Læknaneminn - 01.10.1991, Qupperneq 31
sjúklingum með prímert sjálfkrafa loftbrjóst en báðir
sjúkdómarnir gætu hugsanlega verið afleiðing
einhvers konar galla í bandvef (7). Meðfæddar
lungnablöðrurerutaldarmjögsjaldgæfar. Weaverog
Ham fundu einungis tvö tilfelli í sex þúsund
krufningum hjá nýburum og bömum (8). í meðfæddu
blöðrunum er að finna öndunarfæraþekju auk þess
sem þær tengjast bronchioli (3). Að þessu leyti eru
þær frábrugðnar áðurnefndum lungna-blöðrum sem
taldar eru áunnar En þótt loftblöðrurnar séu líklega
áunnar er mjög sennilegt að erfanleg tilhneiging sé til
staðar, spumingin er frekar hversu mikil hún er. Þekkt
eru dæmi um mörg tilfelli í einni og sömu
fjölskyldunni, svokallaðan »familial spontan
pneumothorax« (9,15). I Landspítalarannsókninni
var t.d. einn sjúklingur sem átti tvo albræður sem
höfðu sögu um sjálfkrafa loftbrjóst og annar átti
albróðursem tvívegis hafði fengið loftbrjóst (5). Eldri
kenningar um uppruna blaðranna eru á þann veg að
þær verði til vegna langs og mjós brjóstkassa eða stórs
annars rifs sem skagi inn í brjóstholið og herpi þannig
að Iungnatoppnum (3). Withers og félagar (1964)
gengu lengra og stungu upp á því að í hávöxnum og
grönnum einstaklingum verði örari vöxtur á
lungnavef miðað við lungnablóðrásina. Það orsaki
blóðþurrð í lungnavefnum og blöðrur nái að myndast
út við yfirborð lungnanna.
Reyndar greinir lækna enn þann dag í dag á um
orsakir loftbrjósts. Margt er enn á huldu í þessu
sambandi og öruggt að um er að ræða samspil margra
þátta, bæði meðfæddra og áhrifa frá umhverfinu. T.d.
er staðreynd að prímert sjálfkrafa loftbrjóst er mun
algengarahjáreykingafólki(sbr. áður)(6,10). Einnig
er ljóst skv. mörgum rannsóknum að tíðnin er hærri
hjá einstaklingum sem búa í þéttbýli en þeim sem búa
í strjálbýli. T.d. bjuggu rúmlega 80% sjúklinga í
þéttbýli skv. Landspítala-rannsókninni (5). Því er
ekki ósennilegt að mengunáhrif geti stuðlað að
loftbrjósti.
Sekúndert sjálfkrafa loftbrjóst
í þessari gerð sjálfkrafa loftbrjósts er
staðbundinn eða útbreiddur lungnasjúkdómur til
staðar hjá sjúklingi með loftbrjóst (og líkur á því að
lungnasjúkdómurinn hafi stuðlað að eða ýtt undir að
pleura visceralis rofnaði). Um er að ræða fjölmarga
sjúkdóma en algengastir eru:
Lungnaþentba (emphysema pulrn.)
asmi
langvinnt berkjukvef (bronchitis chronica)
lungnaberklar
lungnabólga og
bandvefslunga (fibrosis pulm.)
Þessi gerð sjálfkrafa loftbrjósts er ekki nærri
eins algeng og prímera gerðin. Aðeins fimmti hver
sjúklingur (20%) með sjálfkrafa loftbrjóst fellur í
þennan llokk (3). I rannsókn Ragnhildar Steinbach
o.fl. reyndust 21 af 118 tilfellum sekúnder. Yfirleitt
er þetta eldra fólk sem hefur reykt lengi og hefur auk
lugnasjúkdóms sögu um aðra reykingatengda
sjúkdóma. I þessum hópi getur lítið loftbrjóst valdið
miklum einkennum, enda er sá hluti lungnanna sem
ekki hefur fallið saman, með skerta starfsgetu.
Meingerðin er ekki þekkt til fulls en í dreifðri
lungnaþembu, asma og langvinnu berkjukvefi er talið
að loft lokist af í alveoli út við pleura visceralis
(“diffuse air trapping”) sem síðan rofnar með þeim
afleiðingum að loftbrjóst myndast (3).
Tíðaloftbrjóst
(Catamenial spontan pneumothorax)
Sjálfkrafa loftbrjósti í tengslum við
tíðablæðingar var fyrst lýst 1968. Síðan hefur
nokkrum lilfellum verið lýst (3). Einu tilfelli hefur
verið lýsthérálandi (17). Oftasterukonurnaráþriðja
og fjórða tug ævinnar og verður loftbrjóstsins vart
48-72 klst. eftiraðtíðablæðingarhefjast. í 90% tilvika
er loftbrjóstið hægra megin. Orsakir þessa furðulega
fyrirbæris eru enn alveg á huldu en ýmsar getgátur
hafa verið uppi, s.s. rof á lungnablöðrum (bullae) við
hækkun á prostaglandíni F, en magn þess eykst í blóði
við upphaf tíða. Eftir sem áður er það hugsanlegt að
loftbrjóst geti verið í tengslum við tíðablæðingar,
þannig að það verði ekki skýrt með tilviljun einni
saman.
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
29