Læknaneminn - 01.10.1991, Page 38
Mynd 2. Brjóstholskeranum er yfirleitt komið fyrir í 4.-5.
millirifjabili, við fremri holhandarfellinguna eða rétt fyrir
aftan hana (sjá skyggða svæðið á myndinni).
mikið samfallið lungaað þeim mörkum að meðhöndla
megi það með stuðningsmeðferð (konservatívt).
Talið er að þessi aðferð dugi í 60-70% tilvika í prímeru
sjálfkrafa loftbrjósti en hins vegar ekki nema í u.þ.b.
10% tilfella í sekúnder gerðunum. (2)
Brjóstholsskeri (Intercostal Thorax-
Drainage)
Brjóstholskeri er u.þ.b. eins cm sver plastslanga
með oddhvössum málmteini (trochar) í miðjunni.
Málmteinninn er notaður til að stinga slöngunni undir
húðina og gegnum millirifjavöðvana þannig að hún
komist á réttan stað. Þegar slöngunni hefur verið
komið fyrir er málmteinninn fjarlægður. Aður en
keranum er komið fyrir er húð sjúklingsins
sótthreinsuð og síðan staðdeyft alveg inn að pleura
parietalis. Keranum er yfirleitt komið fyrir hliðlægt
(lat.) við fremri holhandarfellinguna (plica axillaris
anterior), oftast í gegnum 4.-5. millirifjabil eins og
sýnt er á mynd 2.
Aður var mælt með 2. millirifjabili, fyrir miðju
viðbeini. Sú staðsetning þykir ekki lengur heppileg,
jafnvel þótt víða sé mælt með 2. millirifjabili í
nýlegum kennslubókum íhandlæknisfræði (2). Bæði
er það verra hvað útlit snertir en auk þess þarf þá að
fara í gegnum pectoralisvöðvana og jafnvel hluta af
brjóstvef hjá konum. Mikilvægt er stinga keranum
neðarlega í gegnum millirifjabilið (mynd 3a,e). Þá er
Mynd 3. Tæknileg atriði varðandi ísetningu brjóstholskera. (a) Húð, vöðvar, beinhimna rifsins og pleura parietalis deyfð
með staðdeyfilyfi. (b) Áður en sjálfum keranum er komið fyrir er húðin skorin með hníf og síðan stungið í gegnum húðfitu
og vöðva með stórum Péang . Farið er skáhallt undir húðina (u.þ.b. 2 cm), því þá leggst húðflipi yfir stungustaðinn þegar
kerinn er fjarlægður síðar. Keranum er síðan stungið í gegnum neðanvert millirifjabilið (þ.e. yfir efri brún rifsins) til að
forðast skaða á æðar og taugar. (c) Húðsaumur hnýttur. Til em margar mismunandi aðferðir við að hnýta kerann fastan.
(d) Mikilvægt er að halda rétt á keranum þegar honum er komið fyrir og oftast er stefnt upp og fram fyrir lungað. (e)
Málmteinninn í miðju kerans er dreginn út þegar kerinn er kominn á réttan stað. (Mynd TG)
36
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.