyfjainntöku, bendir sterklega til heilabilunar (9). Einkenni þessara sjúkdóma skarast og óráð getur orðið forspil að langvarandi heilabilun. Y firleitt er miðað við að hafi ástandið staðið í vikur til mánuði skuli fremur tala um heilabilun en óráð. A Heilabilun Langvarandi, hæg byrjun, vakandi, minnkuð einbeiting og athygli einungis er sjúkdómur er langt genginn Þunglyndi Vanlíðan, framkvæmdaleysi, viljaleysi, saga um fyrri slík köst, einkenni breytast lítið Geðklofi Langvarandi, mjög úthugsaðar ranghugmyndir sem eru úr tengslum við raunveruleikann Manía Vellíðan, mikillæti, mikið hugmyndaflug, fyrri saga um maníu Málstol Vel vakandi, talar samfellt, önnur einkenni frá taugakerfi til staðar, breytist ekki á skömmum tíma Óráð Skyndileg byrjun, vitsmunaskerðing, oft með minnkaðri árvekni Mynd 2. Mismunagreiningar óráðs. LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg. 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.